Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2018, Side 58

Náttúrufræðingurinn - 2018, Side 58
Náttúrufræðingurinn 58 lindadúnurt sem eru skráðar í tveimur hólmanna. Flóra annarra hólma á það sameigin- legt að hún hefur mun meiri hálendis- brag. Þar vaxa um 50 tegundir sem finnast ekki í hólmum neðan við 140 m (viðauki). Þeirra á meðal eru burni- rót, fjallasveifgras, geldingahnappur, rjúpustör, flagahnoðri og fjalladepla. Flóra hólmanna á ýmislegt sam- eiginlegt. Alls 8 tegundir vaxa í þeim öllum, þ.e. brennisóley, bugðupuntur, kornsúra, túnfífill, túnsúra, túnvingull, undafífill og vallhæra. Aðrar 7 tegundir fundust í hólmunum öllum að einum undanskildum, þ.e. brjóstagras, hrafna- klukka, klóelfting, krækilyng, maríu- stakkur, smjörgras og vegarfi (viðauki). Sjaldgæfar tegundir Í hólmunum finnast nokkrar tegundir sem eru fremur sjaldgæfar á landinu. Náttúrufræðistofnun Íslands hefur flokkað tegundir eftir verndargildi sam- kvæmt mælikvarða frá 1–10, og speglar hann að stórum hluta algengi þeirra.29 Samkvæmt þessari flokkun finnast 10 tegundir í hólmunum með verndar- gildið 5 eða hærra (2. tafla). Tegund- irnar eru blóðkollur, ferlaufungur, fuglaertur, línarfi og sifjarsóley, sem eru allar með verndargildið 7, kjarrhveiti með verndargildið 6 og aronsvöndur, baunagras, grænlilja og skrautpuntur með verndargildið 5. Þessar tegundir eru flestar í hólmum sem liggja frekar lágt yfir sjó (71–143 m). Í hólmunum sem hæst liggja, þ.e. í yfir 500 m hæð, fannst engin tegund úr þessum hópi. Framandi tegundir Í hólmunum eru sex tegundir sem flokkaðar hafa verið sem framandi hér á landi.30 Þetta eru tegundirnar akurarfi, alaskalúpína, engjamunablóm, háliða- gras, vallarfoxgras og viðja. Allar finnast þær í Koðralækjarhólma og ein þeirra, alaskalúpína, einnig í Viðey.3 UMRÆÐA Tegundamunur í hólmum Við samanburð á gróðri hólmanna er vert að hafa í huga að athuganir spanna 36 ár (1. tafla) og kann hann að hafa breyst á þeim tíma. Einnig er rétt að minna á að hér er verið að bera saman tegundaskrár. Gróður hólmanna er því í raun mun ólíkari en skrárnar sýna. Niðurstöðurnar gefa þó í stórum dráttum yfirlit um þær tegundir sem finna má við talsvert ólíkar aðstæður á beitarfriðuðum svæðum á landinu. Verulegur munur var á fjölda tegunda eftir hólmum (1. tafla). Al- mennt er talið að tegundafjöldi aukist með stærð eyjar31–33 en hér er slíkt sam- band ekki augljóst. Stærsti hólminn er að vísu sá tegundaríkasti. Rannsóknir benda einnig sterklega til að tegunda- auðgi ráðist að stórum hluta af fjölda búsvæða.34,35 Það er í samræmi við niðurstöður þessarar rannsóknar sem benda til þess að tegundaauðgi sé einna mest þar sem yfirborð er fjölbreyttast (1. tafla). Niðurstöðurnar sýna að helsti munur á flóru hólmanna tengist hæð yfir sjó og hita, frekar en t.d. úrkomu eða stærð hólma (9. mynd). Þetta kemur ekki á óvart því hiti og lengd vaxtartíma ræður miklu um hvar tegundir þrífast.36–38 Í hólmum ofan 400 m eru t.d. allmargar tegundir sem hafa meginútbreiðslu á hálendinu. Þar má sérstaklega nefna boghæru, fjalladeplu, fjallanóru, hengistör, lækjafræhyrnu og tröllastakk, sem eru harðgerar og finnast einkum til fjalla.39 Nokkur munur kom fram á flóru eftir því hvort hólmar voru í straumvatni eða stöðuvatni (9. mynd). Hvort þetta er raunverulegur munur eða tengist því að flestir straumvatnshólmanna eru á láglendi skal ósagt látið. Hins vegar má reikna með að aðflutningur fræs og plöntuhluta sé að jafnaði meiri í hólmum í straumvatni en í stöðuvatni og einnig má búast við að rask af völdum flóða sé tíðara í straumvatni en í stöðu- vatni, sem viðheldur fjölbreyttum bú- svæðum. Hvort tveggja getur haft áhrif á flóru hólmanna. Einkenni beitarfriðunar Ljóst er að hólmarnir fimmtán bera sterk einkenni beitarfriðunar. Gróður er þar víða gróskumikill með hávöxnum blómjurtum, víði og sums staðar birki- skógi. Þegar gróður hólma hefur verið borinn saman við beitt land kemur fram mikill munur. Á það við um hólmann í Lómatjörnum,1,2 í Vestara Frið- mundarvatni,13 Eyjavatni og Bugavatni1 og Viðey í Þjórsá.3 Að öllum líkindum á það einnig við um hina hólmana, og alls staðar er mikill ásýndarmunur á gróðri í hólmunum og á beittu landi í kring. 9. mynd. Niðurstaða DCA-hnitunar byggð á skrá yfir æðplöntutegundir í hólmunum. Lengd örva og stefna gefur til kynna fylgni milli breyta og hnitunarása. Hólmar í stöðu- vötnum eru merktir með grænum lit (hringir) en í straumvatni með bláum (tiglar). Línur hafa verið dregnar um TWINSPAN-flokkana fimm (I–V)(2. tafla). – DCA ordination of the islands studied. The direction of arrows indicates the direction of main change for each variable and the length of arrows indicate the strength of correlation; árshiti mean annual temp., ársúrkoma mean annual precipitation, flatar- mál area, fj. teg. number of species, H.y.s. el- evation. Lines enclose TWINSPAN groupings, I–V (Table 2). Islands in lakes are marked with green rings and islands in running water with blue diamonds. -0,5 0 0,5 1,0 1,5 2,0 Foxufellshólmi Hólmi í Mjóavatni Koðra- lækjar- hólmi Helleyjarhólmi Helley Viðey Bláfellshólmi Hólmi í Lóma- tjörnum Landeyja í Arnarvatni Þúfuhólmi í Úlfsvatni Hólmi í Vestara Friðmundarv. Hólmi í Eyjavatni Hólmar 3 og 5 í Arnarvatni Hólmi 4 í Arnarvatni H.y.s. m Fj. teg Ársúrkoma Árshiti Flatarmál ha Hólmi í Bugavatni 1. ás 2. á s NÍ-am15/180 0,5 1,0 1,5

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.