Fréttablaðið - 13.03.2019, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 13.03.2019, Blaðsíða 20
Einfaldasta leiðin til að skýra þetta er að bílaáhugamenn eiga stundum bíla sem meika ekki alveg sens – þetta er fyrir kvikmyndaáhugamanninn. Kvik- myndir eru mitt aðaláhugamál,“ segir Björgvin Helgi Jóhannsson en í stofunni hans er 130 tommu tjald þar sem hann horfir á kvikmyndir. Tjaldið gerði hann sjálfur en hráefnið kom frá amazon.com og spýturnar úr Húsasmiðjunni. Ramminn er svo festur á vegginn. Með þessum 130 tommum eru svo græjur til að fá upplifunina beint í æð. „Þetta er ósköp venjulegur skjá- varpi. Þeir eru að verða glettilega algengir hér á landi. Það eru til mjög góðir varpar fyrir um 200 þúsund krónur. Myndin mín telur um 130 tommur á meðan 75 tommu sjónvarp kostar mun meira. Græjurnar eru dýru hlutirnir í stofunni. Hátalararnir eru frá bandaríska fyrirtækinu Klipsch en magnarinn frá japanska fram- leiðandanum Onkyo. Þetta er alvöru hljóð og rífur í rif- beinin. Ég bý í fjölbýlishúsi og tek tillit til nágranna minna. Ég er með teppi á gólfinu til að dempa hljóðið og svo er korkur undir bassabox- inu svo það sé ekki að valda meiri titringi en það þarf.“ Björgvin segir að ævintýra- myndir og stórar kvikmyndir njóti sín vel á skjánum stóra. „Það eru ákveðnir leikstjórar sem gera kvikmyndir að sjónarspili sem Framhald af forsíðu ➛ Christopher Nolan. Björgvin Helgi heima í stofu þar sem honum líður best með góða ræmu fyrir framan sig. Að þessu sinni var það Indiana Jones. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Hátalararnir eru frá bandaríska framleiðandanum Klipsch. Star Wars hefur notið sín á skjánum stóra sem og hljóðið sem þótti og þykir enn vera stórkostlegt. er gaman að horfa á. Christopher Nolan er góður í því. Það er alltaf gaman að horfa á myndir eftir hann í þessum græjum. Stórar sjón- arspilsmyndir – það er ekkert hægt að bera þetta saman. Ég hef gaman af Marvel, Star Wars og ævintýra- myndum yfirhöfuð. Þær njóta sín vell hérna heima í stofu.“ Björgvin mælir hiklaust með skjávarpa og ætlar að taka þetta allt með sér en íbúð hans er á sölu. „Ég fer aldrei aftur í sjónvarp, það er bara þannig. En ef kaupandinn vill halda skjánum þá er það ekkert mál. Ég smíða þá bara annan,“ segir hann. Sonur Björg- vins horfir ekki á barnaefni í varpanum. Þegar hann hefur viljað horfa á sitt barnaefni er kveikt á spjald- tölvu. „Þetta hefur ekki verið notað í þeim tilgangi enn þá. Við höfum sest niður og horft á Lion King og fleiri vandaðar og skemmtilegar teikni- myndir. Þetta hefðbundna barna- efni er horft á í spjaldtölvunni. Gallinn við varpa er meðal annars að þeir eru með ákveðinn líftíma. Peran er gefin upp fyrir sex þúsund tíma sem er auðvitað nóg en maður er meðvitaður um líftímann og hefur varpann ekki í gangi allan daginn. Svo þarf að huga að ljósmengun. Það þarf að vera svolítið dimmt til að þetta njóti sín sem best.“ Björgvin byrjaði smátt, byrjaði að varpa á hvítan vegg af stofu- borðinu og vandist varpanum og því sem hann hefur upp á að bjóða. „Þá varð ekkert aftur snúið. Þetta er eins og að hafa næstum fjögur 65 tommu sjónvarpstæki á veggnum. Það er hægt að kaupa tjald sem hægt er að draga niður og þá skiptir ekki máli hvort það er hurð á bak við eða eitthvað annað. Trúlega leysir maður hlutina þannig í framtíðinni þegar guttinn verður eldri. Trúlega verður maður með sjónvarp á bak við og dregur tjaldið niður þegar hann vill fara að horfa á eitthvað annað en spjaldtölvuna.“ BRÚÐKAUPSBLAÐ Veglegt sérblað Fréttablaðsins um brúðkaup kemur út 22. mars nk. Allt sem hugsast getur varðandi brúðkaup. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins Sími 550 5078 / serblod@frettabladid.is Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . M A R S 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R 1 3 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 1 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 8 C -3 7 0 4 2 2 8 C -3 5 C 8 2 2 8 C -3 4 8 C 2 2 8 C -3 3 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.