Fréttablaðið - 13.03.2019, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 13.03.2019, Blaðsíða 33
Capernaum (eng sub) ....................... 17:30 Arctic (ice sub)....................................... 18:00 Free Solo (english - no sub) ......... 18:00 *National Theatre Live - Breska Þjóðleikhúsið* *Julius Caesar (english-no sub) 20:00* Taka 5 // Take 5 (eng sub) ........... 20:00 *Tævanskir kvikmyndadagar-Sérverð 800 kr* *6 stuttmyndir/shorts(eng sub) 20:00* Brakland (danish w/eng sub) ....... 22:00 Heavy Trip // Hevi Reissu (eng sub) 22:30 HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS E N N E M M / S ÍA / N M 9 2 8 1 4 H y u n d a i i2 0 a lm e n n 5 x 2 0 m a rs Hyundai | Kauptúni 1 | Sími 575 1200 | www.hyundai.is Nýr og spennandi Hyundai i20. Sýndu skynsemi. Veldu nýjan i20. Nýr i20 er fáanlegur með sjálfvirkri neyðarhemlun, akreinavara og sjálfvirkri hækkun og lækkun aðalljósa. Innréttingin hefur fengið nýtt og vandaðra yfirbragð, nýr 7" snertiskjár nýtir sér fullkomnustu margmiðlunartækni á borð við Apple CarPlay™ og Android Auto™. Verið velkomin að reynsluaka nýjum og glæsilegum Hyundai i20. Verð frá: 2.290.000 kr. Hyundai býður viðskiptavinum sínum upp á eina víðtækustu ábyrgð sem völ er á. Öllum Hyundai bílum fylgir 5 ára verksmiðjuábyrgð og ótakmarkaður akstur. Hvað? Gæðastundir í Listasafni Íslands Hvenær? 14.00-16.00 Hvar? Listasafn Íslands, Fríkirkju- vegi 7 Leiðsögn um sýninguna Gjöfin frá Amy Engilberts. Kaffi og bakkelsi frá Brauði og Co í fallegu umhverfi í umsjá Dagnýjar Heið- dal listfræðings. Dagskrá Gæða- stunda í Listasafni Íslands er ætluð eldri borgurum og er sam- sett af sérsniðnum leiðsögnum og spjalli við sérfræðinga safnsins um myndlist, yfirstandandi sýningar og starfsemi Listasafns Íslands. Hvað? Hvenær? Hvar? Miðvikudagur hvar@frettabladid.is 13. MARS 2019 Sölvi Tryggvason heldur námskeið um næringu, hreyfingu og föstu. Hvað? Betri heilsa – innihaldsríkara líf Hvenær? 20.00-22.00 Hvar? Sólir, Fiskislóð 53-55 Námskeið með Sölva Tryggva- syni. Á námskeiðinu verður fjallað um lykilatriði þegar kemur að næringu, hreyfingu og föstu. Kenndar verða undirstöðuæfing- ar í öndun og hugleiðslu og rætt um ávinninginn af kuldaþerapíu. Hvað? Íbúafundur um tvöföldun Reykjanesbrautar Hvenær? 17.30-18.30 Hvar? Hafnarborg, Hafnarfirði Nú fara framkvæmdir að hefjast við tvöföldun Reykjanesbrautar frá Kaldárselsvegi vestur fyrir Krýsuvíkurgatnamót. Á þessum opna íbúafundi um tvöföldun brautarinnar verður farið yfir framkvæmdir á svæðinu lið fyrir lið en framkvæmdirnar munu hafa áhrif á umferð og annað á svæðinu á meðan þær standa yfir. Hvað? Útgáfutónleikar Rox & Owza Hvenær? 20.00-23.30 Hvar? Húrra, Tryggvagötu 22 Rafpoppdúóið Rox & Owza gaf út plötuna Desperate í febrúar og verður útgáfunni fagnað með tón- leikum í dag, 13. mars. Greg Silverman, fyrrverandi forstjóri kvikmyndarisans Warner Brothers, hefur tryggt sér réttinn á Dimmu eftir Ragnar Jónasson. Ætlunin er að framleiða sjónvarpsþáttaröð eftir sögunni en hún er upphaf þrí- leiks Ragnars um lögreglukonuna Huldu. Frá þessu var greint á vef- miðlinum deadline.com. Á meðal þeirra mynda sem Greg Silverman lét Warner Brothers framleiða á meðan hann réð þar ríkjum er Ósk- arsverðlaunamyndin A Star Is Born með Lady Gaga og Bradley Cooper. Fyrirtæki Silvermans, Stampede, mun framleiða þáttaröðina en á bak við það standa ýmsir fjárfestar, þar á meðal Gideon Yu, fyrrverandi fjár- málastjóri Facebook og YouTube og einn af eigendum ruðningsliðsins San Francisco 49ers. Dimma kom út árið 2015 og hefur rétturinn á henni verið seldur út um víða veröld. Frægðarsól Ragnars hefur risið á undanförnum árum. Snjóblinda náði efsta sætinu hjá Amazon í Bretlandi, Náttblinda í Ástralíu og Myrknætti var mest selda glæpasagan í Frakklandi á dögunum. Dimma var gefin út í Bandaríkjunum ekki alls fyrir löngu og hafa viðtökur verið afar góðar og sagði gagnrýnandi Wash- ington Post meðal annars að hún væri „framúrskarandi“. – kb Glæpasagan Dimma eftir Ragnar Jónasson ratar til Hollywood Fyrrverandi forstjóri kvikmyndarisans Warner Brothers hefur tryggt sér réttinn á glæpasögunni Dimmu eftir Ragnar Jónasson. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17M I Ð V I K U D A G U R 1 3 . M A R S 2 0 1 9 1 3 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 8 C -4 0 E 4 2 2 8 C -3 F A 8 2 2 8 C -3 E 6 C 2 2 8 C -3 D 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.