Gripla - 20.12.2018, Page 32
GRIPLA32
Á G r I P
Tvö íslensk söngbókarbrot frá 16. öld í Stokkhólmi
Efnisorð: tónlist, handritafræði, kirkjusöngur, litúrgía/helgisiðir
Brot úr tveimur íslenskum kirkjusöngsbókum frá því um miðja 16. öld hafa
varðveist í Konunglega bókasafninu í Stokkhólmi en efni þeirra hefur ekki verið
kannað til hlítar fyrr en nú. Hér er gerð grein fyrir innihaldi þeirra; annað er
tvinn úr skinnhandriti (Holm perg 8vo nr. 10, I b) en hitt er tvö pappírsblöð sem
virðast hafa verið notuð í bókband (S. 252a). Efni blaðanna er svipað, kaþólskur
tíða- og messusöngur í íslenskri þýðingu, og deila þau tveimur söngvum og texta
hins þriðja. Margir söngvanna tilheyra jólahátíðinni en þó eru einnig söngvar fyrir
ýmsar aðrar hátíðir kirkjuársins. Svo virðist sem handritin hafi haft að geyma
eins konar úrval kirkjusöngva fremur en tæmandi forskrift fyrir allt kirkjuárið.
í greininni eru færð rök að því að hinar íslensku þýðingar söngtextanna hafi
orðið til á árunum 1544–62. Einn söngtexti (Christus resurgens est) fylgir þýðingu
Rómverjabréfs í Nýja testamenti Odds Gottskálkssonar frá 1540, en hvorki er
stuðst við forskriftir dönsku sálmabókarinnar frá 1569 né danska grallarans frá
1573. Handritsbrotin eru mikilvæg heimild um skeið í íslenskri tónlistarsögu sem
fátt er vitað um, þar sem lítið hefur varðveist af handritum frá síðari hluta 16.
aldar. Vera má að hin íhaldssama útfærsla kirkjusöngs og helgihalds sem hér má
greina hafi verið tilefni togstreitu milli biskupsdæmanna í Skálholti og á Hólum
og að sú tvídrægni sem getið er í aðdraganda frumútgáfu grallarans árið 1594 hafi
að einhverju leyti snúist um það að hve miklu leyti bæri að varðveita hinn gamla
rómverska arf og með hvaða hætti. Þar stóð Guðbrandur Þorláksson uppi sem sig-
urvegari og sú útfærsla sem hann aðhylltist var með allt öðru móti en hér greinir.
S U M M A R Y
two Icelandic Sixteenth-Century Music fragments in Stockholm
Keywords: music, paleography/manuscripts, church singing, liturgy
this article discusses fragments from two Icelandic music manuscripts from the
sixteenth century that have survived at the royal Library in Stockholm, whose
contents and cultural/liturgical context have not previously been examined. one is
a vellum bifolium (Holm perg 8vo nr. 10, I b), the other consists of two individual
paper folios that appear to have been later used as binding material (S. 252a). Both
fragments contain roman Catholic plainchants for the mass and office, but in
Icelandic translation and thus presumably intended for use in an early Lutheran
context. there is a certain overlap of material (two chants and fragments of a
third are shared by both manuscripts), but the liturgical function is unclear. Many,
but not all, of the chants found here belong to Christmastide; it seems as if the