Gripla - 20.12.2018, Side 66
GRIPLA66
of men. In this essay, the ideas presented in the first part of Af natturu mannzins
ok bloði are put into context with currents of thought transmitted in a body of
medieval learned and theological texts, while maintaining a focus on the writings
that we have grounds to assume were extant in medieval Iceland and norway.
furthermore, the elucidation of the theory of the four humours, which appears
in the second part of Af natturu mannzins ok bloði, is traced to a popular and
widespread learned Latin text: Epistula Vindiciani ad Pentadium. the two texts are
compared, and argued that this latter part of Af natturu mannzins ok bloði is an Old
Norse translation derived from Epistula Vindiciani.
Á G r I P
Vessakenningin í norðri: forníslensk útgáfa af Epistula Vindiciani í Hauksbók
Lykilorð: vessakenningin, Hauksbók, Epistula Vindiciani, lærðir textar, guð fræði,
norrænar miðaldaþýðingar
Elsti varðveitti norræni textinn um vessakenninguna er ríflega 900 orða löng
ritgerð í Hauksbók, sem ber heitið Af natturu mannzins ok bloði. Þessum texta,
sem er einstakur meðal þekktra norrænna miðaldatexta, má skipta í tvo hluta
sem eru nokkuð ólíkir í eðli sínu. Fyrri hlutinn er guðfræðilegur inngangur, eða
forsenda, sem útlistar sköpun mannsins og tengsl hans við eiginleika hinna fjögurra
höfuðefna (jarðar, vatns, lofts og elds). Seinni hlutinn er líffræðilegur og inniheldur
kerfisbundna útskýringu á eðli og virkni vessanna fjögurra í líkamanum og áhrifum
þeirra á persónu og skapgerð manna. Í þessari grein eru hugmyndirnar sem birtast
í fyrri hluta Af natturu mannzins ok bloði settar í samhengi við þá hugmyndastrauma
sem finna má í lærðum og guðfræðilegum evrópskum ritum frá miðöldum. Áhersla
er lögð á þau skrif sem ástæða er til að ætla að hafi verið aðgengileg á íslandi og
í Noregi á miðöldum. Ennfremur er sú útlistun á vessakenningunni sem birtist
í seinni hluta Af natturu mannzins ok bloði rakin til vinsæls og útbreidds latnesks
texta, Epistula Vindiciani ad Pentadium. Textarnir tveir eru bornir saman, og
færð rök fyrir því að Af natturu mannzins ok bloði sé þýðing runnin frá Epistula
Vindiciani.
Brynja Þorgeirsdóttir
PhD Candidate, Department of Anglo-Saxon, Norse and Celtic,
University of Cambridge
Clare Hall College
Herschel Road
Cambridge CB3 9AL
United Kingdom
bt346@cam.ac.uk
brynjathorgeirsdottir@gmail.com