Fréttablaðið - 21.03.2019, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —6 8 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 2 1 . M A R S 2 0 1 9
Fréttablaðið í dag
SKOÐUN Helga Vala Helgadóttir
skrifar um okurlandið Ísland. 22
SPORT Það eru lykilmenn fjar-
verandi í landsliðshópnum sem
fer til Suður-Kóreu. 26
MENNING Þórdís Helgadóttir vill
gera eitthvað nýtt. 34
LÍFIÐ Hallgrímur Helgason
kemur út á hljóðbók. 44
PLÚS 2 SÉRBLÖÐ l FÓLK l LÍFIÐ
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Við erum eins misjöfn og við
erum mörg en geðheilsu eigum
við öll sameiginlega. Sífellt fleiri
eru greindir með frávik og geð-
raskanir og fordómar gegn þeim
blunda enn í fólki. En erum við
ekki öll með frávik? ➛ 16-18
Er eðlilegt
fólk til?
12 MANNA
ÁSAMT FYLGIHLUTUM
MIKIÐ ÚRVAL
VERÐ FRÁ KR. 24.990
HNÍFAPARATÖSKUR
LAUGAVEGI 178 – SÍMI 568 9955
Nú eru allar 55
stöðvar Orkunnar
þínar stöðvar.
GEIRFINNSMÁL Sáttanefnd for-
sætisráðherra hefur enn ekki hafið
viðræður um bótafjárhæðir eða
forsendur bóta við viðsemjendur
sína sem sýknaðir voru af aðild að
Guðmundar- og Geirfinnsmálum
síðastliðið haust.
Hálft ár er liðið frá sýknudómi
Hæstaréttar og skipun nefndar-
innar og er þeim sem Fréttablaðið
hefur rætt við farið að leiðast nokk-
uð þófið.
Nefndin fundaði með öllum
hlutaðeigandi í janúar og febrúar
til að ræða um grunn að sáttum
á breiðum grundvelli en peninga
mun hins vegar ekki hafa borið á
góma á fundum nefndarinnar með
fólkinu.
Fyrir nokkrum vikum mun
nefndinni svo hafa borist útreikn-
ingar mögulegrar bótafjárhæðar
frá einum málsaðila. Framreiknuð
niðurstaða útreikningsins er sögð
hafa verið svo svimandi há að sátta-
nefndinni féll allur ketill í eld og
algjört hlé varð á sáttaumleitunum.
Heimildir blaðsins herma hins
vegar að nú hafi nefndin loks óskað
eftir fundum í næstu viku og hygg-
ist nú herða sig upp og ræða mögu-
legar forsendur og fjárhæðir bóta.
Starf nefndarinnar er nokkuð
snúið en í ljós kom eftir að nefndin
var skipuð, að hún hefur ekki
umboð að lögum til að semja um
greiðslur bóta úr ríkissjóði. Því
þurfti að kalla ríkislögmann til,
sem reyndist vanhæfur í málinu
vegna föður síns sem var vara-
ríkissaksóknari og kom að meðferð
málanna á áttunda áratugnum. Var
Andri Árnason hæstaréttarlögmað-
ur settur ríkislögmaður í málinu.
Viðsemjendur nefndarinnar
hafa ekki allir jafnan bótarétt og
enn liggur ekki fyrir hvort nefndin
hyggst leggja til að leitað verði sátta
við Erlu Bolladóttur, en henni var
einni synjað um endurupptöku.
Kristrún Heimisdóttir, formað-
ur sáttanefndarinnar, hefur lagt
áherslu á að ræða ekki starf nefnd-
arinnar við fjölmiðla. – aá / sjá síðu 6
Ræða svimandi
háar fjárhæðir
Kristrún Heimis-
dóttir, formaður
sáttanefndar-
innar.
LÍFIÐ Söngkonan og jarðbundna
flugfreyjan Heiða Ólafsdóttir tekst
á við afleiðingar umferðarslyss og
áfallastreituröskun syngjandi bjart-
sýn.
Hún segir lagasmíðar hafa bjarg-
að henni í gegnum erfiða tíma í lífi
hennar. „Það að brasa í minni eigin
tónlist hefur alveg bjargað geð-
heilsunni.“
Afraksturinn má heyra á nýrri
plötu sem nefnist Ylur og hún fagn-
ar með tónleikum á föstudagskvöld.
– þþ / sjá síðu 42
Syngur sig frá
áfallastreitu
KJARAMÁL Efling og SA túlka með
mismunandi hætti til hvaða starfs-
manna boðuð verkföll, sem hefjast
eiga á miðnætti, nái til. Verkfallið
myndi ná til um 2.600 félagsmanna
Ef lingar og VR á hótelum og hjá
hó pbi f r e ið a f y r i r -
tækjum.
SA telu r að
verk fa llið nái
aðeins til félags-
m a n n a þ e s s
félags sem boðar
verkfallið.
– sar / sjá síðu 2
Stefnir á átök
um túlkun
Heiða
Ólafsdóttir.
Halldór
Benjamín
Þorbergs-
son, fram-
kvæmda-
stjóri SA.
Halldór
2
1
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
9
C
-E
8
6
C
2
2
9
C
-E
7
3
0
2
2
9
C
-E
5
F
4
2
2
9
C
-E
4
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K