Fréttablaðið - 21.03.2019, Page 30
Sólveig
Gísladóttir
solveig@frettabladid.is
Borgarbókasafnið tekur þátt í HönnunarMars í ár með sýningu Hrafnhildar Tvennir
tímar en hún verður opnuð í
Kringlunni í dag, fimmtudag,
klukkan 17.
Á sýningunni leggur Hrafnhild-
ur áherslu á samsuðu af gömlum
efnum, útsaumi og nýstárlegum
útfærslum. „Mig langaði til þess að
hanna upp úr og endurnýta gömul
efni. Ég átti mikið af gömlum
blúndum frá langömmu minni og
hekluðum dúkum sem amma mín
hafði gefið mér. Þessi efniviður
leiddi mig áfram í hönnuninni.
Mér varð hugsað til þess hvernig
þetta var í gamla daga þegar ekki
fengust tilbúin föt og konur sátu
oft fram á nótt og saumuðu föt á
alla fjölskylduna. Kjólarnir sem
ég saumaði hafa gamaldags og
nútímalegt yfirbragð í bland. Ég
geri til dæmis gegnsæja kjóla með
gamaldags yfirbragði. En gegnsæj-
ar f líkur hefðu seint verið leyfðar
á fyrri tímum,“ segir Hrafnhildur
sem hefur heillast af tísku frá unga
aldri. Hún lærði fatahönnun í IED
í Barcelona og bætti síðar við sig
textílhönnun í Myndlistaskóla
Reykjavíkur. „IED lagði áherslu á
sníðagerð og saum en ég hafði lítið
sem ekkert pælt í textíl og áferð.
Það opnaði augu mín mikið að fara
í Myndlistaskólann í Reykjavík, þá
gat ég sameinað þetta tvennt. Fata-
hönnun er ótrúlega skapandi fag
og á sama tíma krefst hún mikillar
tæknilegrar kunnáttu og færni.“
Hrafnhildur hefur unnið að
sýningunni Tvennum tímum um
tveggja mánaða skeið. „Mig hafði
lengi langað til þess að hanna upp
úr þessum efnivið sem ég átti svo
ég ákvað að nýta tækifærið og gera
það fyrir þessa sýningu,“ segir hún
en á sýningunni verður hægt að
sjá línu af kjólum eftir Hrafnhildi.
„Til dæmis má sjá kjól sem var
saumaður úr gömlum gardínum,
og annan úr fallegu bómullarefni
sem ég fann í Rauðakrossbúðinni
í Mjódd.“
Hrafnhildur segist alltaf hafa
heillast af gömlum fatastíl og
heldur til dæmis mikið upp á bún-
ingamyndir. „Það sem heillar mig
við gamla handverkið er öll vinnan
sem liggur að baki. Hún krefst
þolinmæði og færni. Allt var gert í
höndunum og tók lengri tíma.“
Innt eftir sínum eigin stíl segir
hún hann fremur einfaldan. „Yfir-
leitt er ég bara í gallabuxum og bol
sem ég finn með flottu sniði. Ég
hef mjög mikinn áhuga á tísku og
hef gaman af því að fylgjast með
nýjustu tískustraumum en kaupi
mér samt ekki sérstaklega mikið
af fötum. Markmiðið er alltaf
að kaupa sjaldnar og vandaðri
fatnað. Þegar mamma var ung
vann hún heilt sumar og keypti
sér eina kápu og einn sumarkjól
fyrir sumarlaunin. Fötin voru látin
endast, voru margnýtt og jafnvel
saumaðar nýjar f líkur upp úr þeim
gömlu.“
Um sína uppáhaldshönnuði
segir Hrafnhildur: „Mér finnst
alltaf spennandi að skoða tísku-
sýningarnar, til dæmis hjá Maison
Margiela og Gucci. En svo fæ ég
tískuinnblástur úr ýmsum áttum,
til dæmis úr RuPaul’s Drag Race
eða gömlum búningamyndum.“
Sýningin Tvennir tímar stendur
til aprílloka.
Gamaldags
nútími
Gamlar blúndur frá langömmu leiddu
Hrafnhildi Halldórsdóttur fata-
hönnuð í rétta átt þegar hún undirbjó
sýninguna Tvennir tímar sem verður í
Borgarbókasafninu í Kringlunni.
Hrafnhildur Halldórsdóttir fatahönnuður sýnir kjóla í Borgarbókasafni í Kringlunni á HönnunarMars. MYND/STEFÁN
Það sem heillar
mig við gamla
handverkið er öll vinnan
sem liggur að baki. Hún
krefst þolinmæði og
færni.
Á sýningunni verður hægt að sjá línu af kjólum eftir Hrafnhildi
kr. 10.990.-
Nýjar vörur
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Vorjakkar // regnjakkar
Str. S-XXL
Litir: rautt, gult, blátt, grænt, svart, off white
kr. 12.990.-
kr. 10.900.-
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
FLOTT FÖT, FYRIR FLOTTAR KONUR
NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . M A R S 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
2
1
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
D
-0
6
0
C
2
2
9
D
-0
4
D
0
2
2
9
D
-0
3
9
4
2
2
9
D
-0
2
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K