Fréttablaðið - 21.03.2019, Qupperneq 50
Þórdís Helgadóttir hefur verið valin leikskáld Borgarleikhússins. „Ég er full af þakklæti fyrir að til sé tækifæri eins og þetta. Það er mikill
heiður að vera valin í þetta verkefni
og forréttindi fyrir nýjan höfund,“
segir Þórdís.
Þórdís er menntuð í heimspeki,
ritstjórn og ritlist. Smásagnasafn
hennar Keisaramörgæsir kom út
2018 og leikverkið Þensla var sýnt
í Borgarleikhúsinu fyrr á þessu ári
sem hluti af sýningunni Núna 2019,
í leikstjórn Kristínar Jóhannesdótt-
ur. Með Svikaskáldum hefur Þórdís
gefið út ljóðabókina Ég er ekki að
rétta upp hönd, og smásögur henn-
ar, ljóð, esseyjur og þýðingar hafa
birst víða í tímaritum og bókum.
„Þensla var fyrsta leikverkið mitt
og það var einstaklega gaman að
fá það sett upp í atvinnuleikhúsi,“
segir Þórdís.
Vill gera eitthvað nýtt
Þórdís gegnir stöðu leikskálds
Borgarleikhússins í eitt ár og mun
á þeim tíma vinna að verki sem
verður sýnt í leikhúsinu á þar-
næsta leikári. Hún sendi inn tvær
hugmyndir með umsókn sinni.
„Ég veit ekki enn hvor hugmyndin
verður ofan á,“ segir hún. „Bæði
verkin eru einhvers konar absúrd
drama, annað hefur ekki hlotið
nafn, hitt heitir Jamaica Farewell
Forréttindi fyrir
nýjan höfund
Þórdís Helgadóttir er leikskáld Borgar-
leikhússins. Verk eftir hana sýnt á þar-
næsta leikári. Vill gera eitthvað nýtt.
„Ég er full af þakklæti fyrir að til sé tækifæri eins og þetta,“ segir Þórdís. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
og fjallar um mæðgur í sólarlanda-
ferð í Karíbahafi.
Smásagnasafn Þórdísar, Keisara-
mörgæsir, sem kom út fyrir síðustu
jól, ber með sér að höfundurinn
hefur ríkt ímyndunarafl en sögurn-
ar eru á mörkum raunveruleika og
fantasíu. Þórdís er spurð hvort hún
hafi áhuga á að gera eitthvað svipað
í leikhúsi.
„Ég hef áhuga á að gera eitthvað
nýtt,“ segir hún. „Mig langar að gera
tilraunir og prófa mig áfram með
miðilinn. Mér finnst ég vera rétt
komin með tærnar á þröskuldinn á
stað sem býr yfir alls konar nýjum
verkfærum og möguleikum. Undan-
farið hef ég verið að lesa fjölmörg
verk og kynnast leikhúsforminu.
Einhvern veginn gerist það samt
yfirleitt sjálf krafa að verkin mín
enda á þessum óljósa stað mitt á
milli fantasíu og raunveruleika. En
við sjáum bara til.“
Heillandi form
Hún segir um leikhúsformið: „Þetta
er form sem mér finnst vera ótrúlega
heillandi því innan þess er hægt að
gera svo ótal margt, möguleikarnir
eru endalausir og allt í umgjörðinni
gerist fyrir framan mann. Ég hef
alltaf verið heilluð af vinnu sviðs-
listafólks og það gefur mér mikla
innspýtingu að fá að vinna með
því í návígi og kynnast nokkrum
leyndarmálum.“
Allt fyrir Hótel & veitingahús í
kælingu, frystingu
og meira til
Afgreiðslu- & kökukælar
Stálborð, vaskar, hillur og skáparKlakavélar
Vitamix blandarar
Hraðkælar & frystar Kæli- & fryskápar og borð
Hillukælar
Plaststrimlar í kæli- & frystiklefa
Vínkælar
Bar skápar
Minibarskápar
BarirKæli- & frystiklefar og allt
tilheyrandi
2 1 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R34 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
2
1
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
9
C
-E
D
5
C
2
2
9
C
-E
C
2
0
2
2
9
C
-E
A
E
4
2
2
9
C
-E
9
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K