Fréttablaðið - 21.03.2019, Page 52
AÐALFUNDUR
KRÝSUVÍKURSAMTAKANNA
2019
Haldinn að Strandgötu 43 Hafnarfirði
miðvikudaginn 3.apríl 2019 kl. 17.00
Dagskrá :
VENJULEG AÐALFUNDARSTÖRF
Stjórnin
Fimmt án ára af mæli Eternal Sunshine of the Spotless Mind er fyrir-taks tilefni til þess að rifja upp hversu mögnuð þessi kvikmynd er. Vill
líka svo skemmtilega til að hún
hverfist einmitt um minningar og
gleymsku. En þó fyrst og fremst
sársaukafullar minningar og ástar-
sorg sem er svo óbærileg að aðalper-
sónan, sem Jim Carrey lék sérlega
vel, var tilbúin til þess að nýta nýja
tækni til þess að láta fjarlægja þær
úr huga sínum.
Slíkt hið sama gerði fyrrverandi
kærastan, sem Kate Winslet lék.
Ástin og tilfinningarnar láta hins
vegar ekki að sér hæða og þegar
fyrrverandi kærustuparið hittist
aftur, algerlega ómeðvituð um að
þau áttu að baki fallegt samband
og erfiðan skilnað, fella þau hugi
saman aftur.
Auðvitað getur verið of boðslega
freistandi að fá frelsi frá þrúgandi
og erfiðum minningum með því
einfaldlega að láta þær hverfa. En
hvað erum við annað en minning-
arnar sem við burðumst með?
Gildi minninganna
Sennilega ekki mikið og í þeirri
erfiðu staðreynd leynist hinn fagri
kjarni þessarar fimmtán ára gömlu
myndar sem hefur staðist tímans
tönn svo vel að þau sem mögulega
eru búin að gleyma henni ættu að
horfa á hana aftur. Aðrir hafa ekkert
val. Þetta er mynd sem allir verða
Besta ástarsaga aldarinnar?
Fimmtán ár eru liðin frá frumsýningu þeirrar stórmerkilegu og undurfögru myndar Eternal Sunshine of
the Spotless Mind. Á þessum tímamótum vilja einhverjir hampa henni sem einni bestu mynd aldarinnar.
Kate Winslet og Jim Carrey fá að kenna á því í Eternal Sunshine of the Spotless Mind að ekki er hægt að flýja minningar, ástarsorg eða ástina.
Charlie Kaufman með verðskuld-
aðan Óskar fyrir handrit mögulega
einnar bestu myndar síðari tíma.
NORDICPHOTOS/GETTY
að sjá í það minnsta einu sinni á
ævinni. Með því skilyrði að þeir
gleymi henni ekki.
Persónu Winslet f innst
hún á tímabili vera að
hverfa vegna þess að hana
skortir minningar sem
hún áður átti og kvöldu
hana. Og þegar parið
er orðið ástfangið á
ný og endurheimtir
f y r r i m i n n i n g a r
ákveða þau samt að
taka sénsinn á öðrum
erfiðum sambands-
slitum. Vegna þess að
ástin er alltaf þess virði,
sama hvað gerist síðar.
Stóru spurningarnar
sem Eternal Sunshine of the
Spotless Mind krefur áhorf-
andann um svör við, eru einfald-
lega hvað gerist ef við sættum okkur
við ástarsorgina frekar en að óttast
hana. Hvernig væri að taka minn-
ingunum og sorginni bara sem
hluta af okkur sjálfum frekar en að
leggja á f lótta?
Kv i k my nd a g a g n r ý n a nd i n n
Roger Ebert heitinn endurskoðaði
dóm sinn um myndina 2010 og
bætti hálfri stjörnu við til þess að
hún fengi fullt hús. Sjálfur gaf ég
henni fimm stjörnur í Fréttablaðinu
á sínum tíma og get því ekki fjölgað
þeim þótt ég glaður vildi. En í til-
efni tímamótanna gef ég sjálfum
mér fimmtán ára gamalt orðið. Og
nú eins og þá er spurningarmerki í
fyrirsögninni:
Lækning við ástarsorg?
„Sambandsslit og skilnaðir geta
farið ansi illa með fólk og það eru
þá ekki síst minningarnar um þá
eða þann fyrrverandi sem valda
hugarangri og éta þá sem engjast í
ástarsorg upp að innan.
Í Eternal Sunshine of the Spot-
less Mind kemst Jim Carrey að því
að það er til skemmtileg og ódýr
lausn á þessu hvimleiða vanda-
máli; maður fer bara til læknis sem
hreinsar burt allar minningar hans
um fyrrverandi kærustuna sína.
Aðgerðin tekur eina nótt og þegar
hann vaknar mun hann ekki sakna
elskunnar sinnar, sem Kate Winslet
leikur, einfaldlega vegna þess að
fyrir honum hefur hún aldrei verið
til.
Það borgar sig að segja sem
minnst um innihald myndarinnar
en atburðarásin á sér að mestu stað
í huga aðalpersónunnar á meðan
hún sefur og horfir á minningar
sínar hverfa.
Sagan er eftir Charlie Kaufman
sem er án efa einn frumlegasti
handritshöfundurinn í Banda-
ríkjunum þessi misserin en hann
á að baki snilldarmyndirnar Being
John Malkovich og Adaptation. Þeir
sem þekkja til verka hans ættu því
að hafa nokkra hugmynd að því að
hverju þeir ganga hér. Hann er sem
fyrr að þvælast inni í kollinum á
persónum sínum og það kemur vel
í ljós hér að hann er orðinn býsna
f linkur í þessum hugarflækjum
þar sem Eternal Sunshine of the
Spotless Mind er töluvert betri
en fyrri myndirnar og þá er
heilmikið sagt.
Sagan er í eðli sínu flókin og
það hefði hæglega verið hægt
að klúðra henni en framsetn-
ingin er pottþétt, áferðin smart
og leikararnir svo góðir að það
klikkar ekkert.
Carrey sýnir heldur betur hvað
í honum býr og glansar í gegnum
hlutverk sitt, Kate Winslet og Eliah
Wood (ekkert hobbitalegur) eru
einnig traust en senuþjófurinn er
Mark Ruffalo sem er gersamlega
óþekkjanlegur frá því í In the Cut
og tekur af öll tvímæli um það að
hann er leikari í topp klassa.
Eternal Sunshine of the Spotless
Mind vekur upp margar spurningar
um ástina, hugsanir, minningar og
samskipti kynjanna. Hún svarar ef
til vill engu en minnir á hið forn-
kveðna að enginn veit hvað átt hefur
fyrr en misst hefur og að minning-
arnar eru það dýrmætasta sem við
eigum þó þær geti verið sárar.
Lækningin við ástinni og sorg-
inni sem getur fylgt henni finnst
sjálfsagt aldrei en þessi mynd getur
ýft upp sár hjá áhorfendum um leið
og hún veitir huggun með því að
sýna svo ekki verður um villst að
sársauki og söknuður er eitthvað
sem er óhjákvæmilegur fylgifiskur
þess að vera til.
Eternal Sunshine er hreinn gull-
moli í bíóf lórunni þessa dagana.
Mynd sem gleymist seint og býður
upp á endalausar vangaveltur fyrir
þá sem á annað borð nenna að pæla
í nokkrum sköpuðum hlut. Brilljant
mynd.“ thorarinn@frettabladid.is
2 1 . M A R S 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R36 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
BÍÓ
2
1
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:3
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
9
D
-0
1
1
C
2
2
9
C
-F
F
E
0
2
2
9
C
-F
E
A
4
2
2
9
C
-F
D
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K