Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2017, Page 2
2http://www.ætt.is
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2017
aett@aett.is
Útgefandi:
© Ættfræðifélagið
Ármúla 19, 108 Reykjavík.
= 588-2450
aett@aett.is
Heimasíða: http://www.ætt.is
Ritnefnd Fréttabréfs:
Guðfinna Ragnarsdóttir
= 568-1153
gudfragn@mr.is
Magnús Grímsson
= 899-8831
magnus@fa.is
Ritstjóri
Fréttabréfs:
Guðfinna Ragnarsdóttir
Laugateigi 4, 105 Reykjavík
= 568-1153
gudfragn@mr.is
Ábyrgðarmaður:
Benedikt Jónsson
for mað ur Ætt fræði fé lags ins
Prófarkalestur:
Magnús Grímsson
Umbrot:
Þórgunnur Sigurjónsdóttir
Efni sem óskast birt í blaðinu
berist umsjónar manni á
rafrænu formi (tölvupóstur/
viðhengi)
Prentun: GuðjónÓ
***
Fréttabréf Ættfræði-
félagsins er prentað í 450
eintökum og sent öllum
skuldlausum félögum. Verð
í lausasölu er 500 kr. Allt
efni sem skrifað er undir
nafni er birt á ábyrgð
höfundar. Annað er á
ábyrgð ritstjórnar.
***
Himinlifandi
Ég má til með að segja að ég varð himinlifandi við lestur síðasta Fréttabréfs
Ættfræðifélagsins, skrifar María Jóhannsdóttir í litlu bréfi sem hún sendi
Fréttabréfinu. Það sem gladdi hana svo mjög var grein Guðmundar
Sigurðar Jóhannssonar um hjónin Ingjald Sigfússon og Ásdísi Jónsdóttur
og dætur þeirra. María hafði lengi leitað forfeðra Guðlaugar, dóttur þeirra
hjónanna, en Guðlaug var langalangalangamma Maríu. Þar sem Guðlaug
var talin ættuð úr Bárðardal hafði María m.a. fengið Indriða Indriðason
ættfræðing til þess að leita forfeðranna, en án árangurs.
Í grein sinni rekur Guðmundur ættir Guðlaugar í marga liði og er það
að sjálfsögðu mikill fengur. María sendi Fréttabréfinu skemmtilega vísu
tengda þessum forfeðrum sínum. Talið er að Magnús Marteinsson hús-
maður á Drumboddsstöðum, sem var fæddur um 1715 og ættaður frá
Meðalholtum í Flóa, hafi farið norður í kaupavinnu og kynnst konuefni
sínu, Guðlaugu Ingjaldsdóttur, þar. Hún var fædd um 1743 og dáin 7. janú-
ar 1808 á Miðfelli í Þingvallasveit. Þótt aldursmunur þeirra Magnúsar væri
mikill, áræddi hann að biðja hennar og orðaði bónorðið á þessa leið:
Segðu mér það, svanni hreinn,
svör hver mundir veita,
ef sextugur yngissveinn
eftir gerði leita.
Vísan hreif. Sonur Magnúsar og Guðlaugar var Kristján hreppstjóri í
Skógarkoti í Þingvallasveit sem margir kannast við, þar sem hann er ein
aðalpersónan í bók Björns Th. Björnssonar, Hraunfólkið. Seinni mað-
ur Guðlaugar var Þorkell Jónsson bóndi á Miðfelli í Þingvallasveit. Sé
miðað við aldur Magnúsar í vísunni góðu stemmir það vel að Guðlaug
er flutt suður og sögð 29 ára við húsvitjun í Torfastaðaprestakalli í
Árnesprófastdæmi árið 1778.
Við þetta allt má bæta að fáir ef nokkrir ættfræðingar jafnast á við
Guðmund Jóhann Sigurðsson, og því ber að fagna hverri grein sem hann
sendir Fréttabréfinu. Hann hefur að öllum öðrum ólöstuðum nýtt sér bet-
ur legorðaskrár og dómabækur, skiptabækur og skjöl sem flestir sneiða
framhjá en gefa oft nauðsynlega og langþráða bita í ættarpúslið. Ritstjóri.
Til sölu
Halldór Halldórsson f.v. formaður Ættfræðifélagsins býður til sölu:
• Vestfirskar ættir 4 bindi 18 000 kr (Arnardalsætt og Eyrardalsætt)
• Orrastaðaætt 2000 kr
• Íslensk ættfræði eftir Kristínu H Pétursdóttur 3000 kr
• Frímúrarareglan á Íslandi 25 ára 20 000 kr
Allt góð eintök. Sími Halldórs er 567 2173
Munið Maí-
gönguna!