Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2017, Side 5

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2017, Side 5
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2017 http://www.ætt.is aett@aett.is5 Skálholtsstaður var í rúst. Reykjavík hafði þá öðl- ast kaupstaðarréttindi og til stóð að flytja bæði bisk- upssetrið og Skálholtsskólann til Reykjavíkur, auk Alþingis. Innan lóðamarka kaupstaðarins voru þá 39 hús og 167 íbúar. Hannes Finnsson Skálholtsbiskup kom að skipulagningu hins nýja biskupsseturs. Hann var bæði mjög efnaður og framsýnn maður og hann gerði sér lítið fyrir og keypti Skálholtið og fékk kon- ungsleyfi til að sitja þar áfram í sinni biskupstíð. Laugarnesið hafði hann erft árið 1787 eftir fjar- skylda frænku sína, Elínu Hákonardóttur, og hafði því ekkert á móti því að biskupssetrið yrði þar. Ekkert varð þó úr flutningi biskupsstólsins og sat Hannes í Skálholti til dauðadags árið 1796. Hann hafði þá ver- ið sjö ár í hjónabandi með seinni konu sinni, Valgerði Jónsdóttur. Á þeim var 32 ára aldursmunur. Hún var 18 ára og hann fimmtugur þegar þau gengu í hjónaband. Hún varð því ekkja 25 ára gömul. Þau Hannes voru frændsystkin, skyld að öðrum og þriðja. Valgerður fæddist 1771 á Seljalandi undir Vestur- Eyjafjöllum. Foreldrar hennar voru efnafólk og fað- irinn sýslumaður. Fyrri kona Hannesar var Þórunn, dóttir Ólafs Stephensens stiftamtmanns í Viðey, en hún var aðeins 16 ára er þau Hannes giftust. Hana missti hann rúmlega tvítuga. Þau Hannes og Valgerður eignuðust fjögur börn sem öll komust upp. Eldri dóttur sína skírðu þau Þórunni, eftir fyrri konu Hannesar. Hún giftist Bjarna Thorsteinssyni amtmanni og þeirra sonur var Steingrímur Thorsteinsson skáld og rektor. Engan hefði grunað að Þórunn Hannesdóttir, síðasta bisk- upsdóttirin í Skálholti, ætti eftir að verða tengdamóð- ir bláfátækrar stúlku, barnabarns Eiríks Hjörtssonar, ungs bónda í Laugarnesbænum, sem um aldamót- in 1800 stóð þar í kirkjugarðinum yfir moldum konu sinnar og ungrar dóttur á helköldum vetrardegi. Slík blöndun æðri og lægri stétta var nánast óhugsandi. Þessi fátæka, unga stúlka hét Guðríður Eiríksdóttir og var frá Stöðlakoti við Bókhlöðustíg. Hún átti eftir að verða seinni kona Steingríms Thorsteinssonar og eiga með honum fimm mannvænleg börn. Voldug og rík Valgerður biskupsfrú var systir Jóns Johnsen lögsagn- ara á Stóra-Ármóti, en hann var umboðsmaður kon- ungsjarða í Árnessýslu. Hún naut hans vel í viðskipt- um sínum þegar hún eftir lát Hannesar sankaði að sér jörðum, enda varð hún ein efnaðasta og voldugasta kona landsins. Ólafur Stephensen stiftamtmaður, fyrrverandi tengdafaðir Hannesar manns hennar, var henni einnig afar hollur ráðgjafi. Í tíu ára ekkjudómi sínum eftir lát Hannesar eignaðist hún 22 jarðir og rekaítök á tíu rekafjörum austan úr Öræfum og vestur á Strandir. Hún reisti einnig kirkju í Skálholti og var sú kirkja kölluð Valgerðarkirkja. Allt þetta sýnir að hér var enginn meðalmaður á ferð. Steingrímur Jónsson, seinni maður Valgerðar, var fræði- og lærdómsmaður. Hann hafði verið skrifari Hannesar biskups í Skálholti, en Hannes átti mikið safn gamalla rita. Steingrímur var mikill gáfumað- ur og einstakur námsmaður, hann lauk embættisprófi í guðfræði við háskólann í Kaupmannahöfn með ágætiseinkunn sumarið 1803. Hann var fyrsti rektor Bessastaðaskóla, prestur og prófastur í Odda og loks biskup yfir Íslandi. Foreldrar hans voru Jón Jónsson, prófastur á Mýrum í Álftaveri, síðar í Holti undir Eyjafjöllum, og kona hans, Helga Steingrímsdóttir. Hún var systir eldklerksins Jóns Steingrímssonar. Steingrímur biskup átti mikið safn handrita og bóka og var stórvirkur rithöfundur. Hann var frábærlega vel að sér í sögu landsins og einn lærðasti maður Íslands um sína daga. Jón Sigurðsson forseti var biskups- Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson gáfu Laugarnes- kirkjunni altaristöflu eða bænabrík. Hún er eini grip- urinn sem varðveist hefur frá Laugarneskirkju hinni fornu.

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.