Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2017, Side 8

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2017, Side 8
8http://www.ætt.is Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2017 aett@aett.is söngvari og kona hans Inga Valfríður Einarsdóttir frá Miðdal, systir Guðmundar listmálara og myndhöggv- ara, í Laugarnes, og bjuggu þar á fjórða áratug ásamt börnunum sínum sex og frægu, ljósu hrossunum sín- um, þar á meðal hinni landsfrægu Glettu. Yngri dóttir Sigurðar og Ingu er Þuríður söngkona og listmálari. Með tímanum færðist borgarbyggðin austur á bóg- inn, erfðafestulöndum var úthlutað og Laugarnesjörðin var tekin undir íbúðabyggð. Á stríðsárunum voru einnig mörg hús flutt í Laugarneshverfið þegar flug- völlurinn var byggður í Skerjafirði. Kampurinn Á stríðsárunum var reist stórt braggahverfi á Laugar- nestanganum, kallað Laugarneskampur. Árið 1941 tók síðan bandaríska setuliðið við Laugarneskampi, sem hýsti þá aðallega sjúkradeildir hersins auk skála hjúkrunarkvenna, yfirmanna og annarra hermanna. Kampurinn samanstóð af 100 bröggum og öðrum byggingum. Þegar umsvif bandaríska hersins drógust saman um 1945, var kampurinn nýttur sem íbúðarhúsnæði fyrir Íslendinga. Á árunum 1951-1957 voru íbúar flestir í kampinum eða um 300 manns. Þessi byggð setti um tíma mikinn svip á Laugarnesið en er nú horfin með öllu. Í einum bragganna bjó Sigurjón Ólafsson mynd- höggvari með fjölskyldu sinni. Þar var byggt listasafn sem ber nafn hans. Síðasti bragginn í Laugarnesi var rifinn árið 1980. Í dag er búið í fjórum húsum á svæðinu. Einn íbúanna er Birgitta Spur, ekkja Sigurjóns Ólafssonar. Hún er fædd á Fjóni og nam höggmyndalist við Konung legu listaakademíuna í Kaupmannhöfn. Við hlið Listasafnsins býr Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður og í þriðja húsinu, sem stendur enn sunnar á nesinu býr listakonan Kogga, Kolbrún Björgólfsdóttir, en eiginmaður hennar var Magnús Ólafur Kjartansson myndlistarmaður.. Saga Laugarnessins er orðin löng, saga þessa grágrýtistanga sem forðum myndaðist við eldgos í Mosfellsheiðinni eins og allur berggrunnur borg- arinnar og eyjarnar allar. Þar birtist okkur saga þjóð- arinnar í hnotskurn öld fram af öld. Kirkjugarðurinn, eina mannanna verkið sem enn sér glöggt stað aftan úr öldum, geymir íbúa þessarar jarðar í að minnsta kosti 800 ár. En allt er breytingum háð. Engir bátar liggja lengur í vörunum, söngur Sigurðar er þagnaður, líkt og hófatak Glettu, en listverk Sigurjóns prýða nesið þar sem aldan skellur á ströndinni, blíð og stríð, líkt og hún hefur gert frá ómuna tíð. Helstu heimildir: Brynleifur Tobíasson, Saga Laugarness gegnum aldirnar Lesbók Morgunblaðins 24. 12. 1943 Árni Magnússon og Páll Vídalín, Jarðabók. Árni Óla: Reykjavík fyrri tíma, 1. -3. bindi, 1984-1986. Bjarni F. Einarsson, Laugarnes. Greinargerð um fornleifar á Laugarnesi í Reykjavík, Rvík 1993. Bogi Benediktsson, Sýslumannaæfir, Rvík 1909- 1915. Einar Bjarnason, Lögréttumannatal, Rvík 1952. Eiríkur Briem, Árbók hins íslenzka fornleifafélags 1914, Landnám í Reykjavík... Jón Espólín, Ættartölubækur. Jón Helgason, Þegar Reykjavík var 14 vetra, Rvík 1916. Jón Helgason, Árbækur Reykjavíkur 1786-1936. Jón Helgason, Þeir sem settu svip á bæinn, Rvík 1941. Klemens Jónsson, Saga Reykjavíkur, Rvík 1929. Kvenfélag Laugarnessóknar 35 ára 1941-1976. Manntöl 1703, 1729, 1801, 1816 og 1845. Ministerialbækur Reykjavíkur 1769-1797. Ólafur Snóksdalín, Ættartölur I-III. Páll Líndal, Reykjavík Sögustaður við Sund, 1.- 4. bindi, Rvík 1986-1988. Páll Eggert Ólason, Íslenskar æviskrár, Rvík 1948-1976. Sálnaregistur Reykjavíkur 1784-1804. Sögublogg september 2014, Erla Hulda Halldórsdóttir sagnfræðingur Þorgrímur Gestsson, Mannlíf við Sund, Býlið, byggðin, borgin, Rvík 1998. Þór Magnússon, Laugarneskirkja hin forna, Afmælisrit Laugarneskirkju 1949-1989. Þórir Stephensen, Dómkirkjan í Reykjavík, Rvík 1996. Æviminningar Steingríms biskups Jónssonar Laugarneskirkjan, í núverandi mynd, er eitt af meistaraverkum Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins. Hún var reist á erfðafestulandi Kirkjubóls. Kirkjan var vígð 18. desember 1949. Laugarneskirkju er fyrst getið árið 1200 í kirknatali Páls Jónssonar Skálholtsbiskups. Hún stóð þá í sjálfu Laugarnesinu við kirkjugarðinn allt til 1794.

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.