Fréttablaðið - 10.05.2019, Side 52
KOMIN Í BÍÓ
Þó að hljómsveitin GÓSS sé ef laust ekki öllum kunn fer þar fram eitt hel st a stór skot a l ið íslensku tónlistarsen-unnar. Hljómsveitina
skipa þau Guðmundur Óskar Guð-
mundsson bassaleikari og söngvar-
arnir Sigurður Guðmundsson og
Sigríður Thorlacius. Nú hafa þau
tekið sig til og gefið út sitt fyrsta lag
en það er ábreiða af laginu Kossar
án vara eftir Bubba Morthens.
„Okkur langaði að taka lög sem
voru ekki endilega þau týpískustu.
Siggi kom með hugmyndina að
Kossum án vara, það var ekki beint
lagið sem lá beint við en þegar það
rifjaðist upp fyrir mér fannst mér
hugmyndin mjög góð. Þetta er ein-
mitt ekki hið augljósasta af lögum
Bubba að velja.“ segir Sigríður
Thorlacius, söngkona sveitarinnar.
Lagið kom upphaflega út á plöt-
unni Von árið 1992, en ábreiðu
GÓSS er ætlað að gefa tóninn fyrir
væntanlega plötu. Platan saman-
stendur af ábreiðum af íslenskum
dægurlögum sem eru í uppáhaldið
hjá meðlimum.
„Platan mun heita Góssentíð, sem
er smá leikur að orðum hjá okkur.
Hún kemur út með sumrinu, von-
andi frekar snemma í júní. Hún
kemur út á streymisveitum en líka á
geisladisk og vínyl. Við erum enn þá
að reyna að rembast eins og rjúpan
við staurinn að halda í vínylinn,
ég vil sjálf alltaf helst kaupa mér á
vínyl,“ segir Sigríður hlæjandi.
Sigurður og Sigríður eru meðal
þekktustu söngvara landsins og
þarf því vart að kynna þau. Sig-
urður var forsprakki hljómsveitar-
innar Hjálma og Sigríður söngkona
Hjaltalín, en bæði hafa þau blómstr-
að einnig sem sólólistamenn. Þau
hafa síðustu ár haldið saman jóla-
tónleika sem hafa notið gífurlegra
vinsælda.
„Guðmundur er reyndar alltaf
með á jólatónleikunum og hefur
spilað öll árin ásamt því að vera
hljómsveitarstjóri. En það er aðeins
Góssentíð
í sumar
Þrír af fremstu tónlistarmönnum lands-
ins skipa tríóið GÓSS. Þau voru að gefa út
ábreiðu af lagi Bubba Morthens. Í sumar
kemur fyrsta plata bandsins út.
Hljómsveitin GÓSS gaf út ábreiðu af lagi Bubba, Kossar án vara, nú á dögunum.
Upptaka plötunnar fór fram í Lágafellskirkju. MYND/OWEN FIENE
annar bragur á því, þar erum við
með stórsveit en GÓSS er lág-
stemmdari.“
Guðmundur Óskar er einn
fremsti bassaleikari landsins og
hefur leikið með fjölda hljóm-
sveita, en hann hefur einnig starfað
sem upptökustjóri. Guðmundur
var í Hjaltalín ásamt Sigríði en þeir
Sigurður eru bræður. Því er sann-
kallaður fjölskyldu- og vinabragur
á hljómsveitinni.
Nafn tríósins samanstendur af
fyrstu stöfunum í nöfnum með-
limanna. Hljómsveitin varð til sum-
arið 2017, en þá fór sveitin tónleika-
ferð um allt landið og endurtóku
þau svo leikinn síðasta sumar.
„Þetta er þriðja sumarið í röð sem
við förum á flakk, en í þetta skiptið
verður það með öðru sniði. Við
fórum hringinn fyrstu tvö skiptin
en núna gekk það ekki upp skipu-
lagslega séð. Svo við tökum þetta í
þremur pörtum í þetta skiptið. En
við förum mjög víða samt auðvitað.“
segir Sigríður að lokum.
Því fannst þeim tímabært að drífa
sig í upptökur en þær fóru fram í
Lágafellskirkju í Mosfellsbæ. Þar
tóku þau upp einar helstu dægur-
lagaperlur landsins, allt frá fornri
klassík yfir í Spilverk þjóðanna,
Nýdönsk og Stjórnina.
Hið nýja lag sveitarinnar, Kossar
án vara, er hægt að nálgast á öllum
helstu streymisveitum.
Meðfylgjandi eru myndir frá upp-
tökunum í Lágafellskirkju.
steingerdur@frettabladid.is
OKKUR LANGAÐI AÐ
TAKA LÖG SEM VORU
EKKI ENDILEGA ÞAU TÝPÍSK-
USTU. SIGGI KOM MEÐ HUG-
MYNDINA AÐ KOSSUM ÁN VARA,
ÞAÐ VAR EKKI BEINT LAGIÐ SEM
LÁ BEINT VIÐ EN ÞEGAR ÞAÐ
RIFJAÐIST UPP FYRIR MÉR
FANNST MÉR HUGMYNDIN MJÖG
GÓÐ. ÞETTA ER EINMITT EKKI
HIÐ AUGLJÓSASTA AF LÖGUM
BUBBA AÐ VELJA.
1 0 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
1
0
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
F
8
-3
1
9
C
2
2
F
8
-3
0
6
0
2
2
F
8
-2
F
2
4
2
2
F
8
-2
D
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
9
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K