Fréttablaðið - 10.05.2019, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 10.05.2019, Blaðsíða 48
 ANNARS SKILUR MAÐUR EINNA SÍST SJÁLFUR HVERT UNDIRMEÐ- VITUNDIN ER AÐ FARA, MAÐUR VERÐUR BARA AÐ TREYSTA HENNI. KLOF & PRÍ$ er yfir-sk r i f t m á l ve rk a-s ý n i n g a r H a l l -g r íms Helgasonar sem verður opnuð í dag, föstudaginn 10. maí, í Tveimur hröfnum á Bald- ursgötu og stendur til 8. júní. „Þetta eru málverk og teikningar sem mér tókst að vinna í vetur, einkum nú á útmánuðum. Ég held að það séu 14 málverk og yfir 40 teikningar á sýningunni,“ segir Hallgrímur. „Nánast allar þessar myndir eru af einhvers konar pörum, karli og konu yfirleitt, og í þessum sam- böndum hefur greinilega eitt- hvað gerst eða er að fara að gerast. Eitthvað sárt og dramatískt. Ég er búinn að vera upptekinn af þessu mótífi í nokkur ár og var búinn að finna enska titilinn á þetta: Women hungry, Men Angry. Hins vegar tókst mér ekki að þýða hann yfir á íslensku, þannig að úr varð annar titill sem vísar kannski í f leiri áttir en hinn: KLOF & PRÍ$.“ Þrúgandi og frelsandi Verkin eru innblásin af MeToo og skoðanir listamannsins á þeirri byltingu eru sterkar og afdráttar- lausar og sjálfur hefur hann sára sögu að segja. „Það má segja að ég stilli trönunum upp á bökkum MeToo-f ljótsins og máli útsýnið þaðan, þetta er svona mín sýn á þjóðfélagið eins og það stendur núna, einkum þessi kynjaátök sem maður skynjar í samtímanum: Framsækni femínista mætir þrota- reiði feðraveldisins, brotaþolar burðast með drauga fortíðar, ger- endur neita eða gráta og meðvirkir makar stara út í tómið. Mér finnst Málað á bökkum MeToo-fljóts Hallgrímur Helgason sýnir málverk og teikningar í Tveimur hröfnum.  Málar sína sýn á samfélag þar sem kynjaátök eru áberandi. Segir MeToo magnað fyrirbæri. Myndirnar eru af pörum og í þessum samböndum hefur eitthvað gerst eða er að fara að gerast. þessi MeToo-bylting alveg magnað fyrirbæri, og sjálfsagt spilar þar einnig inn í mín eigin reynsla. Fyrir nokkrum árum kom ég út með kynferðisof beldi sem ég varð fyrir ungur, skápaopnun sem reyndist mér bæði þrúgandi og frelsandi í senn. Og stundum held ég að ég sé að mála beint út frá þeirri reynslu, bæði nauðguninni sjálfri og eftir- málunum sem urðu þegar ég sagði frá henni. Annars skilur maður einna síst sjálfur hvert undirmeð- vitundin er að fara, maður verður bara að treysta henni. Fyrir rúmu ári var ég einnig svo heppinn að vera á Manhattan þegar kvennagangan mikla, Women’s March, fór fram. Að sjá þessar milljón raddir rísa úr djúpinu var Nú yfirgef ég ytri heiminn og hverf inn í mig; mála bara beint á strigann, allt óplanað og í hreinni óvissu, segir Hallgrímur Helgason. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ekkert minna en stórfenglegt. MeToo-bylgjan er Franska bylting okkar daga og áhrifa hennar mun gæta næstu 200 árin. Tuðið gegn henni mun ekki koma neitt betur út í ljósi sögunnar en ramakvein franska aðalsins á sínum tíma. En sagan mun einnig dæma illa þá sem ganga of hart fram í nafni nýrra tíma.“ Undirmeðvitundin leiðir Á vissan hátt er Hallgrímur á nýjum slóðum í þessari sýningu sinni. „Á síðustu sýningum mínum hefur realisminn ráðið ríkjum en nú yfirgef ég ytri heiminn og hverf inn í mig; mála bara beint á strigann, allt óplanað og í hreinni óvissu, með sömu aðferð og ég hef teiknað í gegnum árin. Undirmeð- vitundin leiðir og fær langan taum frá yfirvitundinni. Ætli það sé ekki sextugsaldurinn, maður nennir ekki lengur að setja sig í einhverjar stellingar og leyfir sínu innra rugli að f læða óhindrað á strigann. Fyrir vikið eru verkin sjálfsagt skrýtin í augum sumra, en svona er maður nú bara. Fyrir málarann í manni er þetta hins vegar bara hátíð, og gleðin og af köstin eftir því. Eina vandamálið er að vita hvenær maður á að hætta, eins og Kristján heitinn Davíðsson sagði.“ 1 0 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R20 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 1 0 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 F 8 -4 A 4 C 2 2 F 8 -4 9 1 0 2 2 F 8 -4 7 D 4 2 2 F 8 -4 6 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 9 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.