Fréttablaðið - 10.05.2019, Síða 33
Í sveitinni eru góð
gistihús, kaffihús
og veitingastaðir ásamt
jóga, hestaleigum, frá-
bærum gönguleiðum,
fallegri náttúru og sólar-
musteri svo fátt eitt sé
nefnt.
Finnur Yngvi Kristinsson
sveitarstjóri
Finnur Yngvi Kristinsson, sveitarstjóri í Eyjafjarðar-sveit, segir að ferðaþjónustan
sé öflug, jafnt fyrir innlenda sem
erlenda ferðamenn. „Í sveitinni eru
góð gistihús, kaffihús og veitinga-
staðir ásamt jóga, hestaleigum,
frábærum gönguleiðum, fallegri
náttúru og sólarmusteri svo fátt
eitt sé nefnt,“ segir Finnur og bætir
við að útivistarstígnum á milli
Hrafnagils og Akureyrar hafi verið
ákaflega vel tekið en hann var
tekinn í notkun síðastliðið haust.
„Það er orðið feikivinsælt að ganga
eða hjóla um stíginn allt árið um
kring. Leiðin liggur meðfram Eyja-
fjarðará og er gríðarlega falleg en
þar má sjá ána liðast niður farveg
sinn innan um notalegt landslag
sveitarinnar,“ segir Finnur. „Við
stefnum á að finna fallegan góð-
viðrisdag til að vígja formlega
útivistarstíginn okkar og gera úr
því skemmtilega uppákomu í júní.
Það er alltaf gaman þegar gott fólk
kemur saman,“ segir hann.
„Þegar stígurinn er genginn má
sjá dýralíf, fallega náttúru og dug-
lega heimamenn á ferð sinni um
stíginn í bland við ferðalanga ann-
ars staðar að af landinu. Við syðri
enda stígsins er Hrafnagilshverfi
með frábæra og fjölskylduvæna
sundlaug, skemmtilegt leiksvæði
og fallegan skógarlund. Þar má
einnig finna hinn geysivinsæla
Jólagarð sem sett hefur svip sinn á
ferðaþjónustu á Norðurlandi um
langt árabil.“
Sex kirkjur
Þegar Finnur er spurður um sér-
stöðu sveitarinnar, segir hann:
„Eyjafjarðarsveit á reyndar stærstu
kerlingu landsins en hún gnæfir
bústin og mikil yfir bónda sínum
sem stendur örlítið norðar. Kerling
er hæsta fjall Norðurlands og er
1.583 m há og er stórbrotið útsýni
þaðan. En að öllu gamni slepptu
þá er þetta útivistaparadís fyrir
alla þá sem vilja ganga og hjóla eða
bara njóta íslenskrar náttúru.
Það er einnig óhætt að segja að
kirkjurnar í Eyjafjarðarsveit séu
aðdráttarafl út af fyrir sig en þær
eru sex talsins og hver annarri
fallegri. Eitt sem vert er að nefna
er Smámunasafnið en það er ótrú-
legt að ganga þar um og skoða þá
muni sem þar eru. Þangað koma
margir gestir á hverju ári af öllum
þjóðernum og f lestir finna þar
hluti sem þeir kannast við og hafa
mikið gaman af að velta þessu
merkilega safni fyrir sér,“ segir
Finnur og minnir á alla skemmti-
legu matsölustaðina á Eyjafjarðar-
svæðinu.
Gaman í Kaffi Kú
„Það er í algjöru uppáhaldi hjá
krökkunum mínum að koma á
Kaffi Kú en þar er lögð áhersla á að
nota hráefni sem gert er á býlinu
sjálfu. Þar er hægt að fylgjast með
kúnum meðan þær eru mjólkaðar
á nútímavæddu kúabúi og rölta
svo í fjósið til að komast í enn
meiri nánd við kýrnar. Í Holtseli
fær maður síðan heimagerðan ís
sem er með þeim allra besta og ég
er mikill ísmaður. Þar er líka frá-
bært umhverfi. Lambinn er einnig
að gera góða hluti bæði í gistingu
og mat og leggur áherslu á mat úr
héraði og ekki má gleyma Brúnir
Horse, kaffihús þar sem hægt er að
njóta bæði listar og hestasýninga.
Búið er að opna Hælið á Kristnesi
en það er setur um sögu berklanna
og í leiðinni skemmtilegt kaffihús.
Allir þessir staðir setja metnað
sinn í heimalagað kruðerí. Vin-
sælustu stoppin eru Kaffi Kú og
Jólagarðurinn en ég held að ferða-
mennirnir séu almennt að sækja í
karakter sveitarinnar. Það er svo
margt í boði hér á litlu svæði og
mikið að sjá og margs að njóta.“
Handverkshátíðin 2019
Undirbúningur fyrir Handverks-
hátíð 2019 er á fullu og hefur
aðsókn sýnenda stóraukist milli
ára. „Það eru mjög flottar stelpur
sem tóku að sér framkvæmda-
stjórn núna og munu stýra
skútunni að minnsta kosti næstu
þrjú árin, þær Kristín Anna og
Heiðdís Halla sem eiga jafnframt
og reka fyrirtækið Duodot á Akur-
eyri en þær brenna af ástríðu fyrir
verkefninu og því ljóst að hátíðin
mun vaxa og dafna skemmtilega á
næstu árum. Ég fæ þann heiður að
sitja sem formaður nefndar fyrir
þetta stórskemmtilega verkefni og
hlakka mikið til að sjá afrakstur-
inn í sumar og get lofað því að
gestir verða ekki síður ánægðir en
fyrri ár,“ segir Finnur.
Fjölbreytt flóra
„Það er alveg frábært að sjá þá
fjölbreyttu flóru sem hér er í boði
en það má finna bæði hótel og stór
gistihús sem og litlar perlur eins og
Íslandsbæinn. Ég leit þangað inn
fyrir skömmu fyrir forvitni sakir,
hann er í Hrafnagili og hreif mig
verulega. Það hefur virkilega verið
vandað til verka þar og hugað að
öllum smáatriðum. En það er ein-
mitt mín upplifun af öllum þeim
ferðaþjónustuaðilum sem ég hef
hitt hér í sveitinni, þeir leggja sig
alla fram og veita þjónustu sína af
innlifun og ástríðu.“
Hægt er að fræðast meira um
Eyjafjarðarsveit á heimasíðunni
www.esveit.is
Ævintýrin gerast í Eyjafirði
Ferðaþjónusta í Eyjafjarðarsveit hefur vaxið mikið á undanförnum árum. Margir þjónustuaðilar
eru í sveitinni og flestir geta fundið eitthvað við hæfi. Á Hrafnagili er flott tjaldsvæði og sundlaug.
Það er margt áhugavert að finna fyrir börnin í Eyjafjarðarsveit.
Það er alltaf skemmtilegt fyrir fjölskylduna að koma í Kaffi Kú. Jólagarðurinn dregur að sér marga ferðamenn, bæði innlenda og erlenda.
Jólin eru allan ársins hring í Jólahúsinu. Það er ævintýri líkast að kíkja inn
í Jólahúsið og hægt að láta sig dreyma og hlakka til næstu jóla.
Finnur Yngvi
Kristinsson,
sveitarstjóri
Eyjafjarðar-
sveitar.
KYNNINGARBLAÐ 15 F Ö S T U DAG U R 1 0 . M A Í 2 0 1 9 LANDSBYGGÐIN
1
0
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
8
-4
F
3
C
2
2
F
8
-4
E
0
0
2
2
F
8
-4
C
C
4
2
2
F
8
-4
B
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
9
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K