Fréttablaðið - 10.05.2019, Síða 32
Dimmuborgir eru heimsþekktur viðkomustaður. Þar er nú búið að malbika
nokkra stíga og er stórkostlegt að labba um borgirnar í góðu veðri.
Mývatnssveitin er æði – allan sólahringinn,“ sungu Hljómar forðum
daga um eina fegurstu sveit
landsins. Enginn efast um nátt-
úrufegurðina en sveitin hefur
margt að bjóða annað en náttúru-
fegurðina.
Jarðböðin eru einstök og búin
að skipa sér sess í hugum lands-
manna. Fuglasafn Sigurgeirs er
magnaður viðkomustaður, Víti,
Hverfjall og Dimmuborgir, Höfði
og tökustaðir Game of Thrones.
Þetta eru allt þekktar stærðir sem
f lestir kannast við. Þeir sem ekki
þekkja ættu að skella sér norður
og kynnast þessum undrum því
þetta er ekki allt.
Jólasveinarnir eru úr Dimmu-
borgum og þar má finna helli
jólasveinanna. Í Vogafjósi er
dásamlega framreiddur matur og
hægt að borða í návist kvíga og
nauta. Anton í GeoTravel tekur á
móti öllum sem vilja kíkja í Loft-
helli. Gísli Rafn og Mývatn Tours
keyra alla upp að Öskju sem það
vilja. Einstakur viðkomustaður.
Fyrir þá sem vilja sjá fegurðina úr
lofti er Mýf lug með ferðir.
Kvikmyndir og sjónvarpsþættir
hafa leitað í Mývatnssveit. Fast
8 var tekin þarna upp og Game
of Thrones valdi sveitina til að
vera „handan veggjarins“. Þeir
sem vilja sjá Grjótagjá þar sem
Jon Snow og Ygritte elskuðust svo
innilega geta það auðveldlega þó
að vatnið sé of heitt til að baða sig
í. Heimamenn baða sig í gjánni
þar við hliðina á en henni hefur
verið læst vegna átroðnings.
Fjölmörg hótel eru í sveitinni og
nóg af tjaldstæðum. Edda Hrund,
hótelstýra á Hótel Laxá, tekur á
móti öllum sem vilja með sínu
fallega brosi og Fosshótel hefur
slegið í gegn. Icelandair hefur
einnig nýverið tekið Hótel Reyni-
hlíð í gegn og þar er gott að vera.
Þótt sveitin sé smá dugar varla
helgarferð því margt er enn óupp-
talið.
Góður dagur
í Mývatnssveit
Fegursta sveit landsins, Mývatnssveit, tekur gestum
opnum örmum. Þar er margt að skoða, hægt að borða
dýrindismat og drekka öl á einum af börum sveitarinnar.
Mynd sem birtist á forsíðu Fréttablaðsins og vakti mikla lukku. Fyrir neðan má sjá jólasveinana í Dimmuborgum
Það er margt að sjá og skoða í Mý-
vatnssveitinni hvert sem litið er.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur
www.skeidgnup.is | sími 486-6100
netfang: skeidgnup@skeidgnup.is
Nútímaleg sveit með blómlegri byggð, náttúruperlum og
ægifögrum Þjórsárdal þar sem eru Háifoss, Hjálparfoss og Stöng.
Skammt frá er tignarlegur Gaukshöfðinn.
Notalegir þéttbýlisstaðir eru á Brautarholti,
við Árnes og blómleg byggð.
Sterkir innviðir og gott mannlíf.
Í S L A N D
Skoðaðu 170 gististaði um allt land á hey.is
Njóttu kyrrðar
og upplifana
í sveitinni.
14 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RLANDSBYGGÐIN
1
0
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
F
8
-4
0
6
C
2
2
F
8
-3
F
3
0
2
2
F
8
-3
D
F
4
2
2
F
8
-3
C
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
9
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K