Mosfellingur - 10.01.2019, Blaðsíða 2

Mosfellingur - 10.01.2019, Blaðsíða 2
Í þá gömlu góðu... héðan og þaðan MOSFELLINGUR www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is Næsti Mosfellingur kemur út 31. janúar Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is Ritstjórn: Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is Prentun: Landsprent. Upplag: 4.500 eintök. Dreifing: Pósturinn. Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf. Próförk: Ingibjörg Valsdóttir Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag. Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti. Í fjórtánda skipti veljum við nú Mosfelling ársins. Fjölmargar tilnefningar bárust okkur og fyrir valinu varð Óskar Vídalín faðir Einars Darra sem lést eftir neyslu lyfsseðilsskyldra lyfja. Það hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með hvernig aðstandendur hafa tekið málin í sínar hendur og hrundið af stað þjóðarátaki sem tekið er eftir. „Ég á bara eitt líf“ eru svo sannar- lega orð að sönnu. Uppskeruhátíð Aftureldingar var haldin á milli hátíðanna. Við á bæjarblaðinu þökkum auðmjúk fyrir þá viðurkenningu sem blaðið fékk. „Samstarfsviðurkenning fyrir frábær- an stuðning og samstarf á liðnum árum.“ Takk. Ég held ég geti fullyrt að ekki hafi komið út Mosfellingur í 16 ár án þess að þar sé fjallað um íþróttaafrek okkar fólks í bæjarfélaginu. Aftur- elding er sameiningartákn okkar Mosfellinga og við eigum að vera stolt af ungmennafélaginu okkar sem verður 110 á árinu. Ó, UMFA, við elskum þig! Viðurkenning Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings www.isfugl.is Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is) þrettándinn í Mosfellsbæ Enn eitt árið er runnið í aldanna skaut. Mosfellingar og gestir þeirra hafa í áratugi haldið þeim góða sið að safnast saman í brekkurnar neðan Holtahverfis við Leirvog á þrettándanum. Dagskrá er nokkuð hefðbundin frá ári til árs. Myndin er frá árinu 1988 en þá stigu álfameyjar fagran dans við bálið. Þekkja má systurnar Hildi og Diljá Oddsdætur, sem áttu heima á Teigunum á þessum árum. Mynd: Mosfellspósturinn - Frítt, frjálst og óháð bæjarblað2 Fasteignasala Mosfellsbæjar • Kjarna • Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • S. 586 8080 • fax 586 8081 • www.fastmos.is • Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.