Mosfellingur - 10.01.2019, Blaðsíða 8

Mosfellingur - 10.01.2019, Blaðsíða 8
STÓLAJÓGA Kynning verður á stólajóga fimmtudag- inn 10. janúar kl. 13:30 í borðsal Eirhamra. Kennari verður Edit Ólafía. Áætlað er að kennt verði á þriðjudögum kl. 13:00. Edit mun kynna hvernig þetta gagnast okkur og hvernig hún setur upp tímana. Þess má geta að stólajóga hentar eldri borgurum einstaklega vel. Endilega komið og kynnið ykkur málið :) Opið hús/menningarkvöld Fyrsta opna húsið/menningarkvöld ársins verður í Hlégarði mánudaginn 14. janúar 2019 kl. 20:00. Þar mun karlakórinn Gamlir Fóstbræður flytja okkur þekkt karlakórslög, flest eftir íslensk tónskáld. Stjórnandi Árni Harðar- son og einsöngvari Þorgeir J. Andrésson Kaffinefndin verður svo með sitt rómaða kaffihlaðborð að venju. Aðgangseyrir er kr. 1.000 og þarf að greiða með peningum þar sem ekki er posi á staðnum  Menningar-ogskemmtinefndFaMos Félagsvist Félagsvistin byrjar aftur 11. janúar kl. 13:00 og er spiluð alla föstudaga kl. 13:00. Aðgangseyrir er 600 kr og innifalið er kaffi, meðlæti og kannski vinningur ef heppnin er með þér. Hreyfing Vatnsleikfimi byrjar 7. janúar kl 11:20 í Lágafellslaug. Munið að koma tímanlega til að ganga frá skráningu og greiðslu, ekki posi á staðnum. Ringó byrjar 8. jan. Boccia 9. jan. Leikfimi hjá Karin á Eirhömrum byrjar 10. janúar. Kveðja,íþróttanefnd. PÚTT – PÚTT – PÚTT Eins og undanfarin ár verður FaMos með vikulegar púttæfingar frá áramótum til vors undir stjórn Karls E. Loftssonar. Æfingarnar hefjast fimmtudaginn 10. janúar kl. 13:00 í vélaskemmu Golfklúbbs Mosfellsbæjar á Blika- staðanesi. Pútterar og golfboltar eru á staðnum fyrir þá sem þess þurfa með. Gler/leir námskeið Loksinslauspláss Sívinsælu gler/leir námskeið Fríðu byrja aftur miðjan janúar og er laust á fimmtudögum kl. 10:30-14:30. Kennari er Fríða Sigurðardóttir sem hefur í mörg ár kennt glervinnslu og leirvinnslu hjá eldri borgurum. Endilega skráið ykkur í síma 6980090 eða á elvab@mos.is Skáldið og sveitin Félag aldraðra í Mosfellsbæ (FaMos) gengst fyrir námskeiði á Eirhömrum í jan- úar og febrúar þar sem fjallað verður um tengsl Hallórs Laxness við Mosfellssveit. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 22. janúar og kennt verður fjóra þriðjudaga í samfellu klukkan 17:00 – 18:50 og þegar nær dregur vori verður haldið á slóðir skáldsins Mosfellsdal. Kennari verður Bjarki Bjarnason. Þátttaka tilkynnist til Benedikts St. Steingrímssonar, formanns Menningar- og skemmtinefndar FaMos í síma 864 9409 eða á netfangið bs@isor.is. Áætlað þátttökugjald er 8.000 krónur. Gaman saman Byrjar aftur 31. janúar kl. 13:30 í borðsal Eirhamra. Vetrarfegurð Fimmtudaginn 24. janúar ætlar Úrsúla Jünemann að vera með ljósmyndasýn- ingu á skyggnutjaldi í borðsal kl 13:30. Sýndar verða fallegar myndir frá kalda árstímanum sem Úrsúla hefur tekið. Námskeiði í módelsmíði Lausplássloksins-vor2019 Ýmiss módelverkefni gætu komið til greina t.d. bátar, brýr, hús og raunar hvað sem áhuginn beinist að. Þeir sem hafa áhuga eru beðnir um að senda póst á elvab@mos.is ásamt nafni og símanúm- eri. Kennt er mánudaga og föstudaga frá kl. 13:00. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Gústaf Guðmundsson - Fréttir úr bæjarlífinu8 Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu Skrifstofa félagsstarfsins er opin alla virka daga kl. 13–16. Sími félags- starfsins er 586-8014. Forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ er ElvaBjörgPálsdóttir tómstunda- og félagsmálafræðingur, s: 698-0090. Skrifstofa FaMos á Eirhömrum er opin alla fimmtudaga frá 15–16. Ingólfur Hrólfsson formaður s. 855 2085 ihhj@simnet.is Úlfhildur Geirsdóttir varaformaður s. 8965700 bruarholl@simnet.is Pétur Guðmundsdóttir gjaldkeri s. 868 2552 peturgud@simnet.is Jón Þórður Jónsson ritari s. 856 3405 jthjons@simnet.is Snjólaug Sigurðardóttir meðstjórnandi s. 897 4734 snjolaugsig@simnet.is Halldór Sigurðsson varamaður s. 893 2707 dori007@simnet.is Kristbjörg Steingrímsdóttir varamaður s. 898 3947 krist2910@gmail.com STJÓRN FAMOS FéLAG ALdRAðRA í Mosfellsbæ og nágrenni famos@famos.is www.famos.is Risa þorrablót UMFA haldið 26. janúar Þorrablót Aftureldingar 2019 fer fram laugardaginn 26. janúar í íþróttahúsinu að Varmá. Miða- sala og borðaúthlutun fer fram föstudaginn 18. janúar á veitinga- staðnum Blik. „Mikil stemning hefur myndast í forsölunni en eins og áður er eingöngu hægt að taka frá sæti gegn keyptum miða. Uppselt hefur verið á þorrablótið undanfarin ár. VIP borðin sem eru 10 manna hringborð eru komin í sölu en þeim fylgja fljótandi veigar og fleiri forréttindi,“ segir Ása Dagný nýkjörin vinnuþjarkur Aftureldingar og nefndarmaður í þorrablótsnefnd Aftureldingar. Dagskráin verður með hefðbundnu sniði, Geiri í Kjötbúðinni sér um veislumatinn sem samanstendur af heitum og köldum þorramat ásamt heil- grilluðu lambalæri. Tríóið Kókos ábyrgist söng og almenna gleði og kynnir kvöldsins er Þorsteinn Hallgrímsson. Eurobandið með Regínu Ósk, Friðrik Ómar og Selmu Björns í fararbroddi leikur svo fyrir dansi fram á nótt. Blótið er stærsta fjáröflun barna og unglingastarfs handbolta- og knattspyrnudeildar Aftureldingar. Allar upplýsingar um blótið má finna á Facebook-síðu Þorrablóts Aftureldingar. mest lesnu fréttirnar á mosfellingur.is árið 2018 Vilja opna á umræðuna og nálgast verkefnið í kærleika Einar Darri Óskarsson lést á heim- ili sínu í Hvalfjarðarsveit þann 25. maí síðastliðinn. Einar Darri var aðeins 18 ára gamall en dánarorsök hans var lyfjaeitrun vegna neyslu á lyfinu OxyContin. Fjölskylda og vinir Einars Darra hafa stofnað minningarsjóð í hans nafni sem ætlaður er fyrir ýmis forvarnaverkefni og varpa ljósi á þann allsherjar vanda sem misnotkun á lyfjum er hér á landi og þá sérstaklega á meðal ungmenna, allt niður í nemendur í grunnskóla... Uppbygging hafin á kaupfélagsreitnum Framkvæmdir eru nú hafnar við Bjarkarholt 8-20 sem kallað hefur verið kaupfélagsreiturinn. Vinna við niðurrif sjoppu og gamla kaupfélagsins er hafin og skipulagsnefnd og bæjarstjórn hafa samþykkt byggingaráformin og byggingarleyfisumsókn er nú í yfirferð hjá embætti byggingarfulltrúa. Miðað er við að á reitnum rísi fjögur fjölbýlishús á þremur til fimm hæðum. Gert er ráð fyrir allt að 65 íbúðum fyrir 50 ára og eldri og verslunarrými á götuhæð einnar byggingarinnar... Heimurinn hreinlega hrundi við þessar fregnir Júlía Rut Lárusdóttir Mønster greindist með bráðahvítblæði árið 2017 aðeins þriggja ára gömul. Föstudagurinn 15. september 2017 byrjaði eins og allir aðrir dagar hjá fjölskyldu Júlíu Rutar sem býr í Klapparhlíðinni. Börnin fóru í skólann og foreldrarnir til vinnu en stuttu síðar fékk faðirinn símtal frá leikskólan- um um að Júlía væri komin með hita svo hún var sótt og farið var með hana heim... Á www.mosfellingur.is eru birtar helstu fréttir úr blaðinu 4. desember 21. ágúst 8. júlí 3 2 1 Narnía í leikhúsinu - fjórar sýningar eftir Sýningar á ævintýraleikritinu Narn- íu halda áfram hjá Leikfélagi Mos- fellssveitar í janúar, en uppselt var á allar sýningar fyrir jól. Leikritið sem er byggt á bókinni Ljónið, nornin og skápurinn eftir C.S. Lewis fjallar um fjögur börn sem í leik opna gamlan fataskáp sem svo leiðir þau inn í töfralandið Narníu. Narnía er í klakaböndum og börnin verða að kljást við hina hræðilegu hvítu norn til að leysa landið úr álögum. Leikstjóri er Agnes Wild og Eva Björg Harðardóttir hannar búninga og leikmynd. Aðalhlutverkin eru í höndum fimm ungra og efnilegra leikara, þeirra Silju Högnadóttur, Arnbjörns Ólafssonar, Guðbjörns Dagbjartssonar, Kristínar Péturs- dóttur og Úlfhildar Jónsdóttur. Aðeins fjórar sýningar eru eftir í jan- úar og er miðasala í síma 566 7788. ALVÖRU ÚTSALA Í MÚRBÚÐINNI Reykjavík Kletthálsi 7. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-16 Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-14 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Afslættir gilda til 31/1/2019 aðeins á auglýstar vörur og á meðan birgðir endast. Stingsög - Sverðsög 12V Skrúfvél 12V Fjölno tatæki 300W Verðdæmi: Deka Projekt 10L, Gljástig 10. St.A Verð nú 4.793kr. Verð áður 6.390 kr. af allri málningu BLÖNDUM ALLA HEIMSINS LITI Lutool Combo Kit allt settið aðeins 11.243 Áður kr. 14.990 Olíufylltur rafmagnsofn 2000W Verð nú 5.943 Áður 8.490 kr. 30% AFSLÁTTUR Lutool rafhlöðuborvél 24V Li-Ion Verð nú 8.704 Áður 10.880 kr. 20% AFSLÁTTUR 25% AFSLÁTTUR Drive slípirokkur 115mm 910W Verð nú 2.995 Áður 5.990 kr. 50% AFSLÁTTUR BOZZ- LH2202 Hitastýrt sturtutæki með niður eða uppstút (rósettur fylgja) 7.112 Áður kr. 8.890 20% AFSLÁTTUR af öllum Supacell LED perum Verð frá 236 kr. 20% AFSLÁTTUR 25% AFSLÁTTUR 25-40% AFSLÁT TUR Spandy 1200W Cyclone pokalaus heimilsryksuga 4.395 Áður 8.790 kr. 50% AFSLÁTTUR Geymslubox og kassar. Margar stærðir. Verð nú frá 218kr. MIKIÐ ÚRVAL Rafmagnshitablásari 2Kw Verð nú 1.592 Áður 1.990 kr. Rafmangshitablásarar 2kW. til 15kW Verð nú frá kr. 5.592 20% AFSLÁTTUR Tu-RWL0430W LED vinnuljós 30W m/ hleðslubatteríi Verð nú 5.994 Áður 9.990 kr. 40% AFSLÁTTUR Oulin Florens eldhústæki Verð nú 7.729 Áður 11.890 kr. 35% AFSLÁTTUR Delta vinnuföt - mikið úrval af flottum vönduðum fötum 20% AFSLÁTTUR Egematur Aria 3.996 Verð áður 4.995 20% AFSLÁTTUR Verðdæmi: Plastkassi 52L m/hjólum og loki Verð nú 1.343kr. Verð áður 1.790 kr. Vatnsheld úlpa. Verð nú: 9.592 kr Áður 11.990 kr. Síðerma varmabolur. Verð nú: 3.992 kr. Áður 4.990 kr. Delta Mach2 vinnubuxur. Verð nú: 3.992 kr. Áður 4.990 kr. Gua-543-1 vegghengdur vaskur, 1mm stál, einnig fáanlegur í borð 7.794 Áður kr. 12.990 40% AFSLÁTTUR DRIVE Bílskúrsryksuga fyrir vatn & ryk 20 lítra tankur 1200 Wött 7.996 kr. Áður 9.995 kr. 20% AFSLÁTTUR

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.