Mosfellingur - 10.01.2019, Blaðsíða 22

Mosfellingur - 10.01.2019, Blaðsíða 22
Akstursíþróttamaður Atli Jamil er 29 ára og hefur keppt í 3 ár fyrir Torfæruklúbb Suðurlands. Norðurlandameistari og annar til Íslandsmeistara. Atli Jamil er góð fyrirmynd í torfæru, snyrtilegur og með flott utanumhald í keppnum. Metnaður hans er til fyrirmyndar. Helstu afrek árið 2018: FIA NEZ NORÐURLANDAMEISTARI 2018 2. sæti til Íslandsmeistara 2018 Íslandsmeistaramót 2018 Hella - 5. sæti Íslandsm.mót 2018 Stapafell - 1. sæti Íslandsm.mót 2018 Egilsstaðir- 1. sæti Íslandsm.mót 2018 Akranes - 2. sæti Íslandsm.mót 2018 Akranes- 4. sæti Íslandsm.mót 2018 Akureyri - 4. sæti Atli Jamil Ásgeirsson akstursíþróttir Íþróttamaður handknattleiks- deildar Aftureldingar Elvar er 23 ára gamall, uppalinn hjá félaginu og hefur spilað allan sinn feril þar. Á síðasta tímabili var Elvar valinn leikmaður ársins hjá UMFA þrátt fyrir að meiðast illa og missa af hluta tímabilsins. Elvar sneri aftur fyrir lok tímabils og lék afar vel eftir að hann sneri aftur. Í vetur hefur Elvar farið á kostum í Olísdeildinni og verið einn allra besti leikmaður liðsins. Elvar var í haust einnig valinn í B–landslið Íslands og er því farinn að banka á landsliðsdyrnar. Að undanförnu hefur Elvar verið orðað- ur við sterk lið í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Elvar Ásgeirsson handknattleikur Kraftlyftingamaður Mosfellsbæjar Friðbjörn er sannkallað undrabarn í heimi kraftlyftinganna. Hann varð Íslandsmeistari í klassískum kraftlyft- ingum 2018 þar sem hann lyfti 607 kg í samanlögðu, hann lyfti 205 kg í hné- beygju, 142,5 kg í bekkpressu og 255 kg í réttstöðulyftu og sett nýtt Íslandsmet. Friðbjörn keppti á bikarmótinu í klass- ískum kraftlyftingum þar sem hann lyfti 630 kg í samanlögðu, 210 kg í hnébeygj- um, 150 kg í bekkpressu sem er nýtt Íslandsmet og 620 kg í samanlögðu sem líka er nýtt Íslandsmet. Friðbjörn Bragi er 8. stigahæsti keppandi karla 2018. Hann setti líka sex Íslandsmet í öllum keppnisgreinum kraftlyftinga. Friðbjörn Bragi Hlynsson kraftlyftingar Íþróttamaður blakdeildar Aftureldingar Radoslaw kom til liðsins í nóvember 2017 og varð strax mjög mikilvægur hlekkur í liðinu. Radek eins og hann er kallaður býr yfir mikilli reynslu sem fáir á Íslandi hafa eftir að hafa spilað sem atvinnumaður í blaki í heimalandi sínu og kemur með mikla reynslu inn í annars ungt lið félagsins. Hann er mikil fyrirmynd yngri leikmanna og er eini leikmaður Aftureldingar sem hefur spilað blak á Ólympíuleikum. Hann er stigahæstur í liðinu það sem af er þessari leiktíð. Þrátt fyrir að vera elstur í liðinu gefur hann ekkert eftir og er alltaf tilbúinn til að miðla af reynslu sinni og aðstoða þegar til hans er leitað. Radoslaw Rybak blak Frjálsíþróttamaður Aftureldingar Guðmundur Ágúst hefur átt gott ár. Í flokki karla á hann fjórða besta tímann í 60 metrum innanhúss, fjórða besta tíma í 200 metra hlaupi innanhúss og sjötta besta tímann í 400 metrum innanhúss. Þess má geta að Guðmundur var gjald- gengur í aldursflokki 20-22 ára þar sem hann var meðal annars næstfljótastur í ár í 60 metra hlaupi. Guðmundur hefur æft frjálsar íþróttir hjá Aftureldingu síðan 2014 og hefur bætt sig jafnt og þétt. Guðmundur Ágúst hefur mikið keppnisskap og æfir samviskusamlega. Hann er mikilvæg og frábær fyrirmynd allra íþróttamanna, skipulagður og þolinmóður. Guðmundur Ágúst Thoroddsen frjálsar Skylmingamaður Franklín Ernir hefur æft ólympískar skylmingar með höggsverði hjá Skylm- ingafélagi Reykjavíkur síðan 2012. Hann hefur átt einstaklega gott keppn- isár og æfir og keppir með unglinga- og fullorðinslandsliði í skylmingum. Hann vann einstakt afrek, varð þrefaldur Norðurlandameistari í skylmingum með höggsverði, í flokki U17, í liðakeppni karla og í liðakeppni U17. Hann fékk einnig silfur í flokki U20. Hann varð Íslandsmeistari í flokki U17, vann silfur í U20 og brons í fullorðinsflokki. Hann varð Íslandsbikarmeistari í flokki U17 og vann gull í sama flokki á RIG. Hann tók þátt í fyrsta skipti á EM í Rúss- landi og HM á Ítalíu og gekk ágætlega. Franklín Ernir Kristjánsson skylmingar Íþróttamaður Golfklúbbs Mosfellsbæjar Björn Óskar er 21 árs gamall og hefur æft golf hjá GM frá 6 ára aldri. Árið 2018 var án efa besta ár Björns í keppnis- golfi. Í mars lenti Björn í 3. sæti í Lake Charles Invitational mótinu í bandaríska háskólagolfinu. Björn Óskar var valinn í A-landslið Íslands sem keppti á Evrópu- móti landsliða í Þýskalandi í júlí. Á Íslandsmótinu í sumar lenti Björn Óskar í 2. sæti eftir eftirminnilega baráttu. Björn lék stórkostlegt golf en hann lék hringina fjóra á 10 höggum undir pari. Björn er afskaplega samviskusamur og metnaðarfullur kylfingur sem leggur afar hart að sér við æfingar. Björn er mikill íþróttamaður og frábær fyrirmynd. Björn Óskar Guðjónsson golf Knattspyrnumaður Aftureldingar Andri Freyr spilaði stórt hlutverk í liði Aftureldingar sem varð deildarmeistari í 2. deild á nýliðnu tímabili. Hann var markahæsti leikmaður deildarinnar og skoraði meðal annars tvö mörk í síðasta leik sumarsins. Andri Freyr skoraði 21 mark í 18 leikjum auk þess sem hann skoraði 5 mörk í 3 bikarleikjum. Þjálfarar og fyrirliðar í 2. deildinni völdu Andra Frey besta leikmann deildarinnar og þá var hann valinn leikmaður ársins af þjálfurum og meistaraflokksráði Aftureldingar. Andri Freyr hefur alla tíð leikið fyrir félagið, hann lagði ákaflega hart að sér á síðasta tímabili og tók miklum framförum. Andri Freyr Jónasson knattspyrna Útnefning á íþróttakarli og íþróttakonu Mosfellsbæjar 2018

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.