Mosfellingur - 10.01.2019, Blaðsíða 33

Mosfellingur - 10.01.2019, Blaðsíða 33
Aðsendar greinar - 33 Gleðilegt nýtt ár kæru Mosfelling- ar. Árið 2019 er gengið í garð og byrjar dásamlega. Það er ekkert betra en að fara út að skokka í 8 stiga hita í janúar en ég var einmitt að koma af minni fyrstu hlaupahópsæfingu hjá henni Höllu Karen í World Class. Eru allir búnir að setja sér ára- mótheit? Eða markmið fyrir árið 2019? Hver kannast ekki við að gefast upp á þeim? Ég hef alla vega gert það nokkrum sinnum og hef ætlað mér allt of mikið og sprungið. Ég er þó hér enn og er alltaf að læra, maður getur nefnilega alltaf gert betur. Mig langar til að deila með ykkur nokkrum punktum varðandi hreyfingu í von um að það veiti ykkur hvatningu á nýju ári. 1. Hugsum um hreyfingu til langtíma ekki skammtíma – við þurfum ekki að sigra heiminn í janúar. Byrjum smátt og aukum álagið jafnt og þétt yfir árið. Ef við ætlum okkur um of eru meiri líkur á að við gef- umst upp. 2. Veldu hreyfingu sem þér þykir skemmtileg og vertu dugleg/ur að prófa nýja hluti til að finna hvað það er sem þér þykir skemmtilegt. Það er ýmislegt sem flokkast undir hreyfingu eins og að ganga, dansa, spila fótbolta, stunda garðyrkju og hjóla til vinnu. Þegar þú ert að koma þér í gang er mikilvægt að velja eitthvað sem er skemmtilegt svo hvatinn verði meiri. 3. Öll hreyfing er af hinu góða og við þurfum ekki alltaf að sprengja okkur á hverri æfingu. Það er mikilvægt og gott að hugsa „ætla ég að vera íþróttamaður í 10 ár eða 40 ár?“ 4. Skiptu hreyfingunni þinni upp. Það er hægt að hreyfa sig í 30 mín á dag í nokkrum pörtum af degi, sem dæmi 10 mín ganga til vinnu, smá göngutúr í hádeginu og svo að vinnu lokinni. 5. Ef þú ert óörugg/ur í líkamsræktar- stöð, fáðu þér þjálfara eða bókaðu tíma hjá þjálfara t.d. Ölfu eða Ella í tækjakennslu. Við erum hér til þess að hjálpa ykkur. 6. Göngutúr er ágætis hreyfing sem gerir helling fyrir líkama og sál. Hann þarf ekki að vera langur heldur er það að komast í návígi við náttúruna það sem skiptir sköp- um. Reyndu þó að labba rösklega eða auka hraðann á ákveðnum köflum, hægt og bít- andi eykst þolið. 7. Fáðu vin/vinkonu með þér í lið, það er hvatning að mæla sér mót við einhvern. 8. Skráðu þig í tíma, þá hefur þú tekið ákvörðun um að þú ætlir að mæta. 9. Verðlaunaðu sjálfa/n þig þegar þú stendur þig vel eða hefur náð settu mark- miði. Fögnum nýju ári með gleði og höfum gaman af þeirri hreyfingu sem við veljum okkur. Berta Þórhalladóttir Kennir tabata í World Class Mosó á þriðjudögum og fimmtudögum kl: 18:20. Áramótaheit! Eins og undanfarin ár var ým- islegt spennandi í boði í heilsu- bænum Mosfellsbæ þegar kem- ur að heilsueflingu og vellíðan bæjarbúa. Leikfiminámskeið fyrir 67+ Rannsóknir hafa sýnt mikinn ávinning af fjölþættri líkams- rækt fyrir elsta aldurshópinn og því var ýtt úr vör tilraunaverkefni á vegum Félags aldraðra í Mosfellsbæ (FaMos), Mosfellsbæjar og World Class nú á haustmánuðum. Öllum Mosfellingum 67 ára og eldri var boðið að kaupa þriggja mánaða kort með góðum afslætti í World Class og réð Mosfellsbær sérstaka íþróttakennara til að halda utan um hópinn. Þetta til- raunaverkefni tókst svo vel að það mun verða framhald á. Gulrótin 2018 Heilsudagurinn var haldinn í lok maí og hófst með hressandi morgungöngu í samstarfi við Ferðafélag Íslands. Einnig var blásið til glæsilegs málþings í Listasalnum þar sem við heyrðum m.a. af áhugaverðum heilsuverkefnum í skólum bæjarins og kynntumst síðan (góð)mennsku, góðum samskiptum, siðum og framkomu að hætti Bergþórs Pálssonar og Alberts Eiríkssonar. Síðast en ekki síst var Gulrótin, lýðheilsuviður- kenning Mosfellsbæjar, afhent í annað sinn. Verðlaunahafarnir voru Guðjón Svansson og Vala Mörk en þau hafa svo sannarlega látið sig heilsu og vellíðan varða, m.a. með rekstri Kettlebells Ice- land, og þykja einstaklega hvetjandi, áhugasöm, fagleg og flottar fyrirmyndir þegar kemur að heilsusamlegum lífs- stíl. Fjölskyldutímar að Varmá Þetta frábæra verkefni hefur verið við lýði síðan árið 2015 og er óhætt að segja að það hafið notið einstakra vinsælda hjá fjölskyldum í Mosfellsbæ. Um er að ræða opna tíma á sunnudagsmorgnum yfir vetrartímann fyrir alla fjölskylduna þar sem horft er sérstaklega til grunnskólanemenda. Að tímum loknum er svo frítt í Varmárlaug fyrir alla fjölskylduna og hvetjum við Mosfellinga til að nýta þetta kostaboð og skemmta sér saman. Hreyfivika UMFÍ Við tókum að sjálfsögðu þátt í þessu verkefni eins og síðustu ár og það er skemmst frá því að segja að dagskráin var stórglæsileg og þátttakan hefur aldrei verið betri. Hjartans þakkir Mos- fellingar! Lýðheilsugöngur FÍ Ferðafélag Íslands stóð fyrir Lýð- heilsugöngum á landsvísu alla mið- vikudaga í september og hér í bæ var gengið frá Reykjalundi undir leiðsögn heimamanna. Óhætt er að segja að Mosfellingar hafi tekið þessu framtaki vel og stóðu göngugarpar bæjarins svo sannarlega undir merkjum. Hér hefur verið stiklað á stóru og hlökkum við til þess sem árið 2019 mun bera í skauti sér. Við þökkum ykkur fyrir frábært samstarf og velvilja og óskum ykkur heilbrigði og gleði á nýju ári. Ólöf Kristín Sívertsen, lýðheilsufræðingur og verkefnisstjóri Heilsueflandi samfélags í Mosfellsbæ Heilsuvin í Mosfellsbæ er hlutafélag í eigu fyrirtækja og einstaklinga í heilsuþjónustu í Mosfellsbæ. Starf framkvæmdastjóra felur í sér almennt utanumhald um starf klasans, kynningar- og markaðsstarf, öflun nýrra hluthafa fyrir klasann, umsjón með umsóknum um styrki, bókhald og fleira. Nánari upplýsingar um Heilsuvin er að finna á slóðinni www.heils vin.com. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Pálss n, stjórnarformaður Heilsuvinjar gegnum netfa gið jo @ans.is. Umsóknir skulu sendar á netfangið heilsuvin@heilsuvin.com fyrir 3. mars næstkomandi. Heilsuvin í Mosfellsbæ óskar eftir að ráða fram- kvæmdastjóra í allt að 50% starf Heilsuvin í Mosfellsbæ er hlutafélag í eigu fyrirtækja og einstaklinga í heilsuþjónustu í Mosfellsbæ. Starf framkvæmdastjóra felur í sér almennt utanumhald um starf klasans, kynningar- og markaðsstarf, öflun nýrra hluthafa fyrir klasann, umsjón með umsóknum um styrki, bókhald og fleira. Nánari upplýsingar um Heilsuvin er að finna á slóðinni www.heilsuvin.com. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Pálsson, stjórnarformaður Heilsuvinjar gegnum netfangið jon@ans.is. Umsóknir skulu sendar á netfangið heilsuvin@heilsuvin.com fyrir 3. mars næstkomandi. Heilsuvin í Mosfellsbæ óskar eftir að ráða fram- kvæmdastjóra í allt að 50% starf Heilsuvin í Mosfellsbæ er hlutafélag í eigu fyrirtækja og einstaklinga í heilsuþjónustu í Mosfellsbæ. Starf framkvæmdastjóra felur í sér almennt utanumhald um starf klasans, kynningar- og markaðsstarf, öflun nýrra hluthafa fyrir klasann, umsjón með umsóknum um styrki, bókhald og fleira. Nánari upplýsingar um Heilsuvin er að finna á slóðinni www.heilsuvin.com. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Pálsson, stjórnarformaður Heilsuvinjar gegnum netfangið jon@ans.is. Umsóknir skulu sendar á netfangið heilsuvin@heilsuvin.com fyrir 3. mars næstkomandi. Heilsuvin í Mosfellsbæ óskar eftir að ráða fram- kvæmdastjóra í allt að 50% starf heilsuvin í mosfellsbæ Litið yfir heilsuárið 2018 H e i l s u v i n í M o s f e l l s b æ e r h l u t a f é l a g í e i g u f y r i r t æ k j a o g e i n s t a k l i n g a í h e i l s u þ j ó n u s t u í M o s f e l l s b æ . S t a r f f r a m k v æ m d a s t j ó r a f e l u r í s é r a l m e n n t u t a n u m h a l d u m s t a r f k l a s a n s , k y n n i n g a r - o g m a r k a ð s s t a r f , ö f l u n n ý r r a h l u t h a f a f y r i r k l a s a n n , u m s j ó n m e ð u m s ó k n u m u m s t y r k i , b ó k h a l d o g f l e i r a . N á n a r i u p p l ý s i n g a r u m H e i l s u v i n e r a ð f i n n a á s l ó ð i n n i w w w . h e i l s u v i n . c o m . N á n a r i u p p l ý s i n g a r u m s t a r f i ð v e i t i r J ó n P á l s s o n , s t j ó r n a r f o r m a ð u r H e i l s u v i n j a r g e g n u m n e t f a n g i ð j o n @ a n s . i s . U m s ó k n i r s k u l u s e n d a r á n e t f a n g i ð h e i l s u v i n @ h e i l s u v i n . c o m f y r i r 3 . m a r s n æ s t k o m a n d i . H e i l s u v i n í M o s f e l l s b æ ó s k a r e f t i r a ð r á ð a f r a m - k v æ m d a s t j ó r a í a l l t a ð 5 0 % s t a r f heilsu hornið Rauði krossinn í Mosfellsbæ óskar eftir sjálfboðaliðum í eftirtalin verkefni - Íslenskuþjálfun fyrir einstaklinga af erlendum uppruna sem fer fram á Kjalarnesi. - Leiðsögufólk flóttafólks sem býr á starfssvæði deildar. - Námsaðstoð fyrir grunnskólabörn, sér í lagi börn af erlendum uppruna, aðstoð við lestur og annað heimanám. Sjálfboðaliðar þurfa að hafa gaman af því að vinna með fólki, vera áhugasamir um ólíka menningarheima og hafa vilja til að láta gott af sér leiða. Aðalmerki | Samsetning | Mosfellsbæ Hefur þig alltaf langað til að gefa af þér til góðra verka? Nú er tækifærið! Fyrir frekar upplýsingar hafið samband við moso@redcross.is eða s. 898-6065. Morgun- spjall Sjálfstæðisfélag Mosfellinga býður í morgun- spjall næstkomandi laugardag 12. janúar kl.10:30 í félagsheimil sínu í Kjarnanum. erki Sjálfstæðisflokksins Merki Sjálfstæðisflokksins, Ísla dsfálki með útþanda vængi, hefur tekið ýmsum breytingum í áranna rás, en árið 2013 var á ný tekið í notkun það merki, sem lengst af var í notkun og Halldór Pétursson teiknaði fyrir hann. Við mælumst til þess að það sé notað í auglýsingum og umfjöllun um flokkinn, en ekki önnur og eldri merki. Að öllu jöfnu er fálkinn svartur á hvítum grunni, með eða án nafns flokksins, en það má einnig notast við bláa útgáfu, sömuleiðis á hvítum grunni. Með fylgir einnig andhverf útgáfa, hvítur fálki, sem nota má á dökkum grunni ef þarf. Við mælumst þó til að sparlega sé farið með það. Í kosningastarfi hefur einnig verið notast við annað merki, D, sem einnig er að finna hér. Það er að öllu jöfnu birt í bláum lit á hvítum grunni, en þó má notast við aðra liti ef tilefni er til, þar á meðal í regnbogalitum. Við mælumst til þess að þá sé notast við þá liti, sem hér eru birtir, en það litróf tekur þó stundum breytingum. Þó það sé oftast á hvítum grunni má bregða út af því. Prentlitur C100 M0 Y0 K0 EKKI NOTA GÖMUL MERKI Prentlitur: C0 M0 Y0 K100 Prentlitur: C100 M0 Y0 K0 Skjálitur: R43 G171 B226 Skjálitur R43 G171 B226 Prentlitur C0 M0 Y0 K50 Ýmis önnur dæmi Á dökkum grunni Allir velKoMnir - HlöKKuM til Að Sjá yKKur! Sjálfstæðisfélag Mosfellinga Bryndís Haraldsdóttir, alþingismaður verður gestur okkar og ræðir það helsta sem er á döfinni á vorþingi. www.mosfellingur. is

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.