Mosfellingur - 10.01.2019, Blaðsíða 21

Mosfellingur - 10.01.2019, Blaðsíða 21
Íþróttakona taekwondodeildar Aftureldingar María var valin taekwondokona ársins af TKÍ og er því besta taekwondokona landsins annað árið í röð. Fyrir utan að vera máttarstólpi í starfi deildarinnar sem einn okkar bestu þjálfara, þá er hún sannkallaður leiðtogi í landsliði Íslands í poomsae og má segja að hún gegni þar nokkurs konar hlutverki fyrirliða. María Guðrún hefur keppt á mörgum mótum í ár fyrir Íslands hönd, og bar þar hæst keppni á heimsmeist- aramótinu í Taívan í nóvember þar sem hún lenti í 9.-16. sæti í gríðarlega erfiðum flokki. María Guðrún hefur einnig staðið fyrir og stýrt námskeiðum í sjálfsvörn kvenna sem hafa verið haldin víða um land undanfarin ár og eins á vegum deildarinnar. Það eru fáir aðilar á Íslandi í taekwondo sem komast með tærnar þar sem María Guðrún hefur hælana og á hún gríðarlega mikinn þátt í þeirri staðreynd að Afturelding er ríkjandi Íslands- og bikarmeistari í taekwondo. María Guðrún Sveinbjörnsdóttir taekwondo Íþróttakona blakdeildar Aftureldingar Velina Apostolova, Villý, hefur verið lyk- ilmaður í liði Aftureldingar frá upphafi, eða frá því að blakdeildin tefldi fram liði í efstu deild í blaki á Íslandi sem var haustið 2011. Villý hefur verið fyrirliði undanfarin ár og á síðustu leiktíð hlaut liðið silfurverðlaun á Íslandsmótinu í blaki. Villý hefur verið mjög mikilvægur hlekkur í uppbyggingarstarfi ungra leikmanna í blakdeild Aftureldingar. Hún hefur unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu liðsins og félagsins og er alltaf boðin og búin til aðstoðar þegar til hennar er leitað. Villý er góð fyrirmynd yngri leikmanna og er mjög mikilvæg fyrir ungt lið Aftureldingar. Hún hefur tekið þátt í og á stóran hlut í öllum 11 titlum kvennaliðs blakdeildar Aftureld- ingar, bikar-, deildar- og Íslandsmeist- aratitlum frá því að liðið tók fyrst þátt og er blakdeild Aftureldingar heppin og stolt af að hafa svona liðsmann innan sinna raða. Villý varð einnig Íslandsmeistari í strandblaki kvenna sumarið 2018 ásamt meðspilara sínum. Velina Apostolova blak KoSninG á www.MoS.iS Útnefning á íþróttakarli og íþróttakonu Mosfellsbæjar 2018 Kynning á íþróttakonum sem tilnefndar eru vegna kjörs til íþróttakonu Mosfellsbæjar 2018, og afrekum þeirra á árinu. Kosning fer fram á vef Mosfellsbæjar www.mos.is dagana 10. - 15. janúar. Velja skal karl í 1., 2. og 3. sæti sem og konu í 1., 2. og 3. sæti. Kosningin er ekki gild nema valið sé í öll þrjú sætin. Úrslit verða kynnt fimmtudaginn 17. janúar kl. 19 í Íþróttamiðstöðinni að Varmá. Íþróttakona handknattleiks- deildar Aftureldinga Þóra María er fyrirmyndaríþróttamaður í alla staði, hún æfir af sína íþrótt af miklum metnaði og dugnaði og leggur mikið á sig til að ná markmiðum sínum. Þóra hefur verið lykilmaður í meistara- flokksliði Aftureldingar í rúm 2 ár og var valin besti leikmaður liðsins á lokahófi meistaraflokkanna síðastliðið vor auk þess sem hún fékk verðlaun sem efnilegasti leikmaður Grill 66 deildar kvenna á lokahófi HSÍ í vor. Í vetur hefur hún verið einn af betri leikmönnum deildarinnar enda spilað frábærlega sem endurspeglar stöðu liðsins í deildinni. Þóra María hefur verið fastamaður í yngri landsliðum síðastliðin 3 ár og engin breyting var þar á í ár. Hún er einn af burðarásum í 19 ára landsliði kvenna eins og stendur. Þóra María Sigurjónsdóttir handknattleikur

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.