Mosfellingur - 10.01.2019, Blaðsíða 36

Mosfellingur - 10.01.2019, Blaðsíða 36
Sendið okkur myndir af nýjum Mos- fellingum ásamt helstu upplýsingum á netfangið mosfellingur@mosfellingur.is Leó Georgsson fæddist 28. október 2018. Hann var 4030 gr og 52 cm. Foreldrar: Birta Róbertsdóttir og Hans Georg Júlíusson. Í eldhúsinu Áhrif fæðuneyslu okkar Á loftslags- breytingar Að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga er mikil áskorun og oft virðist sú barát ta fremur vonlaus og erfið. Þrátt fyrir þa ð eru margar leiðir til staðar. Við þurfum ekki að bíða eftir að stjórnvöld grípi til róttækra aðgerða til þess að sporna ge gn frekari losun gróðurhúsalofttegunda. Ein afar áhrifamikil leið sem við getum farið er að minnka kjötneyslu. Af hverju, hvaða máli skiptir það? Hér á landi er ekki mikil fræðsla um áhrif fæðuneyslu okkar á losun gróðurhúsalofttegunda. Samt sem áðu r er það afar mikilvægur þáttur, rétt eins og breytt orkunotkun og landnotkun ti l að nefna dæmi. Á Íslandi má rekja um 13% losunar gróðurhúsalofttegunda til landbúnaða r. Af þessum 13% er gríðarmikill munur á prósentuhlutfalli milli afurða: Kolefnisfótspor sauðfjárbúa er mest, eða um 50%, nautgripabú næst um 33% , svínabú 3%, fuglabú 2% og garðyrkja (grænmetisræktun) 2%. Það liggur því í augum uppi að neysla kjöts veldur töluvert meiri losun heldu r en t.a.m. neysla grænmetisfæðis. Því skiptir afar miklu máli hvað við borðu m. Við þurfum ekki öll að gerast vegan, eð a byrja að borða skordýr strax. Í krafti fjöldans getur það haft veigamikil áhri f ef allir sem neyta kjöts minnka neyslu sína og taka meðvitaðri ákvarðanir. Einnig hefur mikið að segja hvaðan fæðan kemur. Stærra kolefnisfótspor fylgir innfluttum vörum og því hefur mikil áhrif að velja íslenska framleiðsl u. Þegar litið er til landbúnaðarfram- leiðslu erlendis þá hefur hún töluvert meiri afleiðingar en framleiðslan hér á landi. Alvarlegustu afleiðingar þess eru m.a. eyðing lands og skóga, útrýming dýrategunda sem og mengun vatns og lofts. Þegar öllu er á botninn hvolft þá snýst þetta allt um að taka meðvitaðar ákvarðanir - Gera sitt besta í að minnk a fótspor sitt og hafa þannig jákvæð áhri f á jörðina. Tobbi og Emilía skora á Gumma Hreins og Jónu í Dalnum að deila næstu uppskrift - Heyrst hefur...36 Tobbi og Emilía deila að þessu sinni með Mosfellingi einfaldri og veisluhæfri uppskrift að ljúffengri nautalund Aðferð: • Nautalundin pipruð vel. • Lundin vafin inn í plastfilmu, 5 vafningar (nokkrar klípur af smjöri með). • Sett í ofn á 60° í 2-3 klst. • Sett á vel heitt grillið og lundinni lokað. • Þá er smurt vel af Dijon sinnepi og síðan sett vel af púðursykri yfir, athugið að lundinni er ekki snúið eftir það. Passa að setja gljáann ekki of seint því það tekur smá stund fyrir sykurinn að bráðna. Það fer eftir smekk hvers og eins hve kjötið á að vera mikið grillað. Gera þarf ráð fyrir að sykurinn þurfi smá tíma til að bráðna. Meðlæti: • Grillkartöflur með hvílaukssmjöri • Sveppa- eða bernaisesósa. Einnig er gott að skera gulrætur í strimla og steikja úr smjöri og sykri – brúnaðar gulrætur. Salat að eigin vali.  Verðiykkuraðgóðu. Heyrst Hefur... ...að söngkonan Stefanía Svavars sé orðin mamma en hún eignaðist strák rétt fyrir jól. ...að kennsla í Helgafellsskóla hefjist á mánudaginn. ...að rafmagnslaust hafi orðið víða í Mosfellsbæ korter fyrir jól en það hafi þó aðeins staðið yfir í nokkrar mínútur. ...Guðrún og Valur séu að selja gistiheimilið sitt á Minna-Mosfelli. ...að áhugasamir aðilar séu að skoða þann möguleika að opna kaffihús þar sem Bymos var að loka í Háholti. ...að framkvæmdastjóri Aftureldingar, Jón Júlíus, hafi verið valinn kylfingur ársins í Grindavík. ...að þrettándatónleikar Storm- sveitarinnar hafi endað með svaka eftirpartýi í koníaksstofunni í Hlégarði en uppselt var á tónleikana. ...að búið sé að loka Bymos eftir 16 ára þjónustu við Mosfellinga. ...að stelpurnar í handboltanum taki á móti FH í fyrsta heimaleik ársins í kvöld kl. 20 aða Varmá. ...að lögreglu hafi verið tilkynnt um líkamsárás á Ásláki rétt fyrir jól þar sem tveimur Mosfellingum lenti saman. ...að uppselt sé á nýtt leikfiminám- skeið eldri borgara, bæði nýliða- og framhaldsnámskeið. ...að pólfarinn Vilborg Arna Gissurardóttir sé flutt í Mosó. ...að Hvíti Riddarinn muni breytast í Blackbox með vorinu (staðfest). ...að eigendur Blackbox reki m.a. Keiluhöllina, Shake&Pizza, Hamborgarafabrikkuna, Múlakaffi og Lemon. ...að líf og fjör verði á Bókasafninu á Safnanótt 8. febrúar. ...að ekkert sé um heita mat í Varmár- skóla þessa dagana vegna veikinda og manneklu og nemendur mæta með nesti í skólann. ...að verið sé að rétta í Skáksambands- málinu þessa dagana sem teygir arma sína á Hvíta Riddarann og alla leið upp á Tungubakka. ...að FMOS hafi tapað fyrir MH í fyrstu umferð Gettu Betur í vikunni 26-9. ...að bíll hafi orðið alelda í Leirvog- stungunni á mánudaginn en betur hafi ferið en á horfðist. ...að mikið haglél hafi dunið á Mos- fellingum á Þrettándagleðinni við Leirvoginn og einhverjir hafi þurft frá að hverfa. ...að heitir sunnudagar séu framundan í Varmárlaug þar sem laugin verður hituð upp í 37 gráður fyrir barnafjöl- skyldur og þá sem vilja slaka. ...að kosning sé farin af stað á mos.is um hver verði íþróttakarl og -kona Mosfellsbæjar. ...Drífa í Lágafellsskóla eigi afmæli í dag. mosfellingur@mosfellingur.is Nautalund með gljáa marta carrasco Hjá tobba og emelÍ u Kyndill á vaktinni um áramótin Félagar í Björgunarsveitinni Kyndli höfðu í nógu að snúast í kringum flugeldasöluna líkt og endranær. Hér má sjá vaskan hóp með söluvarning sveitarinnar að Völuteigi. mosfellingar kaupa sína flugelda hjá kyndli

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.