Mosfellingur - 10.01.2019, Blaðsíða 20

Mosfellingur - 10.01.2019, Blaðsíða 20
Skotíþróttakona Þann 24. febrúar setti Bára ásamt Guðrúnu og Elísabetu Íslandsmet í liðakeppni í loftskammbyssu með 1.500 stig. Auk þess setti Bára Íslandsmet ásamt Guðrúnu og Hörpu í liðakeppni í loftriffli með 1.575,4 stig Bára setti Íslandsmet í 50 m liggjandi riffli og er nýja metið 617,8. Bára, Guðrún og Margrét settu Íslandsmet í liðakeppni í 50 m liggjandi riffli. Bára setti Íslandsmet í þrístöðu með 22 calibera riffli með 1.034 stig. Einnig settu Bára, Guðrún og Margrét Íslandsmet í liðakeppni í þrístöðu með 22 cal riffli með 2.892 stigum. Bára varð bikarmeistari í 50 m liggjandi riffli og vann allar keppnir á árinu fyrir utan eina. Bára fór á heimsbikarmót í München í Þýskalandi í maí. Hún náði 28. sæti og skaut 613,7 stig. Bára fór á heimsmeistaramót í Kóreu í byrjun september og var hún eini Íslendingur- inn sem komst upp úr undanriðli í úrslit af skotíþróttafólkinu. Bára varð Kópavogsmeistari 2018 í loftskammbyssu og loftriffli 4. nóvember. Bára Einarsdóttir skotíþróttir Íþróttakona Golfklúbbs Mosfellsbæjar Arna Rún Kristjánsdóttir er 20 ára kylfingur úr Mosfellsbæ. Arna Rún hefur æft golf hjá GM frá 12 ára aldri. Arna Rún er einn af bestu afrekskylf- ingum GM en hún hóf háskólanám í Bandaríkjunum haustið 2018 við Grand Valley State háskólann í Michigan-fylki. Hún stundar nám við skólann samhliða því að leika með liði skólans. Liðið sem Arna leikur með er í sjöunda sæti af 192 liðum í annari deild háskólagolfsins og er því mjög sterkt. Arna Rún hefur keppt í áraraðir á móta- röðum GSÍ, en hún vann til að mynda fyrsta mót sumarsins á Eimskipsmóta- röðinni, mótaröð þeirra bestu. Arna Rún hefur verið lykilmaður í sveit GM á Íslandsmótum golfklúbba síðustu ár. Arna Rún er metnaðarfullur og sam- viskusamur kylfingur sem er frábær fyrirmynd fyrir aðra kylfinga og yngri iðkendur klúbbsins. Arna Rún Kristjánsdóttir golf Hestaíþróttakona Harðar Aðalheiður hefur verið í hesta- mannafélaginu Herði alla tíð. Árið var magnað hjá henni, hún sló 15 ára gamalt heimsmet ásamt því að vinna þrenn reiðmennskuverðlaun á Landsmótinu, reiðmennskuverðlaun FT, FT fjöðrina og Isibless-verðlaunin, ein virtustu knapaverðlaun sem hægt er að vinna í heimi hestamennskunnar á Íslandi. Aðalheiður var tilnefnd á uppskeruhátíð hestamanna til kynbótaknapa og knapa ársins. Hún sýndi 17 hross í 1. verðlaun á árinu auk þess að vera alltaf í toppsætum á þeim mótum sem hún keppti á í ár. Aðalheiður náði einnig frábærum árangri í Meistaradeild Cintamani í vetur, endaði þar í 7. sæti eftir tímabilið og var efst kvenna. Kynbótahross: 2 heimsmet, hæst dæmdi klárhestur í heimi frá upphafi og hæst dæmdi vindótti stóðhestur í heimi. 13 hross í 1. verðlaun fyrir LM. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir hestaíþróttir Kraftlyftingakona Mosfellsbæjar Arna átti frábært ár og keppti á Reykjavíkurleikunum í janúar 2018 þar sem hún setti 7 Íslandsmet og varð önnur í 63 kg flokki. Arna varð síðan Íslandsmeistari í klassískum kraftlyft- ingum í opnum flokki 2018 með 339 kg í samanlögðu og setti 4 Íslandsmet í réttstöðulyftu. Arna varð líka Íslandsmeistari unglinga á Akureyri þar sem hún tók 358 kg í samanlögðu og varð stigahæst kvenna. Arna varð í fjórða sæti á Norðurlanda- mótinu í klassískum kraftlyftingum þar sem hún lyfti 355 kg í samanlögðu. Arna lokaði síðan árinu með frábærum árangri á Evrópumótinu í klassískum kraftlyftingum sem fram fór í Litháen þar sem hún varð í 7. sæti. Arna setti alls 13 Íslandsmet á árinu og er önnur stigahæsta kona landsins með 338,79 Wiks-stig. Hún hefur stundað kraft- lyftingar í rúmt ár og er þegar með þeim bestu á Norðurlöndum. Með þeim aga og ástundun sem hún leggur á sig er ljóst að hún stefnir hratt á alþjóðlegan frama. Arna Ösp Gunnarsdóttir kraftlyftingar Knattspyrnukona Aftureldingar Þrátt fyrir ungan aldur var Hafrún Rakel lykilleikmaður liðsins í Inkasso deildinni sumar 2018. Hún lék 17 leiki í deild, skoraði þar tvö mörk, lék tvo leiki í bikar og skoraði eitt mark. Þá lék hún þrjá leiki í Lengjubikar og skoraði í þeim þrjú mörk. Þar að auki ferðaðist Hafrún Rakel með u16 ára og u17 ára landsliðum Íslands árið 2018. Með u16 ára landsliðinu fór hún til Litháen þar sem Hafrún Rakel lék allar mínútur í liði Íslands í riðlinum þar ytra. Hafrún fór með u17 ára landsliðinu á Norðurlandamót og kom við sögu í öllum leikjum liðsins og skoraði meðal annars í vítaspyrnukeppni. Þá byrjaði Hafrún alla leiki u17 ára landsliðs Íslands í undankeppni EM síðastliðið haust. Samtals lék Hafrún 10 landsleiki á árinu og skoraði þrjú mörk. Hafrún Rakel er frábær fyrirmynd fyrir yngri iðkendur félagsins. Mosfellsbær má vera stolt af því að eiga jafn flotta og frambærilega íþróttakonu og Hafrúnu Rakel. Hafrún Rakel Halldórsdóttir knattspyrna Frjálsíþróttakona Aftureldingar Gunnhildur Gígja hefur verið í frjáls- íþróttadeild Aftureldingar síðan 2013 og hefur bætt sig jafnt og þétt undanfarin ár. Árið 2018 var henni gott í 60 metra grindahlaupi þar sem hún bætti tímann sinn fimm sinnum. Auk þess varð hún Íslandsmeistari í fimmþraut á meist- aramóti í fjölþrautum auk bætingar í þrístökki. Gunnhildur hefur einnig verið að þjálfa yngri iðkendur í frjálsíþróttadeild Aftureldingar við góðan orðstír. Gunnhildur útskrifaðist frá Fjölbraut í Breiðholti af myndlistarbraut um jólin 2018. Á árinu 2019 munu bíða hennar skemmtilegar áskoranir en hún hefur fengið íþróttastyrk hjá University of Charleston í Vestur-Virginíu. Þar mun hún stunda frjálsíþróttir samhliða háskólanámi í listgreinum. Gunnhildur Gígja Ingvadóttir frjálsíþróttir Útnefning á íþróttakarli og íþróttakonu Mosfellsbæjar 2018

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.