Mosfellingur - 10.01.2019, Blaðsíða 32

Mosfellingur - 10.01.2019, Blaðsíða 32
 - Aðsendar greinar32 Íslenska ullin er einstök Íslenskt sauðfé hefur gefið Íslendingum skjólmikla ull sem náttúran hefur þróað eftir veðri og vindum í meira en 1000 ár. UNGA FÓLKIÐ Bólið Einnig bætist við opnanir í Bólinu! Við höfum nú opið öll föstudagskvöld og svo verður einnig opið á þriðjudags- kvöldum í Lágó. Dagskráin okkar verður send út á mentor, hana má líka finna á facebook: Félagsmiðstöðin Ból, Instagram: Bolid270, Snapchat: Bolid_270 og svo er hún hér fyrir neðan. 10-12 ára Tímarnir breytast! nú verður 10-12 ára starfið okkar á manudögum í Lágó frá 14:00 - 15:45 og miðvikudögum í Varmá frá 14:00 - 15:45. Dagskrá verður send á foreldra í gegnum Mentor og verður einnig auglýst á facebook: 10-12ára starf bólsins. Ungmennahúsið Mosinn er komin á fullt og nú bætist kvöldopnun á fimmtudagskvöldum við! Dagskrána og auglýsingar fyrir viðburði má finna á facebook síðu Mosans: Ungmennahúsið Mosinn í Mosfellsbæ. Mosinn Við hér í Mosfellsbæ eigum tvær frábærar sundlaugar. Annars vegar Lágafellslaug sem er ein vinsælasta sundlaug höfuðborgarsvæðisins og hins vegar gamla góða Varmárlaug sem er falinn demantur. Hér er unnið mjög metnað- arfullt starf innan sunddeildar Aftureldingar við afreksþjálfun í sundi. Deildin mun í vor einnig bjóða upp á námskeið í skriðsundi fyrir fullorðna og þannig stuðla að því að efla íþróttaiðkun almennings í Mosfellsbæ. 10 ástæður fyrir því að þú ættir skella þér í laugina og rifja upp gamla takta úr sundkennslu í grunnskóla. 1. Eykur liðleika – Sund er mjúk hreyf- ing sem setur lítið álag á bein og liðamót. Í sundlaugum hér á landi þar sem vatnið er allt frá 27–30 gráður þá ná vöðvarnir góðri slökun og hjálpar þér að teygja á mikilvæg- um vöðvum. Ef þú ert mikið fyrir það að hlaupa eða hjóla þá er sund tilvalin íþrótt til að slaka á eftir erfiða æfingu og hjálpa þér að hreinsa líkamann og losa um stífleika. 2. Brennsla – Klukkustundar sund á ró- legu tempói brennir allt að 500 kcal. Sund eykur grunnbrennsluna og heldur áfram að brenna eftir æfingar. 3. Bætir vöðvasamræmi – Þegar þú syndir þá notar þú yfir 2/3 vöðva líkamans í það að koma þér áfram. Þú notar hendur, fætur, búkinn og höfuð og þarft að láta alla þessa vöðva vinna saman til þess að finna hið full- komna jafnvægi til þess að njóta sundsins. 4. Bætir líkamsstöðuna – Sund styrkir liðamót og bætir líkamsstöðuna með því að rétta úr hryggjasúlunni. Sund er því tilvalið fyrir fólk sem er með alls kyns bak- vandamál. 5. Sund er fyrir ALLA – Börn allt niður í 3 mánaða hafa möguleika á sundkennslu og fólk sem er 100 ára syndir. Um leið og þú kemur ofan í vatnið þá verður líkaminn þinn léttur, mjúkur og það skiptir ekki máli hversu gamall eða gömul þú ert, líkamanum líður rosalega vel í vatni og þú í kjölfarið finnur til slökunar. Hversu gott væri að ná þeirri tilfinningu á hverjum degi? 6. Fullkomin líkamsrækt – Sund er tilvalin íþrótt til þess að móta líkamann. Þú þarft ekki á þungum lóðum að halda, þú þarft ekki að kaupa rándýran íþróttafatnað. Eina sem þarf er líkaminn, sundfatnaður og sund- laugin. 7. Fulllkomin þolíþrótt – Sund talin ein fullkomnasta loftháða íþrótt sem til er. Ólíkt hlaupum þá þartu að stjórna öndun þinni mun meira í sundi sem kallar á meira súrefni til vöðvana, lætur þá vinna meira fyrir súrefninu án þess að þú takir eftir því. Sund styrkir einnig hjartavöðvann, stækkar það og gæðin í hverri pumpu verða betri sem leiðir til betri blóðrásar. 8. ALLA ÆVI – Sund er íþrótt sem þú þarft aldrei að segja skilið við. Sund er íþrótt sem er til staðar fyrir þig alla ævi og þú getur stundað hana á hverjum degi. 9. Endurhæfing – Ertu að jafna þig eftir meiðsli, slæm/ur í hnjám og þarft hvíld frá sífelldum höggum frá gangstéttinni? Sund er tilvalið til að viðhalda úthaldi og styrk. Með góðri þjálfun 3x í viku getur þú viðhaldið úthaldi og styrk í allt að 8 vikur á meðan þú jafnar þig af meiðslum. 10. Minnkar stress – Í sífellt hraðari heimi verður fólk stöðugt meira stressað. Það er margsannað að sund getur bætt skapgerð og minnkað stress hjá fólki. Það að skella sér í laugina eftir langan vinnudag dregur úr stressi og þú nærð fullkominni slökun á líkama og sál. Birt með leyfi höf.: Guðmundur Hafþórs- son, yfiþjálfari sundfélagsins Ægis Kær sundkveðja, Jón Ágúst Brynjólfsson, formaður sunddeildar Aftureldingar Nýárskveðja frá sunddeildinni

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.