Mosfellingur - 10.01.2019, Side 6
- Mosfellingur ársins6
2010 Steinþór Hróar Steinþórsson
Steindi Jr. slær í gegn með Steindanum
okkar og á vinsælasta lag landsins.
2009 Embla Ágústsdóttir
Lætur fötlun ekki stöðva sig í að lifa
lífinu. Miðlar af reynslu sinni og lífssýn.
2008 Albert Rútsson
Athafnamaður sem opnaði glæsilegt
hótel í Mosfellsbæ, Hótel Laxnes.
2007 Jóhann Ingi Guðbergsson
Sundlaugarvörður í Lágafellslaug
sem bjargar lífi tveggja ára stúlku.
2006 Hjalti Úrsus Árnason
Kraftakarl sem frumsýndi heimildar-
myndina um Jón Pál Sigmarsson.
2005 Sigsteinn Pálsson
Stórbóndi á Blikastöðum sem
fagnaði 100 ára afmæli sínu á árinu.
2012 Greta Salóme Stefánsdóttir
Ævintýralegt ár hjá söngkonunni sem
m.a. keppti fyrir Ísland í Eurovision.
2011 Hanna Símonardóttir
Sjálboðaliði hjá Aftureldingu í 14 ár
og aðal driffjöðurin í starfi félagsins.
2014 Jóhanna Elísa Engelhartsd.
Snéri við blaðinu og varð fyrsti
sigurvegar Biggest Loser á Íslandi.
2013 Hljómsveitin Kaleo
Skaust upp á stjörnuhimininn eftir
sína fyrstu plötu og Vor í Vaglaskógi.
2016 Guðni Valur Guðnason
Kringlukastari og Ólympíufari sem
náði miklum árangri á stuttum tíma.
2015 Sigrún Þ. Geirsdóttir
Vann þrekvirki að verða fyrst íslenskra
kvenna til að synda yfir Ermarsundið.
2018 Óskar Vídalín Kristjánsson
Einn af stofnendum Minnarsjóðs
Einars Darra eftir fráfall sonar hans.
2017 Jón Kalman Stefánsson
Einn fremsti rithöfundur þjóðarinnar
til fjölda ára. Orðaður við Nóbelinn.
Óskar Vídalín er Mosfellingur ársins • Nálgast verkefnið í kærleika
„Ég á bara eitt líf“ hjálpar
mér að takast á við sorgina
óskar tekur við viður-
kenningunni úr höndum
hilmars gunnarssonar
ritstjóra mosfellings
margar tilnefningar til mosfellings ársins 2018
Mosfellingum gafst kostur á
að tilnefna þá sem þeim þóttu
verðugir að hljóta nafnbótina
Mosfellingur ársins. Fjöldinn allur
af tilnefningum barst í gegnum
heimasíðu blaðsins Mosfellingur.is.
Mörg skemmtileg ummæli fylgdu
með, eins og sjá má hér til hliðar.
Gísli í Dalsgarði - Stórkost-
lega duglegur og öflugur í
sinni iðju. Rósir Gísla eru lands-
þekktar sem og markaður þeirra
bræðra í Mosfellsdal.
Benedikt Erlingsson -
Kvikmyndin hans „Konan fer í
stríð” hlaut fullt af viðurkenningum
og hefur svo sannarlega boðskap.
Louisa Sif Mönster - Búin
að ganga í gegnum mikla
erfiðleika í kringum veikindi dóttur
sinnar. Ávallt með bros á vör og
fyrirmynd fyrir aðra.
Kalli í Bymos - Fyrir þraut-
seigju að halda úti þjónustu
í bæjarfélaginu um árabil.
Bjarki Bjarnason - Fyrirmynd-
ar Mosfellingur sem hefur
unnið mikið og óeigingjarnt starf
fyrir sveitarfélagið í tugi ára.
María Guðmundsdóttir - Frá-
bær leikkona. Stórskemmti-
legur og sannur Mosfellingur sem
oft hefur komið fram í sjónvarpi.
Kalli Tomm – Öflugur
tónlistamaður sem var
að gefa út sína aðra sólóplötu.
Þórdís Karlsdóttir - Tók þátt í
Jólastjörnunni og massaði það.
Svava Ýr – Fyrir öflugt starf
í þágu Aftureldingar og
Íþróttaskóla barnanna í fjölda ára.
Jogvan - Frábær náungi
og góður söngvari.
Katrín Halldóra Sigurðar-
dóttir - Leikur Ellý Vilhjálms
í leikritinu Ellý sem fólk dásamar.
Hún bjó sem barn í Mosfellsbænum
og er nú hún flutt hingað aftur.
Mosfellingur ársins 2018 er Óskar Vídalín en hann hef-
ur ásamt öflugum hópi stofnað Minningarsjóð Einars
Darra og hrint að stað þjóðarátakinu Ég á bara eitt líf.
Óskar missti 18 ára gamlan son sinn Einar Darra í
maí sl. eftir neyslu lyfseðilsskyldara lyfja. „Ég er ótrú-
lega þakklátur og tek á móti þessari viðurkenningu
fyrir hönd okkar allra sem standa að Minningarsjóðn-
um. Við höfum fengið mikla hjálp og frábærar mót-
tökur alls staðar, Mosfellingar hafa sýnt okkur mikinn
stuðning og styrk og fyrir það erum við gríðarlega
þakklát,“ segir Óskar.
Markmiðið að opna á umræðuna
Það eru foreldrar og systur Einars Darra, þau Óskar
Vídalín, Bára Tómasdóttir, Andrea Ýr og Aníta Rún
sem eru forsvarsmenn Minningarsjóðsins.
„Við ákváðum fljótlega eftir fráfall Einars Darra
þegar við áttuðum okkur á hve neysla lyfseðilskyldra
lyfja væri stórt vandamál meðal ungmenna að stofna
minningarsjóð í hans nafni. Við vildum nálgast þetta
verkefni í kærleika því það er alveg í anda Einars
Darra. Markmiðið er að opna umræðuna og vekja
athygli á vandamálinu því við uppgötvuðum hvað við
vissum lítið og hvað þetta kom okkur mikið á óvart.“
Forvarnafræðsla og þjóðfundur
„Við byrjuðum á að vekja athygli á málstaðnum
með bleikum armböndum, hettupeysum, húfum og
fleiru. Við vorum áberandi á útihátíðum og öðrum
viðburðum í sumar. Við völdum bleika litinn af því að
það var uppáhalds liturinn hans Einars Darra.
Við stofnuðum sjóðinn fyrst og fremst til að fara af
stað með forvarnafræðslu. Við höfum fengið gríðarlega
mikla aðstoð og góða styrki og hefjum fræðslu í grunn-
skólum í febrúar. Hún er gjaldfrjáls og verður beint að
börnum, foreldrum og kennurum,“ segir Óskar.
Þau sem standa að Minningarsjóðnum eru greini-
lega bara rétt að byrja en fyrirhugað er að halda þjóð-
fund unga fólksins í apríl. „Við erum að skipuleggja
ásamt góðu fólki fund þar sem hugsunin er að fá ungt
fólk alls staðar að af landinu til að taka þátt í umræð-
um og lausnum á þeim vandamálum sem það stendur
frami fyrir eins og kvíða, vanlíðan og fleira.“
Héldu óhefðbundin jól
„Við ákváðum að halda aðfangadag á óhefðbundinn
hátt. Við byrjuðum á að fara á Vog og á fíknigeðdeild
Landspítalans með um 100 jólagjafir. Við borðuðum
saman á heimili Báru og fjölskyldu á Akranesi og
opnuðum pakkana snemma. Svo vorum við öll saman
klukkan 18:00 í kirkjugarðinum við leiði Einars Darra.
Við höfum fengið sterk viðbrögð við þessari leið
sem við völdum til að vinna úr sorginni. Við gáfum
meðal annars út myndband þar sem birtar eru myndir
af látnum einstaklingum og vekja athygli á því að bak
við hvern einstakling situr eftir stór hópur, fjölskylda
og vinir. Viðbrögðin við því hafa verið mjög sterk og
við vonum að þetta skili sér og hjálpi öðrum.
Þegar maður verður fyrir svona áfalli þarf maður að
taka ákvörðun og ég segi fyrir mig að starfið í kringum
Minningarsjóðinn hjálpar mér að takast á við sorgina,“
segir Óskar að lokum.
FYRIR ALLA - ENGIN BINDING
VILTU VINNA FERÐ FYRIR TVO TIL BALI?
VIKUFERÐ Í FITNESS BOOT CAMP MEÐ ÖLLU
SJÁ NÁNAR Á REEBOKFITNESS.IS