Mosfellingur - 10.01.2019, Qupperneq 10
- Dreift frítt í Mosfellsbæ, Kjalarnes og Kjós10
Útskriftarhátíð Framhaldsskólans í
Mosfellsbæ fór fram fimmtudaginn 20.
desember við hátíðlega athöfn í húsnæði
skólans við Háholt 35.
Að þessu sinni voru alls 26 nemendur
brautskráðir frá FMOS. Einn útskrifaðist
af sérnámsbraut, tveir af náttúrufræði-
braut, sextán af opinni stúdentsbraut og
sjö af félags- og hugvísindabraut.
Útskriftarnemendum voru veittar viður-
kenningar fyrir góðan námsárangur
Elmar Skúli Vígmundsson fékk
viðurkenningu fyrir góðan námsárangur
í kvikmyndafræði og spænsku og Erna
Jökulsdóttir fékk viðurkenningu fyrir
góðan námsárangur í íslensku, líffræði og
stærðfræði. Fyrir góðan námsárangur í
umhverfisfræði fékk Jason Daði viður-
kenningu og Úlfar Darri Lúthersson fékk
viðurkenningu fyrir góðan námsárangur
í heimspeki. Fyrir góðan námsárangur
í lýðheilsugreinum fékk Gunnar Ingi
Garðarsson viðurkenningu og Ögmundur
Ísak Ögmundsson fékk viðurkenningu
fyrir góðan námsárangur í sögu.
Verðlaun fyrir hæstu einkunn á stúd-
entsprófi fékk Úlfar Darri Lúthersson.
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ kennir
sig við auðlindir og umhverfi í víðum skiln-
ingi og þær áherslur eru samfléttaðar við
skólastarfið.
Útskriftarhátíð í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ 20. desember • Úlfar Darri með hæstu einkunn á stúdentsprófi
26 nemendur brautskráðir frá FMOS
glæsilegur hópur útskriftar-
nemenda ásamt skólameisturum
Kristinn Magnússon hóf störf hjá Mosfellshreppi 1985
Lætur af störfum eftir
34 ár hjá Mosfellsbæ
Kristinn Magnússon verkstjóri trésmiðju lét af störfum fyrir Mosfellsbæ vegna aldurs nú
um áramótin. Hann réði sig til starfa hjá bænum þann 15. apríl 1985 og hefur því starfað
hjá Mosfellshreppi og síðar Mosfellsbæ í tæp 34 ár. Mosfellsbær hélt honum kveðjukaffi
í Listasalnum á dögunum. Á myndinni má sjá Kristinn Magnússon smið ásamt Haraldi
Sverrissyni bæjarstjóra og Jóhönnu B. Hansen bæjarverkfræðingi.
haraldur, kristinn og jóhanna
í listasal mosfellsbæjar
Dagmar Dögg og Anna Filbert með flestar tilnefningar
Velja Kjalnesing
ársins í fyrsta sinn
Ungmennafélag Kjalnesinga, UMFK, stóð
fyrir kosningu um Kjalnesing ársins 2018.
Þetta er í fyrsta skipti sem kjörið fer fram
og urðu þær Dagmar Dögg Þorsteinsdóttir
og Anna Filbert efstar og hljóta því báðar
titilinn Kjalnesingur ársins.
Dagmar Dögg Þorsteinsdóttir er Kjalnes-
ingur í húð og hár og er umhugað um sam-
félagið. Hún hefur verið virkur þátttakandi
í félagsstörfum og er ein þeirra sem byggði
upp Kjalnesingadaga og heldur enn utan
um það verkefni. Hún sat í stjórn UMFK
í sjö ár og tók einnig þátt í því að koma
þorrablótinu aftur á laggirnar.
Anna Filbert er aðgerðarstjóri og sjálf-
boðaliði í Björgunarsveitinni Kili á Kjalar-
nesi. Hún hefur starfað í björgunarsveitinni
í 17 ára og er alltaf til taks þegar á þarf að
halda. Önnu er umhugað um öryggi allra.
Anna er einnig hvatning fyrir aðra þegar
kemur að hreyfingu en hún mætir daglega
í sund og iðulega á hjóli.
Á myndunum má sjá Kjalnesinga ársins
taka við viðurkenningu frá UMFK.
dagmar dögg og
formaður umfk
anna filbert og
björgvin formaður umfk