Mosfellingur - 10.01.2019, Page 18
- Nýársávarp bæjarstjóra Mosfellsbæjar18
Kæru Mosfellingar!
Um áramót er hefðbundið að líta yfir farinn veg, rifja
upp og meta hvernig liðið ár hefur gengið og ekki síður
að velta fyrir sér hvað bíður okkar á nýju ári.
Árið 2018 var stórt afmælisár hjá okkur Íslendingum.
Því var fagnað að 100 ár voru liðin frá því að Ísland fékk
fullveldi frá Dönum árið 1918. Margt hefur drifið á daga
íslenskrar þjóðar á þessum 100 árum og hún færst úr
fátækt í að verða meðal best stöddu samfélaga veraldar.
Sú staðreynd sýnir vel hvað býr í íslensku þjóðinni og
hvers við erum megnug sem samfélag og þá sérstaklega
þegar við stöndum saman. Árið 2018 var líka hagfellt
þjóðarbúinu og hagvöxtur hélt áfram að vaxa þó hægt
hafi á vexti hans frá síðustu árum.
Verkefni næstu ára verður að vinna af yfirvegun
úr þeim mikla uppgangi sem verið hefur í íslensku
efnahagslífi síðustu árin og sjá til þess að samdráttur
í hagvexti hafi ekki óæskileg áhrif á hagkerfið þannig
að lendingin verði mjúk og farsæl. Mikilvæg forsenda
þess er að gera skynsamlega kjarasamninga nú í vor.
Kjarasamninga sem fela í sér kaupmáttaraukningu en
eru þeirrar gerðar að atvinnulífið standi undir þeim og
þannig að þeir hrindi ekki verðbólgu af stað. Við höfum
verið svo lánsöm að vera laus við þann draug síðustu ár
sem er meginástæða þess að kaupmáttaraukning hefur
verið í hæstu hæðum hér á landi undanfarin ár.
Í maí sl. var gengið til sveitarstjórnarkosninga. Þær
voru að mörgu leyti sérstakar í Mosfellsbæ. Óvenju mörg
framboð buðu fram í kosningunum eða samtals átta sem
telst mjög mikið í ellefu þúsund manna sveitarfélagi.
Þessi fjöldi framboða þýddi meiri dreifingu atkvæða og
varð niðurstaðan sú að sex af þessum átta framboðum
fengu mann inn í bæjarstjórn. Nú sitja sjö karlar og tvær
konur í bæjarstjórn sem eru kynjahlutföll sem eru ekki
til eftirbreytni.
Sjálfstæðisfólk getur unað vel við úrslit kosninganna.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk fjóra menn kjörna í bæjar-
stjórn en hin framboðin fimm fengu einn mann hvert.
Fljótlega að kosningum loknum var gengið frá málefna-
samningi um áframhaldandi samstarf Sjálfstæðisfólks
og Vinstri grænna í bæjarstjórn. Samstarf sem hefur
staðið yfir frá því í maí 2006 og hefur reynst samfélaginu
hér í Mosfellsbæ afar farsælt. Við Sjálfstæðisfólk og ég
persónulega erum afar þakklát og stolt yfir þeim mikla
stuðningi sem við hlutum í kosningunum enda fengum
við þar skýrt umboð til að halda áfram að leiða stjórn
bæjarins næstu fjögur árin.
Góður gangur í Mosó
Mikill uppgangur er í Mosfellsbæ um þessar mundir.
Íbúafjölgun á árinu 2018 var rúmlega 8% og er það ann-
að árið í röð sem íbúafjölgun í Mosfellsbæ fer yfir 8%.
Þetta er fordæmalaus vöxtur og lýsir fyrst og fremst vin-
sældum Mosfellsbæjar til búsetu. Leirvogstunguhverfið
er að nálgast það að verða fullbyggt og í Helgafellshverfi
heldur uppbygging áfram. Þéttasti hluti þess sem kallast
Augað er að verða fullbyggt og áfram verður haldið með
næstu áfanga á komandi árum þar sem verður um að
ræða dreifðari byggð en í Auganu.
Loks á mikil uppbygging sér stað í miðbænum okkar
þar sem rúmlega 200 íbúðir eru í byggingu auk hús-
næðis fyrir verslun og þjónustu. Því er fyrirséð að Mos-
fellingum mun halda áfram að fjölga þó að það verði
væntanlega ekki af þeirri stærðargráðu sem hefur verið
síðustu tvö árin.
Íbúafjölgun af þessum skala kallar á fjárfestingar og
frekari eflingu innviða. Á árinu 2019 verður slegið met í
fjárfestingu og þar ber hæst tvö verkefni. Annars vegar
bygging Helgafellsskóla en fyrsti áfangi hans var tekinn
í notkun nú í vikunni. Hins vegar bygging fjölnota knatt-
húss að Varmá sem áformað er að taka í notkun næsta
haust.
Smærri framkvæmdir eru einnig á áætlun og má þar
nefna endurbætur á húsnæði Varmárskóla, útskipting
allra gólfefna í íþróttasölum að Varmá og þátttaka í upp-
byggingu skíðasvæða höfuborgarsvæðisins m.a. í Skála-
felli. Miklar gatnagerðarframkvæmdir eru einnig áætlað-
ar en gatnagerðargjöld munu standa undir þeim.
Meiri og betri þjónusta en lægri álögur
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2019 einkennist af því að
þjónusta eykst og álögur lækka. Framtíðarsýn okkar er
sú að að Mosfellsbær sé fjölskylduvænt, heilsueflandi og
framsækið bæjarfélag sem setur umhverfið í öndvegi og
hefur þarfir og velferð íbúanna að leiðarljósi.
Fjárhagsáætlun árisins 2019 er ætlað að endurspegla
áherslur sem færa okkur enn nær þessari framtíðarsýn.
Efnahagslega, félagslega og umhverfislega sjálfbær vöxt-
ur er lykillinn að því að raungera þessa framtíðarsýn.
Nú sem fyrr ríkir gott jafnvægi í rekstri Mosfellsbæjar
og allar okkar helstu kennitölur eru þar sem við viljum
hafa þær.
Á sviði skóla- og frístundamála verða engar hækkanir
á gjaldskrám fyrir utan verðlagshækkun á skólamáltíð-
um næsta haust og þá munu leikskólagjöld lækka um
5% á árinu 2019. Þá er gert ráð fyrir að komið verði á fót
tuttugu nýjum plássum á leikskólum fyrir 12-18 mánaða
börn og eru þá orðin samtals um 70 pláss á ungbarna-
deildum leikskóla bæjarins. Áfram verður verulegum
fjármunum varið til upplýsinga- og tæknimála skólanna
sem bæta aðstöðu í grunn- og leikskólum bæjarins. Á
sviði fjölskyldumála munu framlög til afsláttar á fast-
eignagjöldum tekjulægri elli- og örorkuþega hækka um
25% og komið verður á fót heimili fyrir geðfatlaða. Þá
mun framlag í lista- og menningarsjóð hækka um 20%.
Framlög til viðhalds húsa og lóða bæjarins verða aukin
þriðja árið í röð.
Loks stendur fyrir dyrum endurskoðun á aðalskipu-
lagi, lokið verður við mótun umhverfisstefnu og hafist
verður handa við mótun lýðheilsu og forvarnarstefnu.
Þá verður skólastefnan endurskoðuð. Á sviði miðlægrar
þjónustu verður unnið að verkefnum sem lúta að því að
sækja fram á sviði rafrænnar þjónustu og stjórnsýslu
þvert á skipulag bæjarins í samvinnu við íbúa. Loks verð-
ur lýðræðisverkefnið Okkar Mosó sett af stað á nýju ári.
Okkur Mosfellingum eru allir
vegir færir og með gildin okkar
góðu VIRÐINGU – JÁKVÆÐNI
- FRAMSÆKNI og UMHYGGJU
sem leiðsögn höldum við
áfram að feta veginn með heill
og hamingju íbúa í forgrunni.
Ég vil nota tækifærið og
þakka ykkur öllum fyrir gott
samstarf, samskipti, vináttu og
stuðning á árinu 2018 og megi
nýrunnið ár verða okk-
ur öllum gæfuríkt og
gleðilegt.
Haraldur
Sverrisson
bæjarstjóri
Nýársávarp bæjarstjóra Mosfellsbæjar
Um áramót
Takk fyrir
sTuðninginn
30 X 50 CM
Félagar í Björgunarsveit-
inni Kyndli þakka bæjar-
búum fyrir stuðninginn
á árinu sem var að líða
og óska þeim velfarnaðar
á nýju ári.
-Kveðja
félagaríKyndli
Þetta er fordæmalaus vöxtur
og lýsir fyrst og fremst vinsældum
Mosfellsbæjar til búsetu.