Mosfellingur - 10.01.2019, Qupperneq 23
Kosning
á www.mos.is
sundmaður Aftureldingar
Á þessu ári hefur hann bætt sig mikið í
flest öllum sundum og er nálægt því að
ná lágmarki inn á Íslandsmeistarmót
í sundi. Stendur sig vel á æfingum og í
keppni. Sigurður hefur æft sund í fjölda
ára og er nú farinn að aðstoða þjálfar-
ana í þjálfun yngri flokka.
Sigurður er ekki bara frábær sundmað-
ur, hann er einnig ómetanleg fyrirmynd
sem yngri sundkrakkar líta upp til á
hverjum degi.
sigurður Þráinn sigurðsson sund
Hjólreiðarmaður Aftureldingar
Stefán Haukur Erlingsson fær þann
heiður að vera sá fyrsti í sögunni sem
er tilnefndur af hjóladeild Aftureldingar
sem var stofnuð í apríl 2018. Það er því
einstök ánægja að skoða afrek Stefáns
fyrir þessa nýju deild.
Vortímataka TT Breiðabliks
4. sæti í heildina – 2. sæti í aldursflokki
Cervelo TT
5. sæti í heildina – 2. sæti í aldursflokki
TT Íslandsmót
5. sæti í heildina – 2. sæti í aldursflokki
Cube TT
3. sæti í heildina á öllum þremur mótum.
Wow Cyclothon 2. sæti í 10 manna
keppni. Bluelagoon Challenge
5. sæti í heild – 1. sæti í aldursflokki.
stefán Haukur Erlingsson hjólreiðar
Hestaíþróttamaður Harðar
Reynir Örn Pálmason er fæddur árið
1971 og hefur verið í hestamannafé-
laginu Herði alla tíð. Á árinu 2018 var
Reynir í landsliðinu á Norðurlandamóti
sem var haldið í Svíþjóð. Hann keppti
þar til úrslita.
Reynir keppti í Meistaradeild Cintamani
í vetur og á mótum innanlands með
góðum árangri.
Eftirfarandi er árangur hans 2018:
Meistaradeild 150 m skeið - 7. sæti
Allra sterkustu 7. sæti
Íþróttamót Harðar - tölt T2 - 1. sæti
Fimmgangur - 1. sæti
Gæðingamót Harðar - A-flokkur - 1. sæti
Skeiðleikar - 150 m skeið - 4. sæti
Norðurlandamót - slaktaumatölt - 5. sæti
Reynir Örn Pálmason hestaíþróttir
Íþróttamaður Taekwondo
deildar Aftureldingar
Wiktor hefur í gegnum árin verið einn
okkar efnilegasti keppandi í taekwondo,
og er nú orðinn okkar besti keppandi.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Wiktor
vakið eftirtekt fyrir einstaklega ljúfa
og þroskaða framkomu hvort sem er á
mótum, í landsliði eða á æfingum hjá
félaginu.
Wiktor er jafnvígur á báða hluta
íþróttarinnar, bardaga og form, og hefur
verið fastamaður í báðum landsliðum
TKÍ. Wiktor er okkar yngri keppendum
einstök fyrirmynd og mun á næstu árum
verða burðarás í starfsemi félagsins og
á fullt erindi í hóp þeirra bestu í Evrópu.
wiktor sobczynsky taekwondo
Karatemaður Aftureldingar
Þórður hefur æft karate hjá Aftureld-
ingu frá 6 ára aldri og verið í afrekshóp
síðastliðin ár. Í vor var hann valinn til að
æfa og keppa með A-landsliðinu í kata.
Þórður hefur tekið miklum framförum
á árinu og leggur sig allan fram. Hann
fór til Spánar í sumar á eigin vegum til
æfinga ásamt nokkrum félögum.
Helsti árangur á mótum 2018:
RIG - 3. sæti kata og 3. sæti kumite
GrandPrix mót KAI - 2. sæti kata og 3.
sæti kumite
Íslandsm.mót unglinga í Kata - 3. sæti
Smáþjóðamót í San Marino - 3. sæti kata
Bikarmót KAI - 3. sæti kata
Norðurlandameistaramót - 5. sæti kata
3. GrandPrix mót KAI - 1. sæti kata
Þórður Jökull Henrysson karate
Útnefning á íþróttakarli
og íþróttakonu
Mosfellsbæjar 2018
Kynning á íþróttakörlum sem
tilnefndar eru vegna kjörs til
íþróttakarls mosfellsbæjar 2018,
og afrekum þeirra á árinu.
Kosning fer fram á vef mosfellsbæjar www.mos.is dagana
10. - 15. janúar. Velja skal karl í 1., 2. og 3. sæti sem
og konu í 1., 2. og 3. sæti. Kosningin er ekki gild
nema valið sé í öll þrjú sætin.
Úrslit verða kynnt fimmtudaginn
17. janúar kl. 19 í Íþróttamiðstöðinni að Varmá.