Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Side 8
Ég held bara með fótboltanum.“Þetta segir yngri bróðir minnstundum þegar hann horfir á
fótboltaleik án þess að halda með
öðru hvoru liðinu. Honum er þá mest
umhugað um að leikurinn sé góður,
leikmenn beggja liða sýni góða takta,
fái nóg af færum og skori mörk á
báða bóga. Hvort hann fagnar til-
teknu marki fer aðallega eftir því
hvort markið var „gott fyrir leikinn“,
eins og sagt er. Ef annað liðið kemst
yfir vill hann að hitt jafni sem fyrst.
Síst af öllu vill hann að annað liðið nái
algjörum yfirburðum. Það væri alls
ekki gott fyrir leikinn og myndi
sennilega eyðileggja hann.
Frábær árangur
Kjarasamningar eru viðureign þar
sem mikilvægt er að báðir skori. Það
er best fyrir leikinn. Hagsmunir allra
eru að hvorugur tapi. Til að tryggja
þetta er auðvitað frumskilyrði að það
liggi fyrir hver staðan er.
Einn mikilvægur mælikvarði á
stöðuna er hversu stór hluti virðis-
aukans sem til verður í landinu fer í
vasa vinnandi fólks og hversu stór
hluti fer í vasa þeirra sem eiga fyrir-
tækin og fjármagnið. Á þennan mæli-
kvarða er íslenskt vinnuafl heims-
meistari í OECD-deildinni. Hér fara
um 63% virðisaukans til launafólks
en 37% til þeirra sem eiga fyrirtækin
og fjármagnið. Í
þeirri ábendingu
felst engin afstaða til
þess hvaða hlutfall
er sanngjarnt. Hér
er eingöngu bent á
það er hvergi hærra
en hér. Í mörgum
OECD-löndum fær
launafólk aðeins um
helming virðisauk-
ans og sums staðar
jafnvel minna en
þriðjung.
Ísland er ótvíræður Norðurlanda-
meistari í kaupmáttaraukningu á ár-
unum 2014-2017 og vinnur það mót
með allmiklum yfirburðum. Það segir
sitt um stöðuna.
Sem og það að á Íslandi eru bæði
meðallaun og lægstu laun með þeim
allra hæstu sem þekkjast í heiminum.
Fleiri alþjóðlegir titlar
Gylfi Zoega benti á það á liðnu ári, í
greiningu sinni á stöðu efnahagsmála
í aðdraganda kjarasamninga, að fá-
tækt hér væri lítil í alþjóðlegum sam-
anburði; hlutfall þeirra sem hefðu
innan við 50% af miðtekjum hefði
verið 6,5% á Íslandi árið 2014 en til
samanburðar 9% í Svíþjóð, 10,5% á
Bretlandi og 17,5% í Bandaríkjunum.
Tölur Hagstofunnar sýna okkur að
Ísland er Evrópumeistari í tekjujöfn-
uði, mælt á gini-stuðul.
Þá sýna tölur OECD að munurinn
á þeim sem eru nálægt hæstu tekjum
annars vegar (lægstir í hópi 10%
tekjuhæstu) og þeim sem eru nálægt
lægstu tekjum hins vegar (hæstir í
hópi 10% tekjulægstu) er næst-
minnstur hér á landi. Við erum því
silfurverðlaunahafar í OECD-
deildinni hvað þetta varðar, næst á
eftir Danmörku. Munurinn er u.þ.b.
þrefaldur hér á meðan algengur
munur í öðrum OECD-löndum er
fjórfaldur og fimmfaldur og þaðan af
meiri.
Viðkvæm staða
Við verðum að verja ofangreindan
árangur og hann sýnir að það er ekki
tilefni til að skipta um kúrs með rót-
tækum hætti. Ennþá síður í ljósi
þess hve viðkvæm staðan er. Óvenju-
legar aðstæður hafa valdið því að
launahækkunum undanfarinna ára
hefur ekki fylgt verðbólga og við-
skiptahalli með tilheyrandi gengis-
sigi og enn meiri verðbólgu, sem rýrt
hefði kaupmátt. Ein
meginástæðan fyrir
þessu er vöxtur
ferðaþjónustunnar,
sem hefur styrkt
gengi krónunnar og
þannig lækkað verð
innfluttra vara. Nú
er hins vegar farið að
draga verulega úr
vexti hennar. Þá eru
blikur á lofti í flug-
rekstri eins og allir
vita. Ferðaþjónustan er auk þess
mannaflsfrek atvinnugrein og því
munu launahækkanir hafa meiri
áhrif á samkeppnishæfni hennar en
annarra stærstu útflutningsgreina
okkar. Staðan er því viðkvæm og
vandséð að sömu þættir og áður geti
gefið okkur skjól fyrir verðbólgu í
annað sinn.
Höldum með
knattspyrnunni
Ekkert af þessu breytir því að við
leggjum öll áherslu á að lífskjör haldi
áfram að batna. Samtök launafólks
eiga að sjálfsögðu að sækja þær fast.
Það verður hins vegar að vera inni-
stæða fyrir þeim.
Stjórnvöld halda ekki með öðru
liðinu umfram hitt í þessari viður-
eign. Stjórnvöld halda einfaldlega
með knattspyrnunni. Það er að
segja: Við höldum með verðmæta-
sköpun, hagvexti, bættum lífskjörum
og auknum kaupmætti alls almenn-
ings.
Til að þetta markmið náist má
hvorugur aðilinn valta yfir hinn. Það
myndi eyðileggja leikinn.
Hagsmunir allra
að hvorugur tapi
’Á þennan mæli-kvarða er íslensktvinnuafl heimsmeist-ari í OECD-deild-
inni. Hér fara um
63% virðisaukans til
launafólks en 37% til
þeirra sem eiga fyrir-
tækin og fjármagnið.
Morgunblaðið/Eggert
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.1. 2019
VETTVANGUR
Nanna Rögnvaldardóttir, mat-
argúrú með meiru, rifjaði upp á
Facebook tæplega 50 ára gamla
grein úr Vikunni:
„Árið 1970
spurði Vikan 12
einstaklinga
spurningarinnar:
„Hvaða augum lít-
ur þú á kynvillu?“ Það vekur athygli
að þeir yngri í hópnum virðast
dómharðari en hinir eldri en svör
þeirra (þetta er held ég allt fólk á
aldrinum 18-25 ára).“ Meðal svara
sem Nanna birti var þetta:
„Ég vorkenni þessu fólki, og tel
að þetta sé sjúkdómur. Já mér
finnst þetta alvarlegra en t.d. þjófn-
aður og morð.“
Einar Kárason rithöfundur
skrifaði á Face-
book:
„Maður veit að
það er ekki pass-
andi, en stundum
hvarflar að mér að
umhverfis- og kolefnisumræðan sé
skrýtin. Í dag, uppúr hádegi, heyrði
ég á Rás eitt pælingar, byggðar á
amerískum rannsóknum, um kol-
efnisspor eftir hunda og ketti í
USA, og hvort lausnin væri ekki sú
að gæludýrin okkar yrðu gerð veg-
an. Og maður hugsar: ætli Hnött-
urinn sé þess virði að lifa á honum
ef við getum ekki unnt hinum dýr-
unum að éta það sem þeim sýnist?“
Og Kristján B. Jónasson bóka-
útgefandi skrifaði í tilefni pælinga
um að seinka klukkunni á Íslandi
eða ekki: „Farinn að sofa. Þið B-
fólk, farið líka að sofa svo þið getið
vaknað kl. 6 og hætt að kvelja okk-
ur með þessu klukkurugli ykkar.“
AF NETINU
„Þvílíkur munur!
Ég bæði sef fastar og sofna fyrr. Ég ligg ekki andvaka á koddanum og
vakna endurnærð og úthvíld. Ég sef alla nóttina og er ekki sífellt að
vakna upp eins og áður. Ég mæli hiklaust með Melissa Dream fyrir alla“
Elsa M. Víðis
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. Nánari á icecare.is
Valið besta
bætiefni við streituhjá National Nutrition
í Kanada
Betri svefn
Melissa Dream er
vísindalega samsett
náttúrulyf, hannað til að
stuðla að djúpri slökun
og værum svefni.
Þessi blanda inniheldur ekki efni
sem hafa sljóvgandi áhrif.
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
ÚTSALA
30-50% afsláttur
af völdum vörum