Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Blaðsíða 13
Getty Images/iStockphoto fram. Þannig að við megum ekki gera tilraunir á börnunum okkar nema taka þær þá út; hverjir eru kostirnir, hverjir eru gallarnir og hvernig getum við sniðið agnúana af.“ Björn bendir á nýjar rannsóknir frá bæði Danmörku og Finnlandi sem benda til að þær gömlu kennsluaðferðir sem hafa þróast í gegn- um aldirnar séu enn sem komið er öflugri en spjaldtölvan. „Sérstaklega er það finnsk rann- sókn sem tiltekur að það að geta treyst barni fyrir spjaldtölvu, og það noti hana til náms, krefjist þess að barnið hafi eðlisþætti eins og góðan sjálfsaga, frumkvæði, sýni sjálfstæði í vinnubrögðum, einbeitingu og sé sveigjanlegt. Vandamálið er að þetta eru eiginleikar sem ekkert barn hefur fullþroskað, þetta er ekki komið svona snemma hjá börnum, þau þurfa að fá tækifæri til að þroska þá áður en þau geta notað spjaldtölvu á þennan hátt sem er krafist. Ég óttast að við séum að leggja of þung verk- efni á börnin okkar, þroski þarf að vera í sam- ræmi við þau verkefni sem þau fá.“ Björn segir að það sé eitthvað í samhæfingu hugar og handar sem sé mjög dýrmætt. „Þessar fyrstu niðurstöður sem eru að ber- ast á rannsóknum á samanburði náms í spjald- tölvum og ekki spjaldtölvum benda til þess að til dæmis stærðfræðinám sé betra þegar þú teiknar sjálfur á blaðið en þegar þú lætur tölv- una gera það. Það er ekki hægt að skipta þess- um aðferðum umhugsunarlaust út hjá börnum, bara tækninnar vegna.“ Skjátími á ábyrgð foreldra Eitt helsta umræðuefni foreldrasamfélagsins síðasta árið hefur verið svokallaður skjátími, hvað sé mátulegur skjátími í heild, það er að „Það virðist vera að í sterku fjölskyldunum, þar sem er gott utanumhald og báðir foreldrar til staðar, takist betur að stýra þessari notkun og hafa áhrif á hana,“ segir Björn Hjálmarsson, sérfræðilæknir á barna- og unglingageðdeild Landspítalans, BUGL. Morgunblaðið/Eggert 13.1. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.