Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Qupperneq 14
SKJÁNOTKUN 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.1. 2019  Þrátt fyrir fljúgandi framfarir í tækni hafa vísindamenn bent á að sárlega skorti rannsóknir sem skoða áhrif skjánotkunar á heila barna. Ein slík og afar stór stendur þó yfir en svokölluð A.B.C.D.-rannsókn stendur yfir í Bandaríkjunum, gerð af Heilbrigðismálastofnun Bandaríkjanna, og tekur þar fyrir ýmis utanaðkomandi áhrif og hvernig þau hafa áhrif á þroska heilans. Algjörar frumniðurstöður úr rannsókn- inni voru birtar nýlega og erfitt að túlka þær strax en þær sýna að heili hluta þeirra barna sem notuðu snjallsíma, spjaldtölvur og spiluðu tölvuleiki meira en sjö tíma á dag, hafði tekið breytingum sem heili barna sem ekki voru jafnmikið við skjá hafði ekki gert. Vísindamenn treysta sér ekki enn til að ákvarða hvort þær breytingar þýði eitthvað slæmt en ljóst er að það mun taka nokkur ár að fá fullnægjandi niðurstöður úr rannsóknunum og hvaða líf- fræðilegu áhrif það eru sem skjánotkun hefur.  Yngsti aldurshópurinn, börn undir tveggja ára, er sá hópur sem helst þarf að hafa áhyggjur af að mati Bandarísku barnalæknasamtakanna en í þeirra nýjustu útgefnu viðmiðunarreglum um skjátíma barna segir að það eigi alls ekki að láta börn undir 18-24 mánaða aldri vera við skjá. Í viðtali við CBS News sagði bandaríski barnageðlæknirinn Di- mitri Christakis að það sem lítil börn lærðu með spjaldtölvu yfirfærðu þau ekki á raunheim. Það að læra að raða upp kubbum í appi í iPad gagnaðist þeim ekki til að kubba til dæmis í veru- leikanum og um leið færu þau á mis við ákveðinn þroska sem þau tækju út þar. „Ef þú hefur áhyggjur af því að ungling- urinn þinn sé ánetjaður snjallsímanum skaltu hafa í huga að litla barnið er í miklu viðkvæmari stöðu gagnvart þessum tækj- um,“ sagði Christakis og benti á að ákveð- inn sálfræðihernaður væri í gangi í hönnun á tækjum og öppum þar sem keppt væri að því að láta notendur ekki hætta að nota hlutinn. Ekki væri hægt að benda á eldri tól með sama hætti. Ef fólk benti á að fyrir nokkrum áratugum hefði fólk haft áhyggjur af því að unglingar töluðu of mikið í símann þá hefði sami verkfræðiher ekki verið að baki tækjunum til að hæna notendur til að leggja tólið aldrei frá sér.  Bandaríski sálfræðingurinn Tom Ker- sting hefur verið ötull talsmaður þess vestanhafs að skjátími barna sé takmark- aður, gefið út fjölmargar bækur um efnið og fjallað um það í fjölmiðlum vestanhafs. Kersting hefur einkum skoðað tilfinninga- legar afleiðingar fyrir ungmenni og bendir á í bók sinni Disconnected að foreldrar spili stóra rullu og þeirra hegðun skipti miklu máli. Foreldrar sem séu sífellt að skoða annarra manna líf á Instagram og öðrum samfélagsmiðlum ali börn upp í að „læk“ og deilingar á lífinu eins og það líti út fyrir að vera full- komið skipti mestu máli; börn- in meðtaki það sem sannleik að það skipti miklu máli hvernig líf þeirra líti út í augum annarra.  Rannsóknir hafa sýnt að þunglyndi og kvíði unglinga og barna eykst við að vera mikið á samfélagsmiðlum og þá einkum hjá stúlkum sem nota miðlana einnig meira á þessum aldri. Kersting bendir á að áður en samfélagsmiðlar komu til sög- unnar hafi börn verið ómeðvitaðri um hvernig líf annarra var í samanburði við þeirra. Þau voru ekki sífellt með æðisleg sumarfrí annarra fyrir augunum eða partí- in sem aðrir voru í en ekki þau. Þó vissu- lega hafi fólk borið sig saman hafi fólk ekki haft myndir til að skoða aftur og aftur og velta sér upp úr og ekki verið minnt jafn- rækilega á að aðrir hefðu það betra en þau. Undir smásjá vísindamanna segja sá tími sem börn eyða samanlagt fyrir framan rafræna skjái á degi hverjum; sjón- varp, tölvur, símaskjái og svo framvegis. Rannsóknir sýna að skjátími er langt um- fram öll viðmið og það sem ráðlagt hefur verið en það eru þá leiðbeiningar sem koma frá bandarísku barnalæknasamtökunum. Engin skjátæki fyrir þau yngstu „Það má segja að bandarísku barnalækna- samtökin beri höfuð og herðar yfir aðrar stofn- anir í þessum málum en samtökin hafa verið vakin og sofin yfir þessari hröðu tæknibyltingu. Þau gáfu út leiðbeiningar árið 2011 sem voru svo endurskoðaðar 2016 og eru strangastar sé litið til yngstu barnanna. Þau sem eru undir 18 mánaða aldri á ekki að setja fyrir framan skjátæki og byggist það meðal annars á því að hver hálftíma aukning í skjátíma á dag fyrir þennan aldurshóp þýðir 50 prósent seinkun í máltökunni. Mikil áhersla er lögð á að tveggja til fimm ára gömul börn séu alls ekki ein í skjátækjunum. Án undantekninga þurfa foreldrar að stýra notk- uninni, með ströngum tímarömmum, og er þar miðað við í mesta lagi eina klukkustund á dag. Þetta eru einkum tvenns konar áhrif sem við höfum áhyggjur af. Annars vegar áhrif þess- arar sjónrænu oförvunar og svo líka hvaða góðu virkni er ýtt í burtu vegna þess að barnið er í skjátækjunum. Til dæmis að æfa sig í sam- skiptum, spjalla eða í leik með foreldrum eða í ímyndunarleik þar sem barnið er eitt með leik- föngum, skjárinn ryður öðru úr vegi. Varðandi 6-18 ára hópinn þá var viðmiðið tveir tímar á dag árið 2011 en um leið og tíminn fer að lengjast meira hefur það fylgni við vax- andi ofþyngd, svefnvandamál og geðslags- breytingar. Vandinn var sá með þennan aldurshóp að þótt samtökin gæfu þessar leiðbeiningar út árið 2011 þá fór enginn eftir þeim. Núna hafa samtökin því ákveðið að leggja ábyrgðina meira til for- eldra og það sem foreldrar þurfa að vakta er að skjátími sé ekki meiri en barnið þolir.“ Að vakta skjátíma barna og unglinga er stórt verkefni fyrir foreldra, hvað geta þeir haft í huga við það verkefni? „Mikilvægt er að það séu skjáfrí svæði á heimilinu og börnin séu vöktuð og til dæmis er mjög mikilvægt að svefnherbergið sé eitt af þeim svæðum og börn séu ekki með skjái þar inni. Einnig að það séu skjáfríir tímar dagsins, eins og við kvöldverðarborðið, þar sem allir fara yfir daginn sinn, sé fólk ekki í símanum. Það þarf að eiga í samtali við börnin um samborgaralegar skyldur, vara þau við hætt- unum á netinu og svo er stærsta vandamálið; þau áhrif sem þetta hefur á svefninn, en rann- sóknir sýna að ekki nema sjö prósent íslenskra unglinga fá nægjanlegan svefn. Þetta slær mann eins og meirihátt- ar lýðheilsuvandamál.“ Heldurðu að for- eldrar hafi sofnað á verðinum? „Fyrir tveimur árum, þegar ég talaði við fólk um þetta, rak það yf- irleitt upp stór augu þegar við fórum að ræða um skjátíma. Mér finnst það breytt. Stór hluti fólks hefur með- tekið þessa opinberu umræðu og áttar sig á verkefninu; að við þurfum að ramma þetta inn þannig að það séum við sem stjórnum tækninni en ekki hún sem stjórnar okkur. Ég upplifi þetta þannig að við séum að vakna af dvalanum. Maður sér þess líka merki að sálfræðingar í Bandaríkjunum eru farnir að velta þeim spurningum upp hvort það sé siðferðislega rétt að nota aðferðir sálfræðinnar til að gera þessi tæki meira aðlaðandi og alls konar að- ferðir til að örva notkunina. Börn og unglingar eru algjörlega varn- arlaus gagnvart þessum aðferðum og í sam- skiptaforritum og í tölvuleikjum eru inn- byggð atriði sem örva áframhaldandi notkun og það er trúlega það sem gerist þegar skjá- fíkn verður að vanda- máli; að við förum að of- nota verðlaunabrautirnar okkar og verðum háð þessari örvun.“ Þörf á lýðheilsurannsókn Stjórnvöld í Kína, Japan og Suður-Kóreu eru að sögn Björns farin að líta á skjávæðingu sem lýðheilsuvandamál og Björn segir mikilvægt að vera vakandi yfir því að slíkt getur gerst hér líka. „Heilsufarslega er þetta eins og fyrr segir enn verra fyrir þá sem eru veikir fyrir. Veik- ustu börnin okkar á BUGL verða enn veikari ef þau missa tökin á skjánotkuninni. Það eru ýmis vandamál sem eru beinar afleiðingar. Við höfum séð að börn hætta að mæta í skóla því þau vilja frekar vera í tölvunni og það er nokk- uð sem við höfum ekki þekkt áður. Ég hef haft pata af því að unglingar og þá sérstaklega stúlkur séu mikið á samskiptamiðlunum á nóttunni sem kemur þá niður á svefni og líðan. Vandamál drengjanna liggur frekar í ofnotkun á tölvuleikjum. Nú geisar offitufaraldur á heimsvísu og auk- in líkamsþyngd er kannski best rannsakaða af- leiðing af löngum skjátíma. Maður spyr sig líka vegna frétta um til dæmis 52 andlát vegna ofneyslu á lyfseðils- skyldum lyfjum á síðasta ári hvað sé að gerast. Skjáfíkn getur ýtt undir aðra fíkn og þetta er atriði sem á alveg eftir að skoða. Það er mjög margt sem á eftir að rannsaka og ég held að við séum komin á þann stað að það þurfi stóra lýðheilsurannsókn hérlendis á áhrifum skjá- tíma á börn og unglinga.“ Eins og að setja barn undir stýri Björn segir að skjátæki gagnvart börnum minni svolítið á þegar bíllinn kom fyrst á mark- að. Þá var engin burðartækni, engin örygg- isbelti, engir stuðpúðar og það kostaði mörg mannslíf áður en sú öryggistækni kom í bílana. „Að setja fullkomna spjaldtölvu í fangið á fimm ára dreng, og leyfa honum að vera þar eftirlitslaus, er svipað og að setja barnið undir stýri. Barnið hefur engar forsendur til að var- ast hætturnar. Ég held það væri jafnvel hug- mynd að það væru til sérstök tæki fyrir börn. Ég hafði miklar áhyggjur þegar Fortnite- leikurinn kom og ofbeldisleikir eru yfirhöfuð mikið áhyggjuefni þar sem allt of ungir krakkar eru að spila þá. En það er ekki aðeins að huga þurfi að þeim heldur eru einnig svokallaðir fjöl- spilaraleikir, Multi Member Online Roleplaying Games. Þeir eru einfaldlega mjög ávanabind- andi og viðkvæmustu einstaklingarnir ánetjast þessum leikjum mjög hratt. Til eru dæmi um börn sem hætta að mæta í skólann.“ Í starfi sínu hefur Björn oft upplifað hjálp- arleysi foreldra í erfiðum málum þar sem skjá- notkun er komin úr böndunum en hann segir vandamálið líka vera upplifun barna á skjá- notkun foreldra sinna. „Eitt af því sem okkur er mjög hugleikið inni á BUGL er tengslamyndun barna og ung- linga en barn getur upplifað sára höfnun ef mamma og pabbi eru alltaf í símanum. For- eldrarnir eru þá ekki til staðar og eru þar að auki slæmar fyrirmyndir. Barninu finnst að það hljóti sjálft að þurfa að vera í snjalltæki til að fá þá örvun í lífinu sem það þarf.“ Nokkur einkenni rafræns skjáheilkennis Heimild: Victoria L. Dunckley Barnið upp- tendrað stóran hluta sólar- hrings Örmagnast vegna minnsta áreitis Tekur bræðiköst Verður pirrað þegar það er beðið að hætta að leika tölvuleiki eða hætta í rafrænu skjátæki Sjáöldur útvíkk- uð eftir að hafa setið við skjá Erfitt að mynda augnsamband eftir raf- rænan skjátíma Laðast að raf- rænum skjám eins og fluga að ljósi í myrkri Hætt að njóta athafna sem það naut áður Á í erfiðleikum með að eignast vini eða halda í þá vegna óþroskaðrar eða vanstilltrar hegðunar Áhugamálum hefur fækkað og snúast að mestu um rafræna skjái Áhugi á þekk- ingu og eðlis- læg forvitni minni Þau einkenni sem birtast hjá börnum ef þau fara yfir þolmörk sín í skjátímanum og geðlæknirinn Vic- toria Dunckley hefur bent á í skrifum sínum eru vel þekkt. Dunckley kallar það rafrænt skjáheilkenni þegar börn fara fram yfir þau mörk í skjátækjum sem þau þola og það kemur niður á líðan þeirra, svefni og hegðun og getur verið forstig að skjáfíkn. Hér eru dæmi um einkenni rafræns skjáheilkennis. ’ Þetta eru einkum tvennskonar áhrif sem við höfumáhyggjur af; annars vegaráhrif þessarar sjónrænu oförv- unar og svo líka hvaða góðu virkni er ýtt í burtu vegna þess að barnið er í skjátækjunum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.