Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Qupperneq 15
13.1. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Þ
au eru hvert úr sínu hverfinu
krakkarnir fjórir sem mættir eru
til þess að ræða mál sem varða
tölvunotkun unglinga og afleið-
ingar þess. Auður Bjarnadóttir
(2003) er í Valhúsaskóla, Arnfríður Helga-
dóttir (2003) í Hörðuvallaskóla, Hilmir Ás-
berg Björnsson (2004) í Garðaskóla, og Jakob
Ragnar J. Sigurðsson (2004) er í Hlíðaskóla.
Hvað teljið þið að þið eyðið miklum tíma
fyrir framan skjá á virkum dögum? Og hvað
er það aðallega, tölvan, síminn eða sjón-
varpið?
Arnfríður Það er aðallega síminn hjá mér.
Það er hægt að sjá í símanum hvað maður
eyðir miklum tíma í að horfa á símann. Með-
altalið er rúmlega tveir tímar á dag. En auð-
vitað notar maður símann í allt en ég eyði
samt alveg miklum tíma á samfélagsmiðlum.
En ég er ekki í tölvuleikjum.
Jakob Ég er eiginlega aldrei í símanum en
eyði þremur, fjórum tímum á dag í tölvunni.
Ég nota mest spjaldtölvuna og tölvuna. Í
tölvunni er ég mest í tölvuleikjum.
Auður Ég nota mest tölvuna mína, og þá
aðallega til að horfa á þætti. Ég held að ég
eyði svona þremur til fjórum tímum á dag.
Hilmir Ég er bæði í símanum og tölvunni.
Í tölvunni er ég í FIFA og Fortnite. Aðallega
Fortnite. Það fer eftir dögum hvað ég er mik-
ið að spila, en oft um einn og hálfan til tvo
tíma á dag.
Arnfríður Ef maður hefur ekkert að gera
fer maður bara í símann.
Hvaða samfélagsmiðla notið þið mest?
Jakob Ég nota ekki samfélagsmiðla, mér
finnst það pirrandi. Ég horfi frekar á You-
tube. Stundum horfi ég á hvernig maður
verði betri í tölvuleikjum en líka fræðsluefni.
Ég hef mikinn áhuga á risaeðlum og nátt-
úrufræði þannig að ég horfi stundum á heim-
ildamyndir.
Arnfríður Ég nota mest Snapchat og
Instagram. Ég nota Snapchat til að hafa sam-
skipti við vini mína. Ég er á Facebook en
nota það aðallega til að sjá viðburði.
Hilmir Ég er á Facebook en það er bara
gamalt fólk að „follow“ mig. Fjölskyldan.
Annars nota ég Snapchat og Instagram.
Auður Ég nota langmest Instagram og
líka Snapchat en ég tala mikið við vini mína á
Messenger.
Jakob Ég nota eitt sem heitir Discord en
það er líka notað í sambandi við tölvuleiki.
Það er svipað og Skype. Maður talar við vini
sína þegar maður spilar tölvuleiki.
Hilmir Já, ég fer aldrei í tölvuna nema ég
sé að spila við einhverja.
Jakob Þegar ég spilaði Fortnite spilaði ég
kannski of mikið. Ég var eiginlega kominn
með leiða á því.
Finnst ykkur þið vera háð skjánum? Gætuð
þið verið viku án símans og tölvu?
Hilmir Ég gæti það alveg en það væri al-
veg glatað.
Jakob Ég gæti það alveg, ég myndi þá bara
lesa einhverjar bækur. En það er þægilegt að
hafa þetta, og geta gúgglað.
Arnfríður Ef ég gleymi símanum heima
hugsa ég að það sé kannski einhver að
hringja í mig, eða senda skilaboð. Ég er alltaf
með símann.
Auður Ef ég er ekki með símann verð ég
svo stressuð. Eins og það sé einhver sem
þurfi að ná í mig.
Jakob Þetta er auðvitað öryggistæki.
Haldiði að þið mynduð lesa fleiri bækur ef
þið væruð ekki með síma?
Hilmir Nei.
Jakob Já, ég myndi ábyggilega lesa aðeins
meira. En ástæðan fyrir því að ég er ekki
með Snapchat og allt það er að mér finnst
erfitt að halda einbeitingu þegar síminn er
alltaf að pípa.
Auður Ef ég er að gera heimavinnuna
slekk ég á símanum. Það er miklu þægilegra.
Eru reglur á ykkur heimilum varðandi
tölvunotkun?
Jakob Hjá mér er það bannað eftir klukkan
átta og þá spilum við oft, lesum eða gerum
heimavinnuna. Mamma og pabbi töluðu sig
saman að hafa regluna svona. Ég þarf líka að
fara eftir þessum reglum af því að ég á yngri
systkini og það gengur jafnt yfir alla.
Arnfríður Það eru ekki miklar reglur hjá
mömmu; ég er heldur ekkert svo mikið í tölv-
unni. Ég tek ábyrgð á því sjálf. Pabbi segir
við mig að vera ekki of mikið í símanum áður
en ég fer að sofa.
Auður Það eru engar reglur, þau treysta
mér til þess að ráða þessu sjálf.
Hilmir Ég slekk yfirleitt á tölvunni svona
tíu, hálfellefu á virkum dögum en tólf eða eitt
um helgar. Mamma segir bara að svo lengi
sem einkunnirnar séu góðar þá sé þetta í lagi.
Hvernig eru reglurnar í ykkar skólum?
Megið þið vera með síma í tímum?
Hilmir Nei, nema að kennarinn leyfi.
Auður Það fer samt alveg eftir kennurum,
sumir leyfa að hafa þá uppi á borðinu.
Arnfríður Við erum alltaf með símana á
borðunum en sumir kennarar biðja um að við
setjum þá niður.
Jakob Oftast vilja eldri kennarar að maður
setji þá í vasann.
Arnfríður Það er eiginlega öfugt hjá mér.
Yngri kennararnir eru strangari en þeim
eldri er alveg sama.
Finnið þið fyrir andlegum eða líkamlegum
breytingum ef þið eruð of lengi í tölvunni?
Jakob Ekkert svakalega. Mest líkamlega.
Manni verður illt í augunum og stundum
verður mér kalt á puttunum þegar ég nota
lyklaborðið mikið. Eða stífur í öxlunum. Svo
getur maður alveg orðið smá pirraður ef
maður tapar oft í leik.
Hilmir Já, sammála. Maður getur orðið
pirraður og reiður, eins og flestir.
En þið, stelpur, finnið þið fyrir einhverju?
Auður Ég veit ekki hvort það sé út af sím-
anum en stundum líður mér eins og að augun
verði viðkvæmari fyrir ljósi.
Finnst ykkur eitthvað slæmt varðandi ykk-
ar tölvunotkun?
Arnfríður Mér finnst stundum þegar mað-
ur er að horfa á vídeó í símanum þá kemur
alltaf nýtt og nýtt og maður festist í síman-
um. Þótt það sé kannski mjög óspennandi
vídeó. Þá finnst manni þetta svo mikil tíma-
eyðsla. Maður fattar stundum ekki hvað tím-
inn líður hratt.
Jakob Um helgar hef ég stundum spilað
töluvert lengur en í fjóra tíma.
Hilmir Já, á kvöldin um helgar spilar mað-
ur oft lengi.
Hvernig haldiði að þetta verði í framtíðinni,
hjá ykkar unglingum?
Hilmir Ég hef enga hugmynd.
Arnfríður Annaðhvort verður þetta miklu
meira eða svipað. Það eru margir í dag að
gera rannsóknir um tölvufíkn, þannig að
mögulega verður það ekki meira en í dag.
Auður Tæknin er að breytast svo hratt.
Kannski verður þetta allt öðruvísi.
Nú eru komin fram alls konar ný orð eins
og skjáfíkn og tölvufíkn. Haldiði að það sé til
í alvöru?
Arnfríður Já, ég þekki nokkra krakka sem
eru mjög háð tölvunum og geta ekki beðið
eftir því að komast heim úr skólanum til að
fara beint í tölvuna. Hætta jafnvel að æfa
íþróttir. Þau eru í tölvuleikjum og þegar þau
eru í skólanum eru þau að horfa á Youtube af
öðru fólki að spila leikinn.
Haldiði kannski frekar að þetta sé þá
tölvuleikjafíkn?
Auður Já, örugglega. Allir sem ég þekki
sem eru háðir þessu eru þeir sem spila tölvu-
leiki.
Hvað finnst þér, Hilmir, finnst þér þú vera
háður því að fara í Fortnite?
Hilmir Nei, ekkert illa háður. En það er
alveg gaman að fara í það. Ég þekki reyndar
einn strák sem er háður tölvuleikjum. Hann
er búinn að eyða áttatíu þúsund í „skin“ [bún-
inga fyrir persónuna].
Jakob Já, ég þekki einn sem hefur eytt
sextíu þúsund í „skin“.
Þekkið þið margar stelpur sem eru í tölvu-
leikjum?
Jakob Nei.
Arnfríður Það eru alla vega engar vinkon-
ur mínar í þessu. Við höfum alveg prufað
þetta en ekki oft og við erum ekkert góðar.
Það er heldur ekkert gaman að spila ef mað-
ur er ekki góður. Þetta eru aðallega strákar.
Hvaða ráð mynduð þið gefa vinum ykkar
sem væru háðir skjánum?
Jakob Að reyna að finna eitthvað annað að
gera. Fara út að spila fótbolta.
Arnfríður Ég myndi biðja þá að koma út
að gera eitthvað og segja þeim að það sé
hægt að gera eitthvað betra við tímann.
„Maður festist í símanum“
Fjórir unglingar, fjórtán og
fimmtán ára, hafa sínar
skoðanir á tölvunotkun,
samfélagsmiðlum og skjáfíkn.
Arnfríður, Jakob, Auður og
Hilmir settust niður og
ræddu málin.
Í ljós kom að stelpurnar eru
meira á samfélagsmiðlum en
strákarnir í tölvuleikjum.
Arnfríður, Jakob, Auður og Hilmir tóku þátt í umræðum um tölvunotkun unglinga. Ekkert þeirra segist haldið skjá- eða tölvuleikjafíkn en öll þekkja þau
krakka sem eyða flestum frístundum í tölvunni. Oftast eru það þá drengir sem festast í tölvuleikjum, að þeirra mati.
Morgunblaðið/Ásdís