Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Page 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.1. 2019 MINNING N ei, ert þetta þú vinur. Ég hélt að þú tækir bara myndir af ís- björnum,“ sagði Tryggvi Ólafsson þegar Ragnar Ax- elsson vatt sér inn úr dyrunum í Galleríi Fold eitt vorsíðdegið árið 2015 til að taka mynd af honum. Ragnar skellti upp úr og áréttaði að hann myndaði annað veifið mann- fólk líka – alla vega ennþá – og það væri sannur heiður að fá að mynda Tryggva. „Heiðurinn er alfarið minn,“ svaraði Tryggvi. „Hann tekur stórkostlegar ljósmyndir þessi drengur.“ Þetta snarpa en meinfyndna samtal náði vel utan um Tryggva Ólafsson; hann var í senn hnyttinn, alþýðlegur og auðmjúkur. Skemmti- legri viðmælanda er varla hægt að hugsa sér, það þekki ég af eigin raun, átti við hann ófá við- tölin gegnum tíðina, spekin rann fram eins og lækur og húmorinn var aldrei langt undan. Orðheppnari maður en Tryggvi Ólafsson er vandfundinn. Myndirnar á sýningunni í Galleríi Fold þetta vor vísuðu hingað og þangað en Tryggvi sagði verk sín eigi að síður alltaf fjalla um það sama – lífið og tilveruna. „Allir hlutir hanga saman í þessu lífi. Gróður jarðarinnar, ástin og lífið. Það er minn grundvöllur. Ég er algyðistrúarmaður og hef mikla trú á speki Aristótelesar. Hann þekkti enga hormóna en skildi það samt allt. Það er ótrúlegt hvað hann skildi sá maður.“ Hann kvaðst líka vera rómantíker. „Mér lík- ar vel að skoða hluti og hlusta á tónlist, mest djass, en það er heldur ekki dónalegt að heyra sellósvítur Bachs. Það er ekki síst spuninn sem heillar mig. Ferðin á laglínunni er að einhverju leyti sú sama og í málverkinu. Margir af þess- um djassistum eru snillingar og það fer í sálina á mér. Mikið er það fallegt.“ Að dómi Tryggva kom innblástur bara úr vinnunni. „Maður byrjar bara að mála og þá fer eitthvert ferli í gang. Það er einmitt svo spenn- andi. Annað mottó mitt í lífinu hef ég fengið frá dönskum grínista, Storm Petersen: Ef ég stranda þá held ég ótrauður áfram. Á Íslandi hafa menn lengi sagt: Þeir fiska sem róa. Ef ég fæ einhvern ódrátt á færið fer það bara í bréfa- körfuna. Síðan þarf maður bara að eiga konu og kaffisopa. Áður var það kona og rauðvín en það hefur fjarað út. Það er heldur ekki verra að eiga kött. Öll spenna líður úr manni þegar mað- ur klappar ketti.“ Á ég að vera eins og Beethoven? Tæpum tveimur árum áður bar fundum okkar Tryggva líka saman í Galleríi Fold og þá fékk annar ljósmyndari, Ómar Óskarsson, að reyna spéið á eigin skinni. „Á ég að vera eins og Beethoven? Hann var alltaf svo alvarlegur á myndum,“ spurði Tryggvi Ómar sem smellti af honum í gríð og erg. „Það hefur alltaf þótt fínt að vera í fýlu á Íslandi. Þykir svo gáfulegt. Verst að ég nenni því ekki.“ Iðjuleysi er böl málarans og Tryggvi var þarna í skýjunum með að vera kominn á skrið að nýju eftir alvarlegt slys sem hann lenti í árið 2007. „Sjáðu til, það er eins með sköpunarþörf- ina og kvensemina. Hún fer ekkert. Þörfin verður alltaf til staðar. Þetta er allt af sömu rót- um runnið, karlmaðurinn hefur bara þrjá fasta punkta í sinni tilveru: Fæðingu, konu og dauða. Þá er ég ekki bara að tala um málara, þurfi menn að syngja eða spila á fiðlu tengist það líka hormónunum. Það hundskammaði mig einu sinni kona í partíi í Danmörku fyrir að halda þessu fram en ég er enginn dólgur og dóni. Ég meina þetta.“ Hann hélt áfram: „Eftir slysið átti ég ekki von á því að komast af stað aftur. Ég ræð ekki almennilega við að mála en grafíkin hentar ágætlega. Ég er að vísu hálfgerður aumingi og þarf hjálp við þetta, tæknin er orðin flóknari í dag en hún var í gamla daga og leiðin frá teikn- ingu yfir á pappír lengri. Hér áður var það bara krít á stein og þaðan beint á pappír. Eftir að tölvurnar komu til sögunnar er ferlið miklu lengra. Það er mikilvægt að hafa aðgang að mönnum sem maður treystir og það hef ég.“ Þúsund eða fleiri Haustið 2009 sótti Einar Falur Ingólfsson, blaðamaður og ljósmyndari, Tryggva heim vestur á Granda og spurði meðal annars um fjölda málverka sem eftir hann lægju. „Elskan mín, ætli þau séu ekki þúsund eða fleiri,“ svaraði Tryggvi. „Ég málaði svona 40, 50 á ári í mörg ár. Mér líður best þegar gengur undan mér. Ég get ekki verið með svoleiðis harðlífi að vera í heilt ár að mála eina eða tvær myndir. Ég vil frekar henda mynd og byrja upp á nýtt. Ég hef málað yfir margar myndir um dagana. Ég veit ekki hvort það er aldurinn, en nú er mér orðið alveg sama hvaða myndefni ég nota. Fyrir mér er allt opið. Ég get fengið hug- myndir í barnaherbergjum og á klósettum og alls staðar.“ Á þessum tíma var Tryggvi nýfluttur heim eftir að hafa búið í áratugi í Danmörku. „Margt hefur breyst hér. Ég fór út til Kaup- mannahafnar 21 árs gamall og kom aftur 68 ára. Þetta eru tvö ólík ríki. Í gamla daga þekkti ég marga sem eru dánir: Vilhjálmur frá Ská- holti, Ási í Bæ, Flóki og Jóhannes Geir, allir þessir vinir mínir og fleiri höfðu mikil áhrif á mig. Og ég hef alltaf hugsað til þeirra. Svo kem- ur maður núna til landsins og þá er fyr- irmyndin orðin möppudýr með háskólagráðu sem rænir bankana. Að vera útrásarvíkingur og stela sparifé af ensku fólki þótti voða fínt. Þetta er voðalega þreytt lýðveldi. Það sem hefur batnað er hvað Reykjavík og Ísland eru orðin græn. Ég held að fáir menn hafi séð annan eins árangur ævi sinnar og Sig- urður Blöndal og aðrir skógræktarmenn. Þeir hafa gert kraftaverk. Trén ná líka að fela mikið af þessum ljóta arkitektúr í Reykjavík.“ Vinna og aftur vinna Í samtali okkar Tryggva árið 2004 bar ég undir hann goðsögnina um það að listamenn gætu að- eins unnið þegar „andinn“ kæmi yfir þá. Hann kannaðist við goðsögnina en þekkti hana þó ekki af eigin raun. „Það getur vel verið að til séu listamenn af þessu tagi en þetta á ekki við um mig. Það dug- ar ekki að horfa upp í loftið. Hvað ef Mozart hefði bara setið og drukkið rauðvín? Þá hefðu öll þessi ódauðlegu tónverk aldrei orðið til. Auðvitað þarf ástríðan að vera til staðar. Og áhuginn. Það eru hlutir sem vont er að skil- greina. En síðan er þetta bara vinna. Og aftur vinna.“ Hann tók dæmi. „Ég er ekki fæddur teikn- ari. Var óttalegur þurs í teikningu og þurfti að læra hana. Meira að segja núna, þá teikna ég til hádegis á hverjum degi. Ég er hins vegar fædd- ur með einhverja litamaníu og hún hefur komið sér vel.“ Spurður hvort tjáningarþörfin væri alltaf jafn rík svaraði Tryggvi: „Já, það er einhver forvitni sem rekur mann áfram. Ef ég vissi hvernig mynd væri frá upp- hafi til enda myndi ég ekki nenna þessu. Alveg eins og skytta sem veit fyrirfram hvað hún kemur til með að fá margar rjúpur mun aldrei nenna af stað í veiði. Ég segi stundum: Láttu það í friði sem lætur þig í friði! Ef ég fæ nóg af því að mála þá mun ég fá mér aðra vinnu en þessi della ætlar að duga mér fyrir lífstíð.“ Þar hafði hann lög að mæla. Þessi della ætlar að duga mér fyrir lífstíð Tryggvi Ólafsson listmálari lést á dögunum, 78 ára að aldri. Hann var afkastamikill í listsköpun sinni og naut virðingar langt út fyrir landsteinana. Tryggvi var líka orðheppinn með afbrigðum, svo sem fjölmörg viðtöl hér í blaðinu vitna um. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Morgunblaðið/Golli Tryggvi Ólafsson ásamt aldavini sínum og kollega Braga Ásgeirssyni í Gall- eríi Fold árið 2013, þar sem þeir sýndu saman. Þeir eru nú báðir fallnir frá. Morgunblaðið/Ómar „Þetta er allt af sömu rótum runnið, karlmaðurinn hefur bara þrjá fasta punkta í sinni tilveru: Fæðingu, konu og dauða,“ sagði Tryggvi Ólafsson. Þetta verk var á yfirlitssýningu í Gerðarsafni árið 2000. Tryggvi Ólafsson á heimili sínu árið 2014. Eftir alvarlegt slys árið 2007 vann hann mest í grafík.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.