Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Side 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.1. 2019 MATUR Ottolenghi er fæddur og uppalinn íJerúsalem en býr nú í Camden ogrekur nokkra veitinga- og deli-staði í Bretlandi. Hann hefur skrifað vinsælar mat- reiðslubækur eins og Plenty, Plenty More, Jerusalem, Ottolenghi: The Cookbook, Otto- lenghi Simple, Nopi: The Cookbook og Sweet: Desserts from London’s Ottolenghi. Hann skrifar vikulega matarpistla í The Guardian og birtir þar uppskriftir sínar. Einnig hefur hann komið fram í ýmsum kokkaþáttum og m.a. verið dómari í Master- Chef Ástralíu. Hann hefur því nóg á sinni könnu. Átti að verða fræðimaður Ottolenghi, sem er sonur efnafræðiprófessors og skólastjóra, átti að verða fræðimaður og lagði stund á heimspeki. Hann kláraði lokarit- gerð sína og sendi hana heim til foreldranna, en inn í hana hafði hann lætt miða sem á stóð: „Hér er lokaritgerðin. Ég hef ákveðið að taka mér hlé frá akademísku námi og fara í kokkaskóla.“ Í kjölfarið flutti hann til London og fór í Le Cordon Bleu-skólann. Mikið vatn er runnið til sjávar síðan þá, en nú er hann hluti af fimm manna teymi sem talað er um að hafi hrein- lega breytt því hvernig Bretar hugsa um mat. Vinir hvor af sínu þjóðarbrotinu Kokkurinn og Palestínumaðurinn Sami Tam- imi er einn af hans nánustu samstarfs- mönnum og hefur skrifað með honum tvær af kokkabókum hans. Hann er frá Jerúsalem eins og Ottolenghi en þeir eru þó af tveimur ólíkum þjóðarbrotum þar sem Ottolenghi er gyðingur, en þeir félagar láta engar pólítískar deilur skemma fyrir sér vinskapinn. Vinirnir tveir opnuðu deli-stað í Notting Hill í London sem náði fljótt miklum vinsæld- um og varð frægur fyrir grænmetisrétti með fjölbreyttu bragði þar sem notað er alls kyns spennandi miðausturlenskt hráefni. Fleiri staðir voru opnaðir síðar og hafa þeir félagar átt langan og farsælan feril í matargerð. Bók þeirra, Jerusalem, er stútfull af uppskriftum sem eiga rætur að rekja til bæði gyðinga og araba í hinni heilögu borg. Þegar Ottolenghi var beðinn að lýsa heim- spekinni að baki matargerð sinni sagði hann: „Ég vil drama í munninum.“ AFP Dramatík í munni Yotam Ottolenghi er snill- ingur í eldhúsinu og mið- austurlensku réttirnir hans munu án ef slá í gegn. Ísraelsmaðurinn Yotam Ottolenghi vill að fólk upplifi drama í munninum. Þessi heimsfrægi kokkur, sem á nokkra veitingastaði í Bretlandi, skrifar bæði kokkabækur og vikulega matarpistla í The Guardian. Lesendur geta nú spreytt sig á nokkrum girnilegum og einföldum miðausturlenskum réttum sem svíkja engan. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Fyrir 4 1 stór blómkálshaus (800 g) 1 miðlungsstór laukur, skorinn gróft (130 g) 80 ml ólífuolía 25 g steinselja, skorin gróft 10 g mynta, skorin gróft 10 g tarragon, skorið gróft fræ úr ½ meðalstóru granatepli (80 g) 40 g pistasíukjarnar, léttristaðir og skornir gróft 1 tsk kummín 1½ msk sítrónusafi salt Hitið ofninn í 200°C á blæstri. Rífið gróft með rifjárni einn þriðja af blómkáls- hausnum og geymið í skál. Takið afganginn og brjótið niður í grófa bita og geymið í annarri skál. Blandið lauknum saman við. Blandið þessu saman ásamt 2 msk af olíu og ¼ tsk af salti. Dreifið á smjörpappír sem lagður hef- ur verið á ofnplötu. Ristið í um 20 mínútur, þar til eldað í gegn og gullinbrúnt. Takið út og látið kólna. Þegar þetta hefur kólnað er því hellt í stóra skál og yfir hellt 50 ml af olíu, rifna hráa blómkálinu og afganginum af hráefnunum. Saltið með ¼ tsk af salti. Blandið varlega saman og berið fram á fallegu fati. Unaðslegt blómkálssalat Ljósmynd/Jonathan Lovekin Fyrir 4-6 8 stórir kjúklingabitar (leggur og læri saman), u.þ.b. 2 kg 5 hvítlauksrif, marin 15 g ferskt óreganó, rifið niður (og smá auka til skreytingar) 3 msk rauðvínsedik 3 msk ólífuolía 100 g steinlausar grænar ólífur 60 g kapers, plús 2 msk af safanum 70 g steinlausar döðlur, skornar í fernt á langveginn 2 lárviðarlauf 120 ml þurrt hvítvín (hægt að kaupa matarhvítvín í búðum) 1 msk döðlusíróp salt og svartur pipar Ottolenghi þróaði þennan rétt og segist hafa verið undir áhrifum frá frægri uppskrift úr bókinni The Silver Palate, en sá réttur heitir Marbella-kjúklingur. Setjið kjúklinginn í stóra skál og bætið út í öllum hráefnunum, fyrir utan vínið og döðlusírópið. Bætið við ¾ tsk af salti og slatta af pipar. Blandið maríneringunni vel saman við kjúklinginn og látið marínerast í 1-2 daga í ísskáp. Gott er að hræra aðeins í þessu ann- að slagið. Hitið ofninn í 180°C. Leggið kjúklinginn í stóra ofnskúffu eða stórt eldfast mót og hellið allri mar- íneringunni með. Hrærið saman víninu og döðlusír- ópinu og hellið yfir kjötið. Setjið í ofn og eldið í 50 mínútur. Gott er að væta kjúklinginn annað slagið með soðinu og maríner- ingunni sem kemur þegar hann eldast. Hann á að vera gullinbrúnn þegar tilbúinn. Takið úr ofninum og setjið á stórt fat. Dreif- ið ferskum óreganólaufum yfir og berið fram. Kjúklingur með döðlum, ólífum og kapers

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.