Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Qupperneq 25
13.1. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
Fyrir 2 (í aðalrétt),
4 (í forrétt)
Þessi réttur er frábær
með volgu pítubrauði og er
tilvalinn sem aðalréttur,
meðlæti, forréttur eða nasl.
200 g grænar linsubaunir (puy
lentils)
30 g ósaltað smjör
2 msk. ólífuolía, og smá auka
til að hella yfir í restina
3 hvítlauksrif, afhýdd og marin
1 tsk. kummín
3 meðalstórir tómatar, af-
hýddir og skornir í 1 cm
kubba
25 g kóríander lauf, skorin
smátt
4 msk. tahínísósa
2 msk. sítrónusafi
salt og svartur pipar
½ lítill rauðlaukur, skorinn í
mjög þunnar sneiðar
2 harðsoðin egg, skorin í fernt
Sjóðið vatn í potti. Bætið
linsubaunum út í og sjóðið í
15-20 mínútur. Sigtið vatnið
frá og geymið baunirnar.
Hitið smjör og olíu saman
á pönnu. Þegar smjörið er
bráðnað, bætið þá hvítlauk
og kummíni á pönnuna og
eldið í eina mínútu.
Setjið þá tómatana út á
pönnuna, 20 g af kóríander
og elduðu linsubaunirnar.
Eldið og hrærið í nokkrar
mínútur. Bætið þá við sí-
trónusafa, tahíní, 70 ml af
vatni, teskeið af salti og smá
pipar.
Lækkið hitann niður í
meðalhita og eldið og hrær-
ið í nokkrar mínútur í við-
bót, þar til að það hefur
þykknað. Merjið baunirnar
létt þannig að úr verði gróft
mauk.
Dreifið úr baununum á
flötum diski. Setjið laukinn
og kóríander yfir ásamt smá
skvettu af ólífuolíu. Berið
fram með harðsoðnu eggj-
unum og góðu brauði til að
dýfa í maukið.
Grænar linsubaunir með tahíní
Fyrir 4 (gott í forrétt eða
meðlæti)
350 g kirsuberjatómatar
3 msk. ólífuolía
¾ tsk. kummínfræ
½ tsk. ljós púðursykur
3 hvítlauksrif, skorin í örþunnar
sneiðar
3 greinar ferskt timían
5 g ferskt óreganó
(tínið laufin af greinunum en
geymið smá ósnert)
1 sítróna, skafið ysta hlutann af
hálfum sítrónuberkinum til þess
að fá þrjár lengjur og rífið börk-
inn af hinum helmingnum til þess
að fá fíngert rasp
350 g grísk jógúrt (þykka
tegundin)
1 tsk. chilli-flögur
sjávarsalt
svartur pipar
Það sem gerir þennan rétt svo
heillandi eru skörpu skilin á
milli heitu og safaríku tómat-
anna og ísköldu jógúrtarinnar
þannig að það er mikilvægt að
bera þetta fram beint úr ofni
og beint úr ísskáp.
Hitinn mun bræða jógúrtina
þannig gott er að hafa nóg af
springa og farið er að krauma í
öllu saman.
Stillið þá á grill og grillið í
6-8 mínútur, þar til tómatarnir
fara að brenna á yfirborðinu.
Á meðan tómatarnir eru að
grillast blandið jógúrtinni sam-
an við raspið af sítrónunni og
¼ tsk. af salti. Geymið í ísskáp
þar til þið berið fram.
Þegar tómatarnir eru til-
búnir dreifið jógúrtinni á disk
með kanti eða í grunna skál og
með bakhlið skeiðar búið til
„holu“ í miðju.
Setjið tómatana ásamt safa
og öllu ofan í „holuna“. Berið
fram strax meðbrauði.
góðu súrdeigsbrauði eða fo-
caccia-brauði til þess að dýfa
ofan í réttinn.
Hitið ofninn í 200°C á
blæstri.
Setjið tómatana í hræri-
vélarskál ásamt olíunni, kumm-
ínfræjum, sykri, hvítlauk, timí-
an, óreganógreinum, sítrónu-
hýðislengjunum, ½ tsk. af salti
og smá nýmöluðan pipar.
Hrærið þessu létt saman
(ekki mauka) og setjið á bök-
unarplötu sem er passlega
stór þannig að tómatarnir séu
ekki of dreifðir.
Bakið í 20 mínútur, þar til
tómatarnir eru farnir að
Heitir kirsuberjatómatar
með grískri jógúrt
Ljósmynd/Jonathan Lovekin
Fyrir 6
500 g rauðar linsubaunir
2½ l kalt vatn
2 meðalstórir rauðir laukar
2 msk ólífuolía
200 g beðjur (má nota
grænkál eða spínat ef hitt
fæst ekki)
50 g ferskur kóríander
2 tsk kummín
1 tsk kanill
1 msk kóríanderfræ
3 hvítlauksrif, marin
50 g ósaltað smjör
rifin börkur af hálfri sítrónu
súrdeigsbrauð
4 sítrónur, skornar í báta
salt og svartur pipar
Skolið linsubaunirnar vel í
köldu vatni. Setjið þær í
pott með 2½ l af vatni. Ná-
ið upp suðu og látið malla í
35 mínútur eða þar til þær
eru mjúkar.
Veiðið af skán sem rís
stundum á yfirborðið.
Fjarlægið u.þ.b. helm-
inginn af baununum úr
pottinum og setjið til hlið-
ar í skál. Saltið baunirnar í
pottinum með vatninu og
notið töfrasprota til þess
að mauka þær.
Setjið baunirnar sem
þið geymduð aftur í pott-
inn.
Afhýðið laukinn, skerið
fyrst í tvennt og svo í þunn-
ar sneiðar. Setjið pönnu á
hellu og hafið kveikt á
miðlungshita. Bætið ólífu-
olíu og lauk á pönnuna og
eldið í 4-5 mínútur, eða
þar til laukurinn er mjúk-
ur.
Á meðan er gott að taka
stilkana af beðjunum (eða
grænkálinu); skolið og
skerið gróft. Farið eins að
með kóríanderlaufin.
Geymið nokkur kórían-
derlauf til skreytingar.
Setjið lauk, beðjulauf og
kóríanderlauf út í súpuna
og kryddið með kummíni,
kanil, salti og pipar.
Hitið súpuna aftur og
látið hana malla í fimm
mínútur.
Kremjið hvítlauksrifin í
morteli ásamt kóríander-
fræjunum.
Bræðið smjör á lítilli
pönnu yfir miðlungshita og
bætið hvítlauk og kóríand-
erfræjum út á. Steikið í
um tvær mínútur eða þar
til hvítlaukurinn er aðeins
farinn að taka á sig lit.
Hrærið þessu út í súp-
una og takið hana af
hellunni og setjið lok yfir.
Látið pottinn standa í
fimm mínútur áður en
súpan er borin fram.
Dreifið rifnum sítrónu-
berki og smá kóríander-
laufi yfir súpuna.
Berið fram með súr-
deigsbrauði og sítrónubát-
um. Passið að allir kreisti
smá sítrónusafa út í súp-
una.
Linsubaunasúpa Ottolenghis
ALMAR
BAKARI
BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR
Sunnumörk 2, Hveragerði, sími 483 1919, Almar bakari
Opið mánudaga til laugardaga kl. 7-18, sunnudaga kl. 8-18
SÉRBAKAÐfyrir þig
SALATBAR
ferskur allan
daginn