Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Blaðsíða 26
N
ú þegar heimagisting
hefur rutt sér til
rúms er það orðin
knýjandi spurning
fyrir hvert ferðalag
hvers konar gististað á að velja. Þetta
snýst ekki lengur um það hvaða hótel
eða gistiheimili verður fyrir valinu
heldur þarf að spá í hvert eðli ferð-
arinnar er og hvort annars konar
gistimöguleikar, eins og heimagisting
eða jafnvel farfuglaheimili henti bet-
ur. Val á gistingu veltur gjarnan á
eðli ferðarinnar, fjölda ferðalanga og
væntingum ferðalangs eða hóps til
ferðalagsins hvernig gisting verður
fyrir valinu.
Kostirnir við að gista á hóteli eru
margir. Öll þjónusta er á staðnum
(ætti a.m.k. að vera það) eða í mesta
lagi kostar eitt símtal að útvega það
sem vantar.
Staðsetning hótela (ef þau eru al-
mennileg) er yfirleitt góð og valin út
frá helstu kennileitum borga, veit-
ingastöðum og afþreyingu ýmiss kon-
ar. Það getur líka borgað sig að gista
á hóteli, eða í hótelíbúð, þegar ferðast
er með börn. Yfirleitt er auðvelt að
græja aukarúm, rúmföt um miðja
Thinkstock
Farfuglaheimili eða hostel henta vel ungum ferðalöngum sem vilja ekki borga
mikið en eru meira en til í að slá af kröfum um þægindi. Svo getur líka bara ver-
ið stemning í því að sofa í koju og kynnast öðrum ferðlalöngum.
Hvar á ég að gista í nótt?
Heimagisting eða hótel? Nú eða kannski farfuglaheimili? Áður en haldið er af stað út í heim þurfum við að vita hvað
við viljum fá út úr ferðalaginu. Þegar við vitum það er hægt að taka ákvörðun um hvers konar gististaður hentar best.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.1. 2019
FERÐALÖG
KRINGLU OG SMÁRALIND
7.697
VERÐ ÁÐUR 10.995
DÖMUSKÓR
SKECHERS SUMMITS DÖMUSKÓR MEÐ
MEMORY FOAM INNLEGGI.
ÚTSALA 30%
AFSLÁTTUR
>> >>