Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Síða 35
13.1. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA 2.-8. JANÚAR
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Á eigin skinniSölvi Tryggvason
2 Að vetrarlagiIsabel Allende
3
Almanak Háskóla Ísl. 2019
Þorsteinn Sæmundsson/
Gunnlaugur Björnsson
4
Rauður maður/svartur
maður
Kim Leine
5 HeltekinFlynn Berry
6
Almanak Hins íslenska
þjóðvinafélags 2019
Þorsteinn S./Gunnlaugur B.
7 Dagbók Kidda klaufa 10Jeff Kinney
8 Hið heilaga orðSigríður Hagalín Björnsdóttir
9 MóðurhugurKári Tulinius
10 Bókasafn föður mínsRagnar Helgi Ólafsson
1 Becoming Michelle ObamaMichelle Obama
2 21 lessons for the 21st CenturyYuval Noah Harari
3 Q and A a DayPotter Style
4
This Is Home: The Art of
Simple living
Natalie Walton
5 SilmarillionJ.R.R. Tolkien
6 Paris for One and Other StoriesJojo Moyes
7
Harry Potter and the
Philosopher’s Stone
J.K. Rowling
8 Cuba Marco PoloMarco Polo
9 Thai Food Made EasyTom Kime
10 Fellowship of The RingJ.R.R. Tolkien
Íslenskar bækur
Erlendar bækur
Ég er að lesa þriðju bókina í Rivers
of London-bókaröðinni eftir Ben
Aaronovitch. Þetta er glæpa-/
borgarfantasía um lögreglumann-
inn Peter Grant.
Stórskemmtilegar
bækur. Einnig þræði
ég mig í gegnum
The Dark Tower-
bækurnar eftir
Stephen King. Kraft-
urinn í sögunni er
dáleiðandi og maður verður berg-
numinn af hömlulausu hugmynda-
fluginu.
Efst á jólagjafa-
listanum var bók-
in Krossgötur eft-
ir Bryndísi Björg-
vinsdóttur og
Svölu Ragnars-
dóttur. Undan-
farin ár hef ég kaf-
að ofan í íslenskar þjóðsögur, -trú
og -menningu. Nú er staðan sú að
ég er orðinn sólginn
í allar bækur af
þessu tagi. Er t.a.m.
að lesa Á mörkum
mennskunnar núna,
bók Jóns Jónssonar
um förufólk.
Svo er ég að lesa
Harry Potter-bækurnar fyrir hlað-
varpið Pottersen sem ég og systir
mín, Bryndís Freyja Petersen, er-
um með hjá Kjarnanum.
ÉG ER AÐ LESA
Emil Hjörvar
Petersen
Emil Hjörvar Petersen er
rithöfundur.
Danski rithöfundurinn Kim Leine hefur notið
hylli hér á landi og skáldsagan Rauður maður /
svartur maður er þriðja bókin sem kemur út
eftir hann á íslensku. Bókin er annar hluti
Grænlandsþríleiksins sem hófst með Spá-
mönnunum í Botnleysufirði og gerist á Græn-
landi á 18. öld þegar Danir gerðu Grænland að
nýlendu sinni. Í bókinni rekur Leine upphaf
kristniboðs og nýlenduvæðingar, lygileg tildrög
hennar, ævintýralega framkvæmdina og hræði-
legar afleiðingar, bæði fyrir nýlendubúana
dönsku og Grænlendinga. Jón Hallur Stefánsson þýddi, Sæmundur
gefur út.
Glæpasagan Heltekin, eftir Flynn Berry, segir
frá því er Nora Lawrence fer að heimsækja
Rachel systur sína sem býr í litlu þorpi nálægt
Oxford. Enginn tekur á móti henni á lestarstöð-
inni og þegar hún kemur í hús systurinnar finnur
hún blóði drifið lík hennar á stofugólfinu. Nora
tekur til við að rannsaka morðið sjálf, enda
treystir hún ekki lögreglunni til þess, en smám
saman kemur í ljós að hún þekkti systur sína
ekki eins vel og hún hafði haldið. Hermann Stef-
ánsson þýddi bókina, JPV gefur út.
Snemma í Að vetrarlagi, nýrri skáldsögu
Isabel Allende, heldur háskólaprófessor í
Brooklyn af stað til læknis í byl á vanbúnum bíl.
Á heimleiðinni ekur hann á bifreið ungrar
konu, ólöglegs innflytjanda frá Gvatemala.
Unga konan vill ekki komast í tæri við lögregl-
una og forðar sér, en leitar síðar á náðir pró-
fessorsins og biður um hjálp. Hann veit ekki
hvernig á að bregðast við og leitar í öngum sín-
um til leigjanda síns, sem er frá Síle. Sigrún Á.
Eiríksdóttir þýddi, Mál og menning gefur út.
NÝJAR BÆKUR
Fyrir um það bil mánuði hreppti írska skáldkonanSally Rooney helstu bókmenntaverðlaun Írlandsfyrir skáldsöguna Normal People. Þeirri bók var
víðar vel tekið, enda fékk hún bókmenntaverðlaun
Waterstones-bókakeðjunnar sem bók ársins, var tilnefnd
til bresku Booker-verðlaunanna áður en hún kom út, dag-
blaðið Times valdi hana bók ársins, hún fékk Specsavers-
verðlaunin og Costa-verðlaunin sem skáldsaga ársins í síð-
ustu viku.
Allt hefur þetta aukið mjög áhuga
fólks á bókinni og svo mjög að breska
dagblaðið The Guardian birti frétta-
skýringu í byrjun vikunnar þar sem
reynt var að grafast fyrir um það hvers
vegna bókin væri svo vinsæl; svo vin-
sæl, segir í greininni, að bóksalar hafi
birgðir tiltækar við búðarborðið og
setji skilti út í glugga þegar þeir eigi
eintök af henni. Í greininni kemur
einnig fram að Normal People sé bók sem fólk kaupi mörg
eintök af, eintök til að lesa og eintök til að gefa vinum –
greinarhöfundur fer einmitt í bókabúð til að kaupa af
henni þrjú eintök.
„Þetta er bara ég“
Normal People er önnur skáldsaga Sally Rooney, sú fyrri,
Conversations with Friends, kom út 2017, þegar Rooney
var hálfþrítug, en bókin kom út á íslensku á síðasta ári á
vegum bókaútgáfunnar Benedikts. Bjarni Jónsson þýddi
bókina sem heitir Okkar á milli í íslenskum búningi.
Rooney hefur lýst því að hún hafi verið sískrifandi frá
barnsaldri og fyrstu skáldsöguna hafi hún skrifað fimmtán
ára gömul, sem hún segir hafa verið „algjört drasl“. Hún
vakti síðar athygli fyrir greinaskrif og smásögur en Okkar
á milli var víst smásaga sem varð of löng.
Rooney hefur tekið þátt í pólitískum deilum á Írlandi –
reyndar koma skoðanir hennar vel í ljósi í lokaorðun
greinar sem hún skrifaði fyrir London Review of Books í
tilefni af fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu á Írlandi um
að fella úr stjórnarskránni ákvæði sem bannaði fósturrof:
„Ég fæddist sama ár og lögregla ruddist inn í Virgin-
plötubúð vegna þess að hún seldi smokka án þess að lyfja-
fræðingur væri á staðnum. Tveimur árum áður en sam-
kynhneigð var afglæpavædd. Fjórum árum áður en lög-
skilnaðir voru leyfðir. Tuttugu og sjö árum, vonandi, áður
en áttunda stjórnarskrárákvæðið var fellt úr gildi.“
Þegar Okkar á milli kom út varð blaðamönnum tíðrætt
um að Sally Ronney væri J.D. Salinger Snapchat-
kynslóðarinnar, en í viðtölum vegna Normal People gefur
hún lítið fyrir þann frasa, hún hafi aldrei ætlað sér að tala
fyrir hönd annarra en sjálfrar sín, það sé henni nógu erf-
itt: „Ég vil ekki hljóma eins og ég sé vanþakklát, vegna
þess að fólk er að segja indæla hluti um mig, en ég er ekki
einu sinni að reyna að vera rödd lítils brots kynslóðar, ekki
einu sinni ungra kvenna minnar kynslóðar eða írskra
kvenna minnar kynslóðar. Þetta er bara ég.“
Rooney og
venjulegt fólk
Skáldkonan Sally Rooney hefur slegið í gegn víða um heim á síðustu árum,
þó ekki liggi eftir hana nema tvær bækur, sú seinni nánast nýkomin út.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Metsölu-
höfundurinn
Sally Rooney.