Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Qupperneq 37
13.1. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
SJÓNVARP Sjónvarp Símans hóf í vikunni sýningar á
spennuþáttunum Escape at Dannemora sem byggðir
eru á sönnum atburðum. Árið 2015 struku tveir dæmdir
morðingjar úr fangelsi í New York-ríki í Bandaríkj-
unum og nutu við það aðstoðar konu sem starfaði í fang-
elsinu. Stórskotalið leikara kemur fram í þáttunum en
aðalhlutverkin eru í höndum Benicio del Toro, Patriciu
Arquette og Paul Dano. Þættirnir hafa fallið í frjóa jörð
hjá gagnrýnendum en ekki eru þó allir sáttir. Þannig
hefur konan sem hjálpaði föngunum að strjúka, Joyce
Mitchell, kallað leikstjórann Ben Stiller hraðlyginn tík-
arson. „Honum er slétt sama um sannleikann. Vill bara
græða milljónir á mér. Hann er fábjáni.“
Kallar Stiller tíkarson
Patricia
Arquette
í hlutverki
Joyce Mitchell.
Showtime
ÞJÓFNAÐUR Dee Snider, hinn skeleggi söngvari
málmbandsins Twisted Sister, notar orðið flautaþyrill
um ástralska stjórnmálamanninn Clive Palmer, sem
notað hefur erkislagarann We’re Not Gonna Take It í
auglýsingaskyni fyrir flokk sinn Sameinuð Ástralía.
Ver Palmer gjörninginn með þeim orðum að hann hafi
samið nýjan texta. „Ég gleðst yfir því að Clive kunni að
meta lagið mitt en hann þarf augljóslega að kynna sér
höfundarréttarlöggjöfina betur,“ tísti Snider. Árið
2015 gaf Snider Donald Trump leyfi til að nota sama
lag í kosningabaráttu sinni í Bandaríkjunum en þeir
eru kunningjar. Afturkallaði þó leyfið þegar hann
gerði sér betri grein fyrir hugmyndafræði Trumps.
Líður ekki að höfundarverki sé stolið
Dee gamla Snider er ekki skemmt.
Leikarinn Bryan Cranston kveðst
hafa verið í fullum rétti þegar
hann tók að sér hlutverk fatlaðs
manns í bandarísku kvikmyndinni
The Upside, sem er endurgerð af
hinni vinsælu frönsku mynd The
Intouchables, en aðstandendur
myndarinnar hafa sætt gagnrýni
fyrir að velja ekki leikara sem í
raun og veru er fatlaður til að fara
með hlutverk milljarðamærings-
ins sem er lamaður og í hjólastól.
Í samtali við fréttaveituna Press
Association kveðst Cranston hafa
tekið hlutverkið að sér á faglegum
forsendum. „Sem leikarar erum
við beðin um að vera annað fólk,
leika annað fólk. Fyrst ég er gagn-
kynhneigður vel stæður hvítur
eldri karlmaður get ég þá ekki
leikið fátækan mann eða samkyn-
hneigðan mann? Við lifum í heimi
gagnrýni og fyrst við treystum
okkur til að fara á fætur á morgn-
ana og reyna að láta að okkur
kveða verðum við að geta tekið
gagnrýni. Við erum mjög með-
vituð um þörfina fyrir að gefa
fötluðu fólki aukin tækifæri.“
Kevin Hart fer með hitt aðal-
hlutverkið í myndinni, manninn
sem annast auðkýfinginn og
vingast við hann. Stutt er síðan
Hart hætti við að kynna óskars-
verðlaunahátíðina, sem stendur
fyrir dyrum, vegna gamalla um-
mæla sinna um samkynhneigð.
Bryan Cranston og Kevin Hart í The Upside sem frumsýnd var í Bandaríkj-
unum og Bretlandi fyrir helgina. Um er að ræða endurgerð The Intouchables.
STX Entertainment
KVIKMYNDIN THE UPSIDE SÆTIR GAGNRÝNI
Ófatlaður leikur fatlaðan
Scarlett Johansson hætti í fyrra við
að leika transmanneskju í myndinni
Rub & Tug eftir harða gagnrýni.
AFP
Ítalska óskarsverðlaunamyndin
Cinema Paradiso verður sýnd
undir merkjum
Bíóástar á RÚV á
laugardagskvöldið.
Myndin sem er frá
1988 fjallar um
kvikmyndagerð-
armann sem rifjar
upp æskuár sín í
litlum bæ á Sikiley þar sem ástríða
hans fyrir kvik-
myndagerð kvikn-
aði fyrst.
Stöð 2 er líka í
klassíkinni en á
laugardagskvöldið
er á dagskrá engin
önnur en Rocky
Horror Picture Show. Skóla-
krakkarnir Brad og Janet eru á leið
til fundar við háskólaprófessor. Á
leiðinni bilar bíllinn og þau leita að-
stoðar í nærliggjandi húsi þar sem
klæðskiptingurinn Frank N. Furter
ræður ríkjum.
Sjónvarp Símans veðjar á
rómantíkina en Legally Blonde
með Reese Witherspoon og Luke
Wilson er þar á dagskrá á laug-
ardagskvöld. Þegar kærastinn segir
ljóskunni Elle Woods upp ákveður
hún að elta hann í laganám.
SJÓNVARPIÐ UM HELGINA
R
GUNA
GÓÐAR
I
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
SÍGILD HÖNNUN Í 50 ÁR
Fyrir 50 árum hannaði danski hönnuðurinn Arne Jacobsen fyrsta kranann fyrir Vola.
Æ síðan hefur hönnun og framleiðsla Vola verið í fremstu röð.