Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Page 40
SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2019
„Kvikmynd sem gerir landamærin mennsk,“ er yfirskrift lofsamlegs dóms sem
birtist í The New York Times um kvikmynd Ísoldar Uggadóttur; Andið eðlilega.
Myndin sem frumsýnd var á Íslandi er nú komin á Netflix í Bandaríkjunum og
víðast hvar annars staðar í heiminum en þó ekki það íslenska, að minnsta kosti
ekki enn. Andið eðlilega hefur fengið lofsamlega dóma um allan heim og verið
sýnd á kvikmyndahátíðum um heim allan síðasta árið og vekur ekki síður athygli
á Netflix um þessar mundir og var valin á topp tíu listann yfir bestu kvikmyndir
og sjónvarpsþætti Netflix í janúar af írska Times.
Í dómi The New York Times segir að Andið eðlilega reiði sig ekki á þær klisj-
ur sem birtist svo oft í kvikmyndum þegar tvær ólíkar manneskjur þróa með sér
vináttu. Þess í stað heilli myndin áhorfandann með djúpri, hljómmikilli frásögn
sem sýni vel þegar öryggi tilveru fólks er kippt undan því og jafnframt þann
styrk sem við búum yfir þegar við höldum að við séum algerlega bjargarlaus.
Gagnrýnandi The New York Times fer lofsamlegum orðum um Andið eðlilega.
Mannúð á landamærum
Ísold Uggadóttir hefur haft í mörg
horn að líta á árinu en kvikmynd
hennar hefur verið sýnd og verð-
launuð víða á árinu.
Morgunblaðið/Hari
Kvikmynd Ísoldar Uggadóttur, Andið eðlilega,
fær fleiri lofsamlega dóma eftir að myndin kom til
sýningar á Netflix fyrir nokkrum dögum.
Enda þótt Ísland hafi eflaust ver-
ið fjær heimsmenningunni árið
1929 en í dag gerði Nýja bíó sitt
besta til að færa landanum reyk-
inn af helstu réttunum. Þannig
var á boðstólum í byrjun árs
kvikmyndasjónleikur í níu þátt-
um, „sem er æfintýrið um hina
heimsfrægu dansmær, sem blöð-
in eru við og við að minnast á.
Engin dansmær hefir í seinni tíð
vakið meiri eftirtekt er Joseph-
ine Baker, og eitt er víst, að
margir hjer bíða eftir mynd
þessari með eftirvæntíngu“,
sagði í auglýsingu á forsíðu
Morgunblaðsins og ekki veitti
líklega af að skrifa orðið eft-
irvæntíng með í-i.
Ennfremur kom fram að
myndin væri „bráðskemtileg og
skrautleg“ og að börn innan 14
ára fengju ekki aðgang. „Sýn-
ingar kl. 7 (Alþýðusýning) og kl.
9,“ sagði að lokum en ekki kom
fram í hverju munurinn á þeim
gerðum sýninga væri fólginn.
Skammt var stórra högga á milli
í Nýja bíói en sama dag, sunnu-
daginn 13. janúar 1929 kl. 4 síð-
degis, flutti Sigurður Vigfússon
frá Kálfárvöllum fyrirlesturinn
„Á hvaða braut eru leiðtogar at-
hafnalífsins?“ Aðgöngumiðar
voru seldir hjá Eymundsson og
við innganginn.
GAMLA FRÉTTIN
Fín mynd,
Josephine
Blöðin voru við og við að minnast á hina fransk/bandarísku Josephine Baker
árið 1929 enda höfðu fáar dansmeyjar vakið meiri eftirtekt í seinni tíð.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Zooey Deschanel
leikkona
Kristín Þóra Haraldsdóttir
leikkona
Anna Friel
leikkona
BORGHESE model 2826
L 220 cm Leður ct. 15 Verð 489.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
SAVOY model V459
L 223 cm Áklæði ct. 70 Verð 305.000,-
L 223 cm Leður ct. 10 Verð 435.000,-
ESTRO model 3042
L 164 cm Leður ct. 15 Verð 325.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 355.000,-
RELEVE model 2572
L 250 cm Áklæði ct. 70 Verð 315.000,-
L 250 cm Leður ct. 15 Verð 459.000,-
MENTORE model 3052
L 162 cm Áklæði ct. 83 Verð 335.000,-
L 201 cm Áklæði ct. 83 Verð 365.000,-