Morgunblaðið - 17.01.2019, Page 4

Morgunblaðið - 17.01.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 Veður víða um heim 16.1., kl. 18.00 Reykjavík -6 léttskýjað Hólar í Dýrafirði -8 skýjað Akureyri -2 skýjað Egilsstaðir -3 skýjað Vatnsskarðshólar -3 heiðskírt Nuuk -8 snjókoma Þórshöfn 0 skúrir Ósló -3 þoka Kaupmannahöfn 6 súld Stokkhólmur -2 snjókoma Helsinki -11 heiðskírt Lúxemborg 2 heiðskírt Brussel 5 skýjað Dublin 5 skýjað Glasgow 4 skúrir London 6 skúrir París 6 alskýjað Amsterdam 6 rigning Hamborg 6 súld Berlín 6 skýjað Vín 4 heiðskírt Moskva -8 snjókoma Algarve 15 léttskýjað Madríd 10 heiðskírt Barcelona 13 skýjað Mallorca 14 alskýjað Róm 12 léttskýjað Aþena 9 léttskýjað Winnipeg -25 skýjað Montreal 0 snjókoma New York 0 þoka Chicago 0 alskýjað Orlando 12 heiðskírt  17. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:51 16:26 ÍSAFJÖRÐUR 11:21 16:05 SIGLUFJÖRÐUR 11:05 15:47 DJÚPIVOGUR 10:26 15:49 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á föstudag Austlæg átt, 3-8 m/s og dálítil él á víð og dreif, en skúrir með suðurströndinni. Á laugardag Suðaustan 13-18 m/s, rigning eða slydda og hiti 0 til 5 stig, en þurrt NA-til. Austlæg átt 5-10 og úrkomulítið norðvestantil, annars snjókoma með köflum, en suðlægari vind- ur og slydda eða rigning með suðurströndinni. Hiti 0 til 5 stig syðst, en frost annars 1 til 8 stig. 595 1000 Dubrovnik Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án f 25. apríl í 3 nætur Ein fegursta höfnin við DalmatíuströndKróatíu Verð frá kr. 124.495 Flugsæti frá kr. 89.900 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „Fundurinn var ágætur og þetta voru efnisleg skoðanaskipti,“ sagði Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, að loknum sáttafundi í gær með verkalýðsfélögunum fjór- um Eflingu, VR, Verkalýðsfélagi Akraness (VLFA) og Verkalýðs- félagi Grindavíkur, sem vísað hafa kjaradeilunni við SA til ríkissátta- semjara. Á fundinum var rætt kostn- aðarmat vegna kröfugerðanna sem fyrir liggja og fulltrúar SA lýstu mati sínu á því hvert væri svigrúm at- vinnulífsins til launahækkana til lengri tíma litið. Boðað er til næsta sáttafundar á mánudaginn og í millitíðinni ætla fé- lögin að meta afstöðu SA í baklandi sínu. Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA, segir að nú liggi fyrir skýrari sviðsmynd sem SA hafi kynnt og það gefi félögunum tækifæri til að skoða málin fram að næsta fundi en enn beri töluvert mikið í milli. Vilhjálmur leggur áherslu á að aðkoma stjórn- valda að kjaradeilunni geti skipt gríðarlega miklu máli. „Það er hægt að auka ráðstöfunartekjur heimil- anna og þeirra sem höllustum fæti standa með margvíslegum kerfis- breytingum þessum hópum til heilla,“ segir Vilhjálmur. Á meðan þessi umræða og skoðun stendur yfir og sáttaumleitanir halda áfram er ekki til umræðu í verkalýðs- félögunum að slíta viðræðum og und- irbúa aðgerðir en staðan er viðkvæm þó línur hafi skýrst. ,,Vissulega hefur sviðsmyndin skýrst betur þannig að við vitum núna hvað samtökin eru að hugsa og það er alla vega jákvætt að því leytinu til. Hins vegar leggja þeir ofuráherslu á miklar breytingar á ís- lenskum vinnumarkaði í gegnum vinnutímann o.fl. slíkt sem okkur hugnast alls ekki og við höfum alfarið hafnað og erum ekki til viðræðu um slíkt,“ segir Vilhjálmur. ,,Ábyrgð okkar allra er gríðarlega mikil, ekki bara okkar í verkalýðs- hreyfingunni heldur líka Samtaka at- vinnulífsins og síðast en ekki síst liggur ábyrgðin líka hjá stjórnvöld- um því það er til mikils að vinna að reyna að koma hér á friði á íslenskum vinnumarkaði til langs tíma.“ Morgunblaðið/Hari Kjaramál Samningafundurinn í gær stóð í rúma tvo tíma og næsti er boðaður á mánudaginn kl 10. Aðkoma stjórnvalda sögð geta skipt sköpum  Skýrari línur eftir sáttafund og viðræður halda áfram Sáttafundurinn í gær stóð í ríf- lega tvær klukkustundir. Deil- endur verjast allra frétta af innihaldi þeirra en þeim er bannað að greina frá efnis- atriðum sem fram koma á sáttafundum og eru bundnir trúnaði um allt sem fram fer hjá ríkissáttasemjara. Næsti sáttafundur er boð- aður á mánudaginn en þann sama dag á starfshópur um húsnæðismál sem ríkisstjórnin skipaði að skila tillögum sín- um. Vilhjálmur Birgisson segir að þeir þættir séu veigamiklir eins og skattamálin, vaxtamál og verðtryggingin. Gangi viðræð- urnar ekki upp stefni í verk- fallsátök. ,,Ef okkur tekst ekki að taka höndum saman allir sem einn og vinna að verkefn- inu þá mun þetta fara illa.“ Tillögur eftir næstu helgi HÚSNÆÐISMÁLIN Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn mun leggja fram tillögu í borgarráði í dag um að innri endurskoðun Reykjavíkurborg- ar fái óháða matsmennn til að sann- reyna reikninga sem tilheyra bragg- anum við Nauthólsveg 100. „Tillagan snýr að því að innri end- urskoðandi fái matsmenn til að fara yfir reikningana og hvort þeir eru til- hæfulausir eða ekki. Það er nokkuð sem við teljum að þurfi að gera og það hefur ekki verið gert,“ segir Ey- þór Arnalds, oddviti Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. „Við erum líka með tillögu um að það verði hætt að eyða tölvupóstum starfsmanna þegar þeir ljúka störf- um því það er mikil starfsmannavelta hjá borginni. Það hafa verið þrír stjórnendur á skrifstofu eigna og at- vinnuþróunar núna síðustu átta mán- uði. Það er vísað í skýrslu innri end- urskoðanda í að lög um opinber skjalasöfn hafi verið brotin. Það má eyða tölvupósti ef það er búið að skjala og taka allt úr honum sem á að vista en það hefur heldur ekki verið gert. Á meðan þetta er í ólagi leggj- um við til að það verði hætt að eyða tölvupóstum.“ Aðspurður segist hann eiga von á undirtektum við þessum tveimur til- lögum: „Af umræðunni [í fyrradag] fannst mér flestir borgarfulltrúar sem tóku til máls vera sammála um að það þyrfti að skoða málin betur. Það lýtur að reikningunum og skjöl- unum. Það blasir við að það beri að taka skjalamálið föstum tökum. Það kæmi mér á óvart ef meirihlutinn vildi ekki fara þessa leið. Það er bara búið að útkljá það og ef allt er í góðu þá er það bara niðurstaðan. Þetta eru bara mjög eðlilegar tillögur og á rétt- um vettvangi. Ef menn eru viðkvæm- ir fyrir því þá er borgarráð eftirlits- aðili og framkvæmdastjórn og hefur eftirlit með því að hlutirnir séu í lagi.“ Grasrót Pírata kemur saman í dag til að ræða skýrslu innri endurskoð- anda um braggann. Tölvupóstum Hrólfs var eytt Í grein sinni „Um staðreyndir“ sem birtist í Fréttablaðinu á þriðju- daginn ritaði Dóra Björt Guðjóns- dóttir, forseti borgarstjórnar og odd- viti Pírata í Reykjavík, að rangt væri að tölvupósti Hrólfs Jónssonar, fyrr- verandi skrifstofustjóra eigna og at- vinnuþróunar, hefði verið eytt. Spurð um þessi skrif og hvort hún viti til þess að tölvupóstum hafi veri eytt segir Dóra nýjar upplýsingar hafa komið fram í málinu. „Eftir að hafa óskað eftir frekari upplýsingum barst [í gær] tölvupóst- ur frá innri endurskoðanda þess efnis að í úthólfi, bæði fyrrverandi skrif- stofustjóra og verkefnastjórans, hefði vantað tölvupósta frá fyrri hluta verktímabilsins. Af þessu til- efni talaði ég við oddvita meirihlut- ans og við sendum sameiginlega tölvupóst til innri endurskoðanda og báðum hann að halda utan um end- urheimt tölvupóstanna,“ segir Dóra. Spurð hvort það sé þá ekki rétt að tölvupóstum Hrólfs hafi verið eytt segir Dóra það rangt að öllum tölvu- póstum hafi verið eytt. „Það er ekki rétt eins og komið hefur fram í fjöl- miðlum að öllum tölvupóstum hafi verið eytt en í nýjum upplýsingum sem bárust [í gær] kemur fram að hluta af tölvupóstum hans hefur verið eytt. Það er ekki hægt að segja til um hvort það hafi verið vísvitandi eða ekki.“ Morgunblaðið/Hari Braggamálið Borgarráð mun ræða braggamálið á fundi sínum í dag. Reikningar verði skoðaðir  Sjálfstæðisflokkurinn leggur fram tvær tillögur í borgarráði vegna braggans

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.