Morgunblaðið - 17.01.2019, Side 11
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Mývatnssveit Íbúar sveitarfélagsins voru kátir þegar heilsugæslustöðin var opnuð fyrir þremur árum.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps er
að láta kanna líðan íbúanna með það
fyrir augum að grípa til aðgerða til
að auka hamingju þeirra. Sveitar-
stjórinn segir að margt sé hægt að
gera til þess.
„Þjónusta sveitarfélaga er nær-
þjónusta við íbúana og á okkur hvílir
sú ábyrgð að veita góða þjónustu.
Markmiðið hlýtur á endanum alltaf
að vera að auka hamingju þeirra. Til
þess að geta gert það þurfa ákvarð-
anir okkar að byggjast á forsendum
sem við þurfum að fá fram og
mæla,“ segir Þorsteinn Gunnarsson,
sveitarstjóri Skútustaðahrepps sem
nær meðal annars yfir Mývatnssveit.
Á næstu dögum verður gerð
könnun meðal íbúa þar sem líðan
þeirra er könnuð og leitast við að
mæla hversu hamingjusamir þeir
eru. Notuð eru viðmið sem sett eru í
samstarfi við embætti landlæknis og
fleiri.
„Við munum rýna gögnin sem fást
og setja af stað verkefni sem geta
stuðlað að því að auka hamingju
íbúa Skútustaðahrepps. Við munum
síðan mæla áhrifin einu sinni á ári
og sjá hvort við erum á réttri leið,“
segir Þorsteinn.
Hann segir að niðurstöðurnar
ættu að gefa til kynna á hvaða svið-
um sveitarfélagið stendur sig vel og
hvar veikleikarnir liggja. Það geti
snúið að lýðheilsu íbúa, þjónustu
sveitarfélagsins, umhverfismálum
og mörgu öðru.
Ungt fólk með börn
Þorsteinn segir að breytingar hafi
orðið í Mývatnssveit með fólks-
fjölgun og sérstaklega fjölgun ungs
fólks með börn. Það hafi breytt
mannfjöldapíramídanum, sem sé
jafnari en áður.
„Mikil uppbygging hefur orðið
undanfarin ár og vill sveitarstjórn
nýta þann styrk við innviðaupp-
byggingu um leið og ákvarðanir eru
vandaðar. Sérstaklega þarf að
kanna hvernig best er að koma til
móts við þann hóp sem hingað hefur
flutt,“ segir Þorsteinn.
Auka á hamingjuna
í Mývatnssveit
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps kannar líðan íbúanna
og grípur síðan til aðgerða til að auka hamingju þeirra
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019
Söfnum í neyðarmatarsjóð til
matarkaupa hjá Fjölskylduhjálp
Íslands fyrir þá fjölmörgu sem
lægstu framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp slands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í matarsjóðinn
Guð blessi ykkur öll
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
STÓRÚTSALA
GERRY WEBER - TAIFUN - BETTY BARCLAY
JUNGE - FUCHS SCHMITT OG FL.
á gæðamerkjavöru
Dúnúlpur og ullarkápur
40% - 50%
ENN MEIRI AFSLÁTTUR
BRIDS
SKÓLINN
Námskeiðin hefast í næstu viku . . .
BYRJENDUR stig 1 – grunnurinn
... hefst 21. janúar átta mánudagar frá 20-23
FRAMHALD stig 3 – spilamennska sagnhafa
... hefst 23. janúar átta miðvikudagar frá 20-23
• Ekkert mál að koma stakur/stök
• Námskeið skólans eru haldin í Síðumúla 37 í Reykjavík
• Mörg stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna
• Sjá nánar á netinu bridge.is
• Upplýsingar og innritun í síma 898-5427
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Útsala
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
ÚTSALAN
í fullum gangi
40-60%
afsláttur
Enn er hægt að gera
GÓÐ KAUP
Str. 36-56
Útsalan í fullum gangi
30-50% afsláttur af öllum útsöluvörum
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) heim-
ilaði í gær íslenskum stjórnvöldum
að setja viðbótartryggingar á inn-
flutning matvæla vegna salmonellu í
kjúklingakjöti, hænueggjum og
kalkúnakjöti.
Með viðbótartryggingunni er þess
krafist að tilteknum matvælum fylgi
vottorð sem byggist á sérstökum
salmonellurannsóknum á viðkom-
andi vöru áður en hún er flutt til
landsins frá öðrum EES-ríkjum.
„Þetta eru virkilega ánægjulegar
fréttir. Umræða um mögulega um-
sókn Íslands um viðbótartryggingar
hefur komið upp reglulega undan-
farin ár en við settum mikinn kraft í
þessa vinnu á fyrri hluta síðasta árs
sem lauk síðan með form-legri um-
sókn síðasta sumar. Þetta er ein
varðan á þeirri vegferð sem fram
undan er [til] að tryggja enn betur
öryggi matvæla og vernd búfjár-
stofna,“ segir í yfirlýsingu frá Krist-
jáni Þór Júlíussyni, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra.
Mega setja
viðbótar-
tryggingu
Vegna salmonellu
Fuglakjöt Eftirlitsstofnun EFTA
heimilaði viðbótartryggingar í gær.
Atvinna