Morgunblaðið - 17.01.2019, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 17.01.2019, Qupperneq 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 VIÐTAL Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við byrjuðum í þessu verkefni af alvöru haustið 2017 en háskólinn í Osló hefur unnið að þessu samstarfi við Nasa síðustu fjögur ár. Þetta gekk vel og það er vilji til að halda þessu samstarfi áfram,“ segir Tinna Líf Gunnars- dóttir, nemi í geimverkfræði við háskólann í Tromsö í Noregi. Tinna var hluti af hóp sem fékk það verkefni að hanna, smíða og setja tæki í eld- flaug í samstarfi við geimferða- stofnun Banda- ríkjanna, Nasa. Eldflauginni var skotið upp á sunnudaginn var og gekk verkefnið að óskum. Á næst- unni verður unnið úr gögnum sem aflað var með eldflaugarskotinu. Samstarf Norðmanna og Nasa „Það var í raun tilviljun að ég komst inn í þetta eldflaugaverkefni. Ég fór til Kanada til að gera annað verkefni og af því ég tók þátt í því komst ég inn í þetta,“ segir Tinna í samtali við Morgunblaðið. Hún seg- ir að um sé að ræða samstarfsverk- efni háskólans í Osló og Nasa. Sjálft eldflaugarskotið fór fram í Andøya Space Center. „Við vorum með glugga sem hægt var að skjóta upp innan. Hann byrjaði á fimmtu- daginn í síðustu viku og var fram á mánudag. Ef ekki hefði náðst að skjóta upp á þessum tíma þá hefði eldflaugin verið send til Bandaríkj- anna og henni skotið upp þaðan. Þetta leit ekkert sérstaklega vel út því það var stormur í Noregi á fimmtudag og föstudag. Andøya er lítil eyja og þar er veðrið svipað og á Íslandi, alltaf rok og brjálað veð- ur. Það varð að vera undir tíu metra vindi á sekúndu til að hægt væri að skjóta upp og þegar við fengum 8-9 metra á sunnudaginn var ákveðið að skjóta upp um leið. Hún fór á loft sunnudaginn 13. jan- úar klukkan þrettán mínútur yfir níu.“ Mæla rykagnir í andrúmslofti Tinna segir að eldflaugin sem skotið var upp sé lítil og samskonar flaugar eru mikið notaðar hjá Nasa. Þær eru gerðar til að ná upp í 100- 200 kílómetra hæð og safna alls- konar upplýsingum sem eru fengnar með mismunandi tækjum hverju sinni. Hlutverk Tinnu og samstarfs- manna hennar var að hanna og smíða tæki sem notað var í um- ræddu skoti. „Okkar tæki mælir rykagnir í andrúmsloftinu í 50-80 kílómetra hæð. Við tókum á móti gögnum í 500 sekúndur meðan eldflaugin var í loftinu. Svo lenti hún bara í sjónum og það er ekki náð í hana. Það er oft náð í stærri eldflaugar en það er of dýrt að sækja þessar.“ Næst á dagskrá er vinna við að greina þau gögn sem fengust frá eldflaugarskotinu. Munu Tinna og tveir aðrir úr hópnum fylgja því til enda. „Stærsti hlutinn og sá skemmtilegasti er eftir, að sjá hvað við höfum fengið út úr þessu. Nú sjáum við hvort tækið hefur virkað og hvort það skilar einhverju af viti.“ Skíðar í skólann Tinna er 31 árs og hefur búið í Noregi í rúmlega átta ár. Hún er á fimmta og síðasta ári í námi sínu og útskrifast með meistarapróf í geim- verkfræði í vor. Aðspurð segist hún ekki vita hvað taki þá við. „Ég er að vinna í hlutastarfi hjá fyrirtæki og það gæti verið að ég héldi áfram þar eða í háskólanum. Þetta er góð spurning,“ segir hún. Tinna á norskan kærasta og sam- an eiga þau fimm ára stelpu. Þau eru búsett í Tromsö og hefur hún aðlagast samfélaginu þar vel. Svo vel reyndar að þegar Morgunblaðið ræddi við hana var hún að ganga inn um dyrnar í háskólanum eftir að hafa komið þangað á skíðum. Hún hefur því fest rætur og sér ekki fram á að það breytist í bráð. „Ég á reyndar stóra fjölskyldu á Íslandi og við reynum að heim- sækja þau reglulega. Við komum til dæmis síðasta sumar.“ Að endingu hvetur Tinna áhuga- sama til að kynna sér nám í geim- verkfræði í Noregi. Hægt sé að nema í Osló, Tromsö, Bergen og Þrándheimi. „Þetta er mjög gaman. Ég mæli með þessu.“ Tinna skaut upp eldflaug með Nasa  Tinna Líf Gunnarsdóttir nemur geimverkfræði í Tromsö  Skaut upp eldflaug í samstarfi við Nasa á sunnudaginn  Mælir rykagnir í andrúmsloftinu í 80 kílómetra hæð  Fer á skíðum í skólann Ljósmynd/NASA/C.Perry Allt klárt Hópurinn sem skaut á loft eldflaug í Andøya í Noregi. Tinna Líf Gunnarsdóttir tók þátt í verkefninu sem var samstarf við Nasa. Ljósmynd/NASA/C.Perry Á loft Eldflauginni var skotið á loft á sunnudaginn. Allt gekk að óskum. Tinna Líf Gunnarsdóttir                                                             !"#  &' (  )*+ , *+ -(* ./(/ 0)   .  ( 1/                  
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.