Morgunblaðið - 17.01.2019, Síða 22

Morgunblaðið - 17.01.2019, Síða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Sífellt fleiri kalla eftir því að lokið verði við síðasta áfanga Arnarnes- vegar. Um er að ræða 1,5 kílómetra kafla frá Rjúpnadal í Kópavogi að Breiðholtsbraut í Reykjavík. Í þeirri samgönguáætlun sem nú er til umfjöllunar á Alþingi á að veita 1.500 milljónir króna í framkvæmd- ina á árunum 2024-2028. „Staðan í efri byggðum Kópavogs er óviðunandi hvað varðar viðbragðs- tíma,“ sagði Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuð- borgarsvæðisins bs., í viðtali við Morgunblaðið sl. mánudag. Hann sagði að út frá faglegu sjónarmiði væri tvennt mikilvægast til að bæta viðbragðstímann í Kópavogi, annars vegar að ljúka við Arnarnesveg og hins vegar flutningur á stöð slökkvi- liðsins við Tunguháls á lóð nálægt Arnarnesvegi, sem er á fram- kvæmdaáætlun árið 2021. Með Arn- arnesvegi aukist umferðarflæðið, en mikið álag sé orðið á gatnakerfinu. Í sérstökum umræðum um Arnar- nesveg á Alþingi fyrir jól sagði Sig- urður Ingi Jóhannsson samgöngu- ráðherra m.a. að ágreiningur hefði verið milli sveitarfélaganna, Reykja- víkurborgar og Kópavogs, um ná- kvæma útfærslu á því hvort þarna ættu að vera mislæg gatnamót eða ekki. „Það er eitt af því sem valdið hefur seinkunum á framkvæmdum,“ sagði ráðherra. Anna meiri umferð Gatnamótin sem um er að ræða eru við Breiðholtsbrautina. Kópa- vogsbær og Vegagerðin vilja mislæg gatnamót á þessum stað en Reykja- víkurborg, sem hefur skipulags- valdið, vill aðra útfærslu, þ.e. ljósa- stýrð gatnamót. Sérfræðingar Vegagerðarinnar telja að mislæg gatnamót muni anna mun meiri um- ferð og séu þar að auki miklu örugg- ara mannvirki. Þetta deilumál hefur ekki verið á dagskrá lengi, að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar. „En nú er það komið í ósamþykktu samgönguáætl- unina þannig að þegar hún verður af- greidd frá Alþingi má reikna með að við tökum þetta mál upp við Reykja- víkurborg að nýju.“ Í vinnu við Aðalskipulag Reykja- víkur (2010-2030) voru felld niður mislæg gatnamót Breiðholtsbrautar og væntanlegs Arnarnesvegar, sam- kvæmt upplýsingum Jóns Halldórs Jónassonar, upplýsingafulltrúa hjá Reykjavíkurborg. Við þá niðurfell- ingu var settur almennur fyrirvari vegna samræmis við gildandi svæð- isskipulag með vísan í svæðisskipulag 2024. Núgildandi svæðisskipulag 2040 setur hins vegar ekki fram bind- andi stefnu um mislæg gatnamót við Breiðholtsbraut -Arnarnesveg. Vegagerðin lagðist í umsögn sinni frá 5. júní 2013 gegn því að mislæg gatnamót yrðu felld út á þessum stað og Kópavogur gerði jafnframt form- lega athugasemd á auglýsingatíma, en sá kafli Arnarnesvegar sem eftir er að leggja, liggur á mörkum sveit- arfélaganna tveggja. Vegagerðin og Kópavogsbær skip- uðu umferðaröryggishóp sem skilaði skýrslu árið 2009. Í niðurstöðu hóps- ins sagði m.a: „Vegna mikilvægis vegamótanna fyrir samgöngur á höf- uðborgarsvæðinu og þar sem allt of stutt vegalengd er frá vegamótum Arnarnesvegar við Breiðholtsbraut að vegamótum við Vatnsendaveg mælir öryggishópur með að vegamót Arnarnesvegar við Breiðholtsbraut verði þegar gerð mislæg enda tryggir sá kostur öryggi vegfarenda betur en ljósastýrð vegamót. Þar sem hring- torg er mun öruggari kostur en ljósa- vegamót mælir öryggishópur með að hringtorg verði á vegamótum Arnar- nesvegar og Vatnsendavegar á með- an það annar umferð.“ Þessa vikuna standa yfir nefnda- dagar á Alþingi. Umhverfis- og sam- göngunefnd þingsins fjallar m.a. um fimm ára samgönguáætlun 2019-2023 og samgönguáætlun 2019-2033 og fær til sín gesti. Stefnt er að því að af- greiða samgönguáætlunina í þessum mánuði. Samgönguráðherra hefur sagt á Alþingi að ef áform um veggjöld ganga eftir væri vonandi hægt að flýta framkvæmdum við síðasta kafla Arnarnesvegar umtalsvert. Því er ljóst að Vegagerðin og Reykjavíkur- borg þurfa að ræða saman fyrr en seinna og semja um útfærslu gatna- móta Arnarnesvegar og Breiðholts- brautar. Ósammála um útfærslu gatnamóta  Vegagerðin vill að gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar verði mislæg er Reykjavíkur- borg vill að þau verði ljósastýrð  Alþingi ræðir samgönguáætlun  Þrýst á að verkinu verði flýtt Morgunblaðið/Sigurður Bogi Arnarnesvegur Vegurinn mun liggja frá Rjúpnadal, fyrir ofan golfvöllinn, og niður á Breiðholtsbrautina. Hann mun liggja á sveitarfélagamörkum Reykja- víkur og Kópavogs. Vinstra megin á myndinni eru einbýlishús í Seljahverfi og hægra megin einbýlishús í Kórahverfi. Efst eru möstur á Vatnsendahæð. Möguleg gatnamót Svona hugsa sérfræðingar sér bestu útfærsluna á mislægum gatnamótum. Myndin er frá árinu 2003 og mikið hefur verið byggt síðan þá í nágrenninu. Neðst á myndinni má sjá fjölbýlishúsin í Fellahverfi. Tölvumynd/VSO ráðgjöf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.