Morgunblaðið - 17.01.2019, Side 68

Morgunblaðið - 17.01.2019, Side 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 Framleiðum allar gerðir límmiða af mismunandi stærðum og gerðum Thermal Hvítir miðar Litamiðar Forprentaðir Athyglismiðar Tilboðsmiðar Vogamiðar Lyfsölumiðar Varúðarmiðar Endurskinsmiðar Flöskumiðar Verðmer Selhellu 13 • 221 Hafnarfirði • Sími 554 0500 • bodtaekni.is kimiðar Límmiðar „Samkvæmt auglýstri starfsáætlun Sinfóníuhljómsveitar Íslands fyrir veturinn 2018-19 stóð til að ég myndi koma til Íslands og frum- flytja flautukonsert Jóns Ásgeirs- sonar með SÍ á tónleikum sveitar- innar 24. janúar nk. Því miður getur ekki orðið af því. Ástæðan er sú að ég greindist nýverið með krabbamein og er þessa dagana í mjög strangri lyfja- og geisla- meðferð,“ segir í fréttatilkynningu sem Freyr Sigurjónsson flautuleik- ari hefur sent frá sér. „Mér þykir þetta þyngra en tár- um taki, því þessi konsert hefur verið hluti af lífi mínu í rúm 18 ár og ferlið við að fá hann fluttan með SÍ bæði langt og strangt. Það var mér mikið tilhlökkunarefni að fá loks tækifæri til að flytja fyrir landa mína þetta verk sem Jón samdi handa mér og vonbrigðin eðlilega þeim mun meiri að þær áætlanir gangi ekki eftir. Ég er kollegum mínum hér í Bilbao Sinfóníuhljómsveitinni ákaf- lega þakklátur, því þeir gáfu vinnu sína þegar konsertinn var hljóðrit- aður í konserthúsinu í Bilbao föstu- daginn 14. desember sl. undir stjórn Eriks Nielsen aðalhljóm- sveitarstjóra sveitarinnar.“ Freyr lauk framhaldsnámi frá Royal Northern College of Music í Manchester 1982. Það sama ár réð hann sig sem fyrsti flautuleikari Sinfóníuhljómsveitarinnar í Bilbao á Spáni og hefur gegnt þeirri stöðu síðan. Hann hefur leikið einleik með hljómsveitum og kammer- sveitum víða um Evrópu, til dæmis með Útvarpshljómsveitinni í Mad- rid og kammersveitinni Moscow Virtuosi. Hann frumflutti flautu- konsert Carls Nielsen á Spáni með Sinfóníuhljómsveitinni í Bilbao. Jón Ásgeirsson, tónskáld og pró- fessor emeritus, samdi flautu- konsertinn árið 2000. Samkvæmt upplýsingum frá SÍ er um hrífandi tónsmíð að ræða í þjóðlegum stíl. Jón fagnaði sem kunnugt er níræð- isafmæli sínu 11. október á síðasta ári. „Þyngra en tárum taki“  Freyr Sigur- jónsson forfallast vegna veikinda Flautuleikari Freyr Sigurjónsson. Bandaríski tónlistamaður-inn John Grant er fyrirlöngu orðinn þjóðþekkturá Íslandi og heilmikil al- menningseign hérlendis. Hann fluttist til landsins fyrir nokkrum árum, eftir að hafa komið fram á ís- lensku tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves og hefur kunnað ljómandi vel við sig. Hann kynntist íslensk- um tónlistar- mönnum og hef- ur allar götur síðan starfað að tónlist í sam- starfi við ís- lenska tónlistar- senu. Hann hefur jafnframt ráðið íslenska tón- listarmenn í hljómsveit sína sem ferðast um heiminn og kynnir plöt- urnar með tónleikahaldi. Það er því jafnan viðburður þegar ný John Grant-plata kemur út og lærdóms- ríkt að velta fyrir sér þeim íslensku áhrifum sem erlendir listamenn verða fyrir hér á landi. Glöggt er gests augað og allt það og því var það með töluverðri eftirvæntingu sem ég hóf markvissa hlustun á nýjasta grip hans, Love is magic. Grant leikur það sem kalla mætti melódíska rafpopptónlist og á fyrri plötum hans mátti greinilega heyra ást hans á laglínusmiðum á borð við Elton John. Þann innblástur klæddi Grant í splunkunýjan búning með viðeigandi svuntuþeysum og tölvu- trommum. Ballöður og angurværð voru á sínum stað en tölvuvinnsla og tækni nútímans settu sinn svip á allt saman. Á nýju plötunni erum við hins vegar komin yfir á annan áratug, þann níunda. Það fyrsta sem mér „Smug Cunt“ sem blandar saman hinu dularfulla og seiðandi erindi við æðislega grípandi viðlag og text- inn er sjálfsgagnrýni og efasemdir par excellence. Einnig er „The Common Snipe“ einstakt, með sín- um margslungnu kaflaskiptingum og flókinni útsetningu. Það lag sem hefur fengið mestu umfjöllunina er „He’s got his moth- er’s hips“, sem er auðvitað skemmtilegur titill, en mér þykir það samt sísta lagasmíðin, og þar hljómar Grant mun meira eins og Huey Lewis and the News heldur en Prince, sem sé meira froðupopp og minni listrænn metnaður. Nokk- ur lög á plötunni eru svo lítt eftir- minnileg eða eldast einfaldlega ekki eins vel og það besta á plötunni. Fyrsta og síðasta laginu mætti eig- inlega alveg sleppa að mínu mati, og þau bæta engu raunverulegu við heildina. Fyrir vikið fær þessi plata ekki fullt hús stiga, en með því að sleppa nokkrum lögum á plötunni væri um nokkuð fullkominn grip að ræða. Að sjálfsögðu spilar minn smekkur hér inn í og annar hlust- andi við aðrar aðstæður mun óneit- anlega komast að annarri niður- stöðu. Vert er að geta þess að hljómur plötunnar er með því besta sem John Grant hefur sent frá sér og það er mér með öllu óskiljanlegt að hann skuli burðast með alla þessa sjálfsgagnrýni í stað þess að njóta þess bara að skapa tónlist sína sem á mikið erindi og gleður fólk um all- an heim. Þessi plata er mjög eigu- legur gripur, hvort sem er fyrir eldri aðdáendur Grants eða fólk sem á eftir að kynna sér hann. Fagurlega rödduð sjálfsgagnrýni Morgunblaðið/Eggert Eiguleg „Þessi plata er mjög eigulegur gripur, hvort sem er fyrir eldri aðdáendur Grants eða fólk sem á eftir að kynna sér hann,“ segir rýnir m.a. Love is Magic, nýjustu breiðskífu John Grant sem kom út í fyrra. Hér sést Grant á vel heppnuðum tónleikum sem hann hélt á Faktorý í júlí árið 2013. Geisladiskur John Grant – Love is magic bbbmn Bandaríski tónlistarmaðurinn John Grant sendir frá sér sína fjórðu breið- skífu, Love is magic og inniheldur hún 10 lög. Breska útgáfufyrirtækið Bella Union gaf út hinn 18. október síðastliðinn. RAGNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR TÓNLIST datt í hug voru hljómsveitir á borð við Soft Cell eða jafnvel fyrri hluti ferils Prince og það er náttúrlega ekki leiðum að líkjast enda um dul- arfulla og afar skapandi listamenn að ræða. Enn meiri áhersla er lögð á fyrrnefnda svuntuþeyta og hljóð- gervla og í flestum lögum er ríkjandi taktur sem gæti gripið mann og hent í dansstuð ef þannig bæri undir. Þrátt fyrir takt og dansvæna kafla er þó langt því frá að platan grípi mann undir eins. Það tekur margar hlustanir að greina, flokka og skilja þessa plötu og hluti af hinu torræða eru hve textarnir eru miskunnlausir og harðir og á stund- um næstum grimmir. Grant er þó ekkert endilega að ráðast á og gagnrýna alla í kringum sig, að minnsta kosti ekkert meira en hann gagnrýnir sig sjálfan. Platan er nefnilega troðfull af efasemdum, sjálfsgagnrýni og biturð. Það eru þessir textar sem ýta manni upp að vegg og hrista mann til og það er vegna þeirra sem aldrei væri hægt að lýsa tónlistinni sem tónlist sem lætur manni líða vel, þrátt fyrir fagrar raddanir og ljúfar laglínur. Sökum þessara hörðu texta hljóma ósungnir kaflar í lögum plötunnar ótrúlega vel og þeir eru jafnframt mikilvægar pásur frá dramanu og uppgjörinu sem oft virðist vera í gangi. Til dæmis gætu lokakaflar „Preppy boy“ og „Diet Gum“ hæg- lega verið hluti af einhverri skap- andi samvinnu David Bowie öðrum hvorum megin við 1980 og þar næ ég að gleyma mér og njóta tónlist- arinnar til fullnustu. Besta lag plötunnar er án efa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.