Morgunblaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 58
58 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 Ég er að fara að keppa á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþrótt-um,“ segir Sigurður Haraldsson sem á 90 ára afmæli í dag.„Mótið fer fram í Póllandi í marsmánuði og ég keppi í kast- greinunum, en þær eru fimm: kúla, sleggja, kringla, spjót og lóð.“ Sigurður keppti á heimsmeistaramótinu í Búdapest fyrir fimm ár- um og gerði sér lítið fyrir og vann gull í þremur greinum, lóð, kringlu og sleggju og vann silfur í hinum tveimur greinunum. Þá keppti hann í 85 ára flokki en núna verður hann í 90 ára flokknum. „Flokkarnir skiptast milli fimm ára, en hann er orðinn þunnskipaður flokkurinn sem ég keppi núna í, en það eru nokkur þúsund manns sem keppa á mótinu í heildina.“ Sigurður fór aftur að æfa frjálsar fyrir 20 árum og keppir fyrir sitt uppeldisfélag, Leikni frá Fáskrúðsfirði, og sendir verðlaunapening- ana þangað. „Ég er að þakka fyrir gott starf sem var unnið þarna þeg- ar ég ólst upp. Þá var ég aðallega í stökkgreinum og hlaupum og spil- aði líka fótbolta jöfnum höndum. Var alæta á þær íþróttir sem voru í boði.“ Eftir útskrift úr Samvinnuskólanum árið 1950, sem þá var í Reykja- vík fór Sigurður aftur heim til Fáskrúðsfjarðar, var gjaldkeri þar í frystihúsinu og kaupfélaginu. Síðan var hann bæjargjaldkeri á Akra- nesi, kaupfélagsstjóri í Stykkishólmi og fór svo í útgerð og var í því í 27 ár, lengst í Ólafsvík. „Það er helst að fela sig,“ segir Sigurður spurður hvað hann ætli að gera í tilefni dagsins. „Ég er voða lítið fyrir samkvæmislífið núorðið. Sá tími er liðinn og ég vil hafa það rólegt.“ Börn Sigurðar eru Birna, Guðný María, Haraldur, Hrafn og Tómas. Morgunblaðið/Ásdís Í kúluvarpi Sigurður mundar kúluna en hann keppir í kastgreinum á heimsmeistaramótinu og á heimsmeistaratitla að verja. Á leiðinni á heims- meistaramót í frjálsum Sigurður Haraldsson er níræður í dag K olbrún Ósk Skaftadótt- ir fæddist 17. janúar 1979 í Reykjavík. Hún ólst upp í Vest- urbænum, gekk í Grandaskóla og fór svo þaðan í Hagaskóla. „Sem krakki æfði ég þónokkuð af íþróttum enda komin af miklum KR-ingum í föðurættina. Mest var ég í fótboltanum en æfði líka handbolta og körfubolta eitt- hvað. Ég byrjaði í Kvennaskólanum en hætti svo í skóla og fór snemma að vinna, var að vinna við að passa börn mikið og svo í Pennanum/ Eymundsson í fjöldamörg ár enda bækur eitthvað sem ég hafði snemma mikla ástríðu fyrir.“ Kolbrún hefur líka skrifað mikið fyrir hina ýmsu netmiðla varðandi íslenskar bækur, eins og til dæmis í Kvennablaðið. Hún hefur skrifað bókagagnrýni í fjöldamörg ár. „Nú Kolbrún Ósk Skaftadóttir, vörustjóri hjá Heimkaup.is – 40 Ljósmynd/Saga Sig. Fjölskyldan Áslaug og Kolbrún ásamt Róbert Mána og Felix Skafta. Fékk snemma mikla ástríðu fyrir bókum Á jólum Kolbrún ásamt fjölskyldu sinni, foreldrum og bróður. Eskifjörður Ylfa Berg- mann Andradóttir fæddist 5. febrúar 2018. Hún vó 3.640 g og var 53 cm að lengd. Foreldrar hennar eru Andri Bergmann Þór- hallsson og Sæunn Skúladóttir. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isFæst í öllum helstu apótekum og Heilsuhúsinu.www.provision.is Viteyes AREDS2 er andoxunarvítamín með sinki, lúteins og zeaxantíns og er ætlað við aldursbundinni augnbotnahrörnun. Nú er vítamínið með endurbættri formúlu sem gerir það enn betra en áður. AUGNVÍTAMÍN Augnheilbrigði Við aldursbundinni augnbotnahrörnun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.