Morgunblaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 38
38 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019
BAKSVIÐ
Guðmundur Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Mjög hefur dregið úr frjósemi
kvenna víða um heim og í um helm-
ingi ríkja heims fæðast ekki nægilega
mörg börn til að viðhalda fólksfjölda.
Þessi þróun er meðal annars greini-
leg á Íslandi þar sem frjósemi var
lengi með því mesta sem þekkist í
Evrópu en svo er ekki lengur.
Hin tæknilegi mælikvarði á frjó-
semi er fjöldi lifandi fæddra barna á
ævi hverrar konu. Er yfirleitt miðað
við að frjósemi þurfi að vera um 2,1
barn til þess að viðhalda mannfjöld-
anum til lengri tíma litið.
Nýlega birtist í vísindatímaritinu
Lancet grein um niðurstöður rann-
sóknar á frjósemi í 195 löndum á
tímabilinu frá 1950 til 2017. Um miðja
síðustu öld eignuðust konur í þessum
löndum að jafnaði 4,7 börn um ævina
og hvergi var frjósemin undir fyrr-
greindu 2,1 barns viðmiði. Árið 2017
var meðalfrjósemin komin niður í 2,4
börn og í nærri helmingi landanna
var hún komin undir 2,1 barn.
Merkileg þróun
Christopher Murray, forstjóri
heilsutölfræðistofnunar Washington-
háskóla í Bandaríkjunum, sagði við
breska ríkisútvarpið BBC að komið
væri að ákveðnum tímamótum þar
sem frjósemi í helmingi ríkja heims
væri komin undir fyrrgreind viðmið-
unarmörk.
„Þetta er merkileg þróun og hún
kemur mjög á óvart,“ segir hann.
Hraðast hefur dregið úr frjósemi í
iðnvæddum ríkjum, svo sem í flestum
Evrópuríkjum, Bandaríkjunum, Jap-
an, Suður-Kóreu og Ástralíu. Skýr-
ingarnar eru ekki líffræðilegar held-
ur samfélagslegar, svo sem að
verulega hefur dregið úr ungbarna-
dauða, sem þýðir að konur eignast að
jafnaði færri börn, aðgangur að getn-
aðarvörnum hefur aukist og atvinnu-
þátttaka kvenna og menntun hefur
vaxið hratt.
Ung pör bíða einnig lengur en áður
með að eignast börn. Norska blaðið
Aftenposten hefur eftir Trude
Lappegård prófessor að ungt fólk,
bæði í Noregi og öðrum löndum, sem
er að koma undir sig fótunum, upplifi
óvissu um efnahag, umhverfismál og
stjórnmál sem hafi þau áhrif að það
bíði með að taka mikilvægar ákvarð-
anir, þar á meðal um barneignir.
Það þýðir þó ekki að fólki sé að
fækka í þessum löndum, lífslíkur hafa
þar aukist hratt, sem þýðir að þjóð-
irnar eldast, og innflytjendum hefur
einnig fjölgað.
Velta má fyrir sér hvaða áhrif þessi
þróun muni hafa á heiminn okkar á
næstu áratugum, bæði á efnahag
ríkja og umhverfismál. Og þau þurfa
ekki að vera neikvæð, svo framarlega
sem þjóðum heims tekst að laga sig
að breytingunum.
Líklegt er að fólksflutningar milli
landa og heimssvæða muni áfram
fara vaxandi, einkum í ljósi þess hve
munur á frjósemi milli landa og
heimssvæða er mikill. Þannig var
frjósemi kvenna í Níger 7,1 barn árið
2017, í Tsjad var hún 6,7 börn, 6,1 í
Sómalíu, 6 í Malí og Afganistan og 5,9
í Suður-Súdan. Allt eru þetta meðal
fátækustu ríkja heims.
Minnst er frjósemin hins vegar í
Kýpur og Taívan þar sem konur eign-
ast að jafnaði aðeins eitt barn. Konur
í Suður-Kóreu, Andorra, Púertó Ríkó
og Taílandi eignast að jafnaði 1,2
börn og 1,3 börn í Bosníu, Póllandi,
Moldavíu og Japan.
Íslendingar eldast
Íslenska þjóðin var lengi vel yngri
og aðeins frjósamari en hinar Norð-
urlandaþjóðirnar en það hefur
breyst. Árið 2017 var frjósemi ís-
lenskra kvenna 1,71 barn að jafnaði
og hefur hún aldrei verið minni frá
því að mælingar hófust árið 1853.
Til samanburðar má geta þess að
árið 1857 var frjósemi íslenskra
kvenna 5,7 börn og 4,3 árið 1960.
Meðalaldur frumbyrja, mæðra sem
eignast sitt fyrsta barn, hefur einnig
hækkað jafnt og þétt. Frá byrjun sjö-
unda áratugar síðustu aldar og fram
yfir 1980 eignuðust konur sitt fyrsta
barn að meðaltali 22 ára en síðustu
tvo áratugi hefur meðalaldurinn
hækkað og var 27,8 ár árið 2017.
Búferlaflutningar hafa áhrif
Guðjón Hauksson, sérfræðingur
hjá Hagstofu Íslands, segir að ýmsar
ástæður geti verið fyrir þessari þró-
un, þar á meðal miklir búferlaflutn-
ingar hingað til lands á síðustu árum.
Fólk sem er nýkomið til landsins sé
ólíklegra en það sem fyrir er til að
eignast börn.
„Margir sem koma hingað í þeim
tilgangi að vinna ætla sér ekki að
stofna fjölskyldu. Meðan það eru
svona miklir búferlaflutningar til
landsins er ekki óeðlilegt að frjósem-
in minnki aðeins,“ segir Guðjón.
„Það er hins vegar erfiðara að
segja til um hvers vegna frjósemi
þeirra sem eru búsettir hér á landi til
lengri tíma minnkar. Það hafa alltaf
verið einhverjar sveiflur í frjósemi en
það hefur farið nokkuð skarpt niður
upp á síðkastið. Það sem hefur gerst
hjá okkur líka er að frumbyrjualdur-
inn hefur hækkað, og þegar það ger-
ist dregur úr frjósemi.“
Hagstofan hefur ekki reiknað út
hver frjósemi íslenskra kvenna var á
síðasta ári en Guðjón segir að fljótt á
litið séu vísbendingar um að hún hafi
aukist eitthvað á ný.
„Hér á landi er enn náttúruleg
fjölgun um 2.500 árlega. Það fæðast
um 4.500 börn árlega og um 2.000 ein-
staklingar deyja. En á móti kemur að
stórir árgangar eru að komast á eft-
irlaunaaldur og það breytir myndinni
talsvert.“
Hratt dregur úr frjósemi
Í um helmingi ríkja heims fæðast ekki nægilega mörg börn til að viðhalda mannfjöldanum til
lengri tíma litið Hugsanlega verða brátt fleiri afar og ömmur en barnabörn í sumum löndum
„Norgur þarf fleiri börn. Ég held
að ég þurfi ekki að útskýra
hvernig á að fara að því,“ sagði
Erna Solberg, forsætisráðherra
Norðmanna, í nýársávarpi sínu
um áramótin. Solberg hefur áð-
ur lýst áhyggjum af lítilli frjó-
semi landa sinna. Tilraunir
stjórnvalda í Noregi til að hvetja
fólk til barneigna, svo sem að
lengja fæðingarorlof beggja for-
eldra, hefur lítinn árangur borið.
Sama þróun hefur verið á öll-
um löndum á Norðurlöndunum
síðustu árin. Sérfræðingar, sem
blaðið Aftenposten ræðir við,
segjast ekki hafa skýringar á
reiðum höndum, auka þurfi
rannsóknir á högum og við-
horfum ungs fólks til barneigna.
Biður um
fleiri börn
NOREGURFrjósemi kvenna á Íslandi* Frjósemi kvenna á Norðurlöndunum
Þróunin frá 1949 til 2017
Árið 2016 Heimild: Eurostat
4,5
4,0
3,5
3,0
2,5
2,0
1,5
1,0
0,5
0
’49 ’53 ’57 ’61 ’65 ’69 ’73 ’77 ’81 ’85 ’89 ’93 ’97 ’01 ’05 ’09 ’13 ’17
Fædd börn árið 2017
Heimild: Hagstofa Íslands og healthdata.org
*Mælikvarði á frjósemi er fjöldi lifandi
fæddra barna á ævi hverrar konu
Alls
4.071
2.112 drengir
1.959 stúlkur
Frjósemi þarf að
vera um 2,1 til að
viðhalda mannfjölda
Frjósemi í
heiminum
1,71 var frjósemi kvenna á
Íslandi árið 2017
Frjósemi
á Íslandi
1,57
1,71 1,74 1,79
1,85
Finnland Noregur Ísland Danmörk Svíþjóð
Kínverjar eru fjölmennasta þjóð
heims, þar býr um 1,41 milljarður
manna, en sérfræðingar segja að
landsmönnum hafi fækkað á síð-
asta ári í fyrsta skipti í sjö áratugi,
þrátt fyrir að svonefnd eins barns
stefna hefði verið aflögð árið 2016
og hjón megi nú eignast tvö börn.
Í frétt AFP fréttastofunnar segir
að talið sé að kínverskum konum á
barneignaraldri muni fækka um
39% á næsta áratug og sú ákvörð-
un stjórnvalda að leyfa hjónum að
eignast tvö börn nægi ekki til að
snúa þróuninni við. Aukin menntun
fólks og hækkandi kostnaður vegna
heilsugæslu og húsnæðis hafi þar
áhrif. Ekki hafa verið birtar tölur
um fæðingar á síðasta ári, en
óháðir sérfræðingar, sem hafa rannsakað ýmsar hagtölur og upplýs-
ingar, áætla, að fæðingum hafi fækkað um 2,5 milljónir frá síðasta ári
og alls hafi Kínverjum fækkað um 1,27 milljónir á árinu.
Breska ríkisútvarpið BBC vitnar í opinbera kínverska skýrslu, sem
birt var í byrjun ársins þar sem segir að Kínverjar verði 1,44 milljarðar
árið 2029 en síðan muni þeim fækka hratt að óbreyttu.
Yi Fuxian, sérfræðingur hjá Wisconsin-háskóla í Madison í Bandaríkj-
unum, segir við AFP-fréttastofuna að kínversk stjórnvöld verði nú að
hætta að skipta sér af því sem fer fram í svefnherbergjum fólks, af-
nema tveggja barna regluna, lengja fæðingarorlof og nota skattkerfið
til að hvetja til barneigna. Nú sé staðan sú að fyrir hvern einn ellilíf-
eyrisþega séu sjö einstaklingar á vinnumarkaði sem greiði inn í vel-
ferðarkerfið. Árið 2030 verði þeir aðeins fjórir ef ekkert verði að gert.
„Kínverska hagkerfið mun ekki fara fram úr því bandaríska. Það
mun indverska hagkerfið hins vegar gera en íbúar Indlands eru al-
mennt yngri. Það mun áfram draga úr krafti kínverska hagkerfisins
sem hefur hrapallegar afleiðingar fyrir hagkerfi heimsins,“ segir Yi
Fuxian.
Sjá fram á fólksfækkun
KÍNA
Eitt barn Kínversk fjölskylda.
SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS
Á tilboði í janúar!
d line baðherbergissett, hönnunar-
vara eftir danska arkitektinn og
iðnhönnuðinn KnudHolscher.
Í settinu er: 1wc rúlluhaldari,
1 aukarúlluhaldari, 1 wcbursti
meðupphengi og2 snagar.
Tilboðsverð í janúar: 31.677 kr.
Fullt verð: 39.596 kr.
Sendumumallt land.
20%
baðherbergissett
afsláttur í janúar