Morgunblaðið - 17.01.2019, Qupperneq 45
UMRÆÐAN 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019
Af alfa línólínsýrunni (omega 3
sýra) getur líkaminn myndað EPA
sem myndast í prostagladín 3 en
EPA getur líka myndast í DHA
sem eru báðar omega 3 fitusýrur.
En prostaglandínin geta síðan um-
myndast í enn mikilvægari stýriefni
eins og þromboxana og leukotínur,
efni sem hafa áhrif á bólgur í lík-
amanum. Þá er talið að fiskát,
grænmeti og EPA-fitusýran geti
minnkað bólgur og kvilla frá þeim,
einkum í liðum.
» Við förum mikils á
mis að borða ekki
feitan fisk eins og síld,
makríl, steinbít og villt-
an lax. Fitan í fiskum er
sú hollasta sem þekkist.
Höfundur er efnaverkfræðingur.
spalmi@simnet.is
Dóttur minni, Ás-
laugu Perlu, var
nauðgað á hrottafeng-
inn máta á 10. hæð í
blokk við Engihjalla
árið 2000. Gerandinn
lagði hana á magann
á rör handriðs á 10.
hæð og þröngvaði
henni yfir það. Hér-
aðsdómur trúði ekki
frásögn ákærða, taldi
framburð hans ótrúverðugan, en
studdist við ýmis gögn sem dómn-
um þótti sanna að ákærði hefði í
raun kastað Áslaugu Perlu fram af
svölunum.
Hæstaréttardómur var í algjörri
þversögn við héraðsdóm. Hann var
byggður á sandi; engin sönnunar-
gögn, engin rannsóknarskýrsla og
hunsun vitna í héraði. Tæknimaður
hjá lögreglu fjallaði um förin á
rörinu í héraðsdómi, en Hæstirétt-
ur hunsaði þær upplýsingar.
Héraðsdómur fékk prófessor í
eðlisfræði við HÍ til að vinna álits-
gerð um fallið, sem var unnin sam-
kvæmt útreikningum
eðlisfræðinnar og var
upp á margar síður:
Hinni látnu hafði ver-
ið kastað yfir hand-
riðið með takmörk-
uðum krafti eða hún
látin falla niður.
Eftir uppsögn hér-
aðsdóms óskaði
ákærði eftir, að dóm-
kvaddur yrði mats-
maður til að gefa álit
um tilteknar spurn-
ingar. Héraðsdómur
synjaði beiðninni. Hún var kærð til
Hæstaréttar sem samþykkti að tal-
að yrði við eðlisfræðing og lífeðlis-
fræðing í gegnum síma til að
álykta út frá eðlisfræðilegri þekk-
ingu þeirra einni saman. Engin
álitsgerð.
Málinu var áfrýjað til Hæsta-
réttar. Þar sem dómarar Hæsta-
réttar hunsuðu allar upplýsingar
vitna í héraði, þá höfðu þeir engin
gögn til að dæma eftir.
Dóttur minni var nauðgað. Dóm-
urinn laug upp á hana. Ákærði
þröngvaði dóttur minni sannanlega
yfir rörið á handriði svalanna.
Ég sótti um endurupptöku á
málinu 2006 hjá Ríkissaksóknara
með aðstoð dómsmálaráðherra,
fékk neitun. Aftur 2009 vegna
nauðgunar sem var órannsökuð,
fékk líka neitun. Ég sendi póst til
sérhvers alþingismanns um að
setja á fót réttarfarsdómstól og
hringdi í þriðjung þeirra. Ég sendi
beiðni til endurupptökunefndar
2015 og fékk neitun. Sendi aftur
beiðni 2017, þá lét ég fylgja með
75 síður úr lögregluskýrslum, sem
sönnunargögn, en fékk aftur neit-
un.
Um endurupptöku dæmdra mála
í Hæstarétti: Ef verulegar líkur
eru leiddar að því að sönnunar-
gögn sem færð voru fram í máli
hafi verið rangt metin svo að áhrif
hafi haft á niðurstöðu þess, þá get-
ur Hæstiréttur orðið við beiðni
manns, sem telur sig ranglega sak-
felldan eða sakfelldan fyrir mun
meira brot en það sem hann hefur
framið. Innanríkisráðherra sagði
mér að Guðmundar- og Geirfinns-
málið færi til endurupptöku-
nefndar á undanþágu, en í stað
þess breytti Alþingi lögunum 2015.
Þá gátu makar, börn, foreldrar eða
systkini látins dæmds einstaklings
fengið samþykkta beiðni um end-
urupptöku í nefndinni. Áður mátti
ekki taka upp mál þar sem látnir
einstaklingar áttu hlut að máli.
Lögin áttu ekki við um dóttur
mína, samt var hún dómfelld fyrir
að eiga harkalegar samfarir við
ákærða. Hún er dáin af því hún
var myrt.
Ég hef sent póst á alla alþingis-
menn með beiðni um breytingu á
lögunum, sbr 5 mgr. 211 gr., sbr.
29. gr. laga nr. 78 2015.
Mál Áslaugar Perlu Kristjónsdóttur
Eftir Gerði
Berndsen »Ég sótti um endur-
upptöku á málinu
2006 hjá ríkissaksókn-
ara með aðstoð dóms-
málaráðherra, fékk
neitun. Aftur 2009
vegna nauðgunar sem
var órannsökuð, fékk
líka neitun.
Gerður Berndsen
Höfundur er móðir Áslaugar Perlu.
útvegur verið okkar aðalatvinnu-
grein, allt snerist raunar um hann
en átti hann á sínum blómatíma
marga fulltrúa úr eigin röðum á
þingi, nei, í fljótheitum man ég nú
ekki eftir þeim mörgum.
Nú munu um 17% atkvæðis-
bærra landsmanna vera 67 ára og
eldri, þ.e. teljast eldri borgarar,
hvað eiga þeir marga fulltrúa á
löggjafarsamkundunni, ætli að þar
sitji nema einn sem fyllir þann
flokk, Ellert B. Schram, sem er til
viðbótar varaþingmaður, kemur
inn tímabundið. Við erum miklir
æskudýrkendur, hér fara menn al-
mennt af vinnumarkaði í síðasta
lagi sjötugir, þeir sem hanga leng-
ur eru einhvers staðar í náð eða í
vinnu hjá sjálfum sér. Á sama tíma
kaus t.d. Bandaríkjaþing demó-
kratann Nancy Pelosi sinn þing-
forseta en Nancy er orðin 78 ára
gömul, og ætti því samkvæmt okk-
ar skilgreiningu að vera horfin af
vinnumarkaði fyrir a.m.k. átta ár-
um, en hún lýsti því yfir að loknu
kjöri að hún ætlaði að sinna starf-
inu næstu fjögur árin eða þar til
hún verður áttatíu og tveggja ára.
Getur verið að staða aldraða hér á
landi væri vænlegri ef þeir ættu
fleiri fulltrúa úr röðum eldri borg-
ara á Alþingi? Ekki ómögulegt.
Að mínu viti er eitt brýnasta
verkefnið í íslenskum stjórnmálum
að brúa bilið á milli þessara
tveggja heima þ.e. pappírsheimsins
sem varð til vegna vinnandi handa
en ekki öfugt og þeirra sem einu
sinni voru kallaðir hin vinnandi
stétt sem í dag er orðin valdalaus
þar sem hún á fáa alvöru talsmenn
í valdastofnunum samfélagsins.
»Margir hinna svo-
kölluðu gáfumanna
fullyrða að í staðinn hafi
þeir hlotið svo klaufska
hönd að hún komi ekki
nagla í vegg án blárra
og bólginna fingra.
Höfundur er vélfræðingur og fyrrver-
andi yfirvélstjóri.
Viðskipti L I N D B E R G
OD
Optical Studio
SMARALIND • LEIFSST00 • KEFLAVfK