Morgunblaðið - 17.01.2019, Síða 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019
KRINGLU OG SMÁRALIND
5.597
VERÐ ÁÐUR 7.995
BARNASKÓR
SKECHERS MECCA BARNASKÓR MEÐ GRÓFUM SÓLA.
STÆRÐIR 27-33.
ÚTSALA
30%
AFSLÁTTUR
>> >>
Marta María
mm@mbl.is
Það er fátt eins óspennandi og fólk
sem talar í frösum, er fyrirsjáanlegt
á allan hátt, gerir alltaf sömu hlut-
ina, klæðir sig alltaf eins og segir
aldrei neitt frumlegt. Ef þú vilt
breyta þér og verða aðeins hressari
og skemmtilegri, byrjaðu þá á því
að taka til í fataskápnum þínum.
Fólk í litríkum fötum er nefnilega
miklu áhugaverðara en þeir sem
þora aldrei að taka áhættu. Ef þú
vilt uppfæra þig fyrir vorið og vera
alveg löðrandi þegar kemur að
straumum og stefnum þá má sjá hér
hvað stóru tískuhúsin leggja til.
Tískukóngur augnabliksins er
án efa Alessandro Michele, list-
rænn stjórnandi ítalska tísku-
hússins Gucci. Hann náði að
dusta rykið af gömlum prent-
um og stælum og koma
þeim í móð á ný eftir
hlé. Þegar vortíska
Gucci er skoðuð kem-
ur í ljós að glundroð-
inn er í forgrunni.
Margvíslegum
munstrum er bland-
að saman á heillandi
hátt og fötin eru vel
merkt svo það fari
örugglega ekki
framhjá neinum
hvaðan þau koma.
Franska tískuhúsið
Chanel gerir þetta
líka. Ekki er víst að
eldri Chanel-frúr
myndu láta sjá sig í
hvítri skyrtu með
CHA á öðrum vasanum
og NEL á hinum en
kannski er verið að reyna að höfða
til yngri markhóps. Það sem er líka
áberandi er að lógó Chanel er gert
sýnilegt á eins mörgum stöðum og
hægt er og ofgnóttin er allsráðandi.
Það er náttúrlega glatað að vera
með eina Chanel-tösku þegar þú
getur „flexað“ tveimur.
Ef við ætlum að draga einhvern
lærdóm af Gucci og Chanel þegar
við tökum til í fataskápnum gætum
við mögulega prófað nýjar samsetn-
ingar eins og að fara í klassískan
jakka við leikfimisbuxurnar, klætt
okkur í gallabuxur og gallajakka,
blandað saman ólíkum munstrum og
farið nokkrum skrefum lengra en
við myndum annars þora.
Ef það er eitthvað sem
þú ættir að láta eftir þér
2019 þá er það það að
prófa þig áfram. Finndu
nýjar fatasamsetningar í
þínum eigin fataskáp og
þegar þú ferð í fata-
búð prófaðu þá að
máta föt sem þú
heldur að fari þér
ekki. Prófaðu liti,
munstur og ný
snið. Það versta
sem gerist er að þú
færð hláturskast
ein með sjálfri þér í
mátunarklefanum
og sleppir því að
kaupa þau. En þú
gætir líka upp-
lifað nýja hlið á
þér. Ef þú gerir
þetta mun eitt-
hvað skemmti-
legt gerast!
Áfram þú árið
2019!
GUCCI
vor 2019
Chanel
2019
GUCCI
vor 2019 GUCCI
vor 2019 GUCCI
vor 2019
Ætlar þú að vera þessi
goslausa 2019?
Janúar er ekki bara mánuður tiltektar og leikfimiiðkunar og ekki
heldur mánuður fagurra fyrirheita og loforða um að nú verðir þú
loksins upp á tíu á öllum sviðum lífsins. Janúar er mánuðurinn þar
sem þú tekur til í fataskápnum og ákveður að hleypa einhverju nýju
inn. Það er nefnilega bannað að vera goslaus 2019.
Chanel
2019
Chanel
2019