Morgunblaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019
Beztu uppskriftirnar okkar bestakryddid.is
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á fi
skinn
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Hálfheimagert kryddbrauð
1 pakki af Toro krydderkake
1 egg
½ dl olía eða 100 g bráðið smjör/
smjörlíki
2 dl vatn
Hitið ofninn á 170 C° blástur
Setjið innihald pakkans í skál
Blandið svo eggjum, vatni og olíu
eða smjöri út í
Hrærið vel
Bakið í 35 mínútur
Þar sem ofnar eru afar mismun-
andi mæli ég með að stinga prjóni í
mitt brauðið áður en það er tekið út
úr ofninum, til að vera viss um að
það sé bakað í gegn.
Ljósmyndir/María Gomez
Kryddbrauð er bæði bragðmikð og gott.Ómótstæðilegt
kryddbrauð
Hver elskar ekki heimabakað kryddbrauð? Hvað þá
ef það er nærri tilbúið þannig að fyrirhöfnin er nán-
ast engin. Matargúrúinn María Gomez sem heldur
úti bloggsíðunni Paz.is bakaði þetta brauð á dög-
unum og var gríðarlega ánægð með útkomuna.
Kryddbrauð eða kryddkaka eins og sumir kalla það,
stendur ávallt fyrir sínu enda frábær blanda af sæ-
tindum og brauðmeti.
Best er brauðið nýbakað og volgt.
Kryddbrauð er sérlega gott með smjöri.
Hvern dreymir ekki um þessa stórkostlegu vekjaraklukku sem er með
innbyggðri kaffivél. Og við erum ekki að tala um neitt hversdagssull
heldur hágæða uppáhellingu sem fær kaffiunnandann til að stynja af
gleði (eða eitthvað í líkingu við það).
Þessi magnaða klukka/kaffivél er að slá í gegn svo um munar en fyrst
var fjallað um tilurð hennar á Matarvefnum fyrir rúmu ári þegar fram
fór hópfjármögnun til að koma henni í framleiðslu. Nú er komin vefsíða
og verslun og fagurkerar jafnt sem fjölmiðlar fá ekki nóg af þessari
snilld.
Gripurinn kostar tæpar 50 þúsund krónur og hægt er að skoða hann
nánar á vefsíðunni barisieur.com
Hvað er betra en að byrja daginn á nýlöguðu kaffi?
Góðan daginn!
Það ríkir þjóðarsátt um mataræði
landans um þessar mundir en heils-
an er í fyrirrúmi sama hvaða leið er
farin. Ketó-bókin
er nánast upp-
seld í Hagkaup
og hjá Pure Deli í
Kópavoginum
eru vinsældir
grænmetisdjús-
anna svo miklir
að daglega er
verið að búa til
djús úr tonni af
grænmeti.
Að sögn Jóns
Arnars Guðbrandssonar, eins eig-
anda Pure Deli eru svokallaðir
þriggja daga orkuhreinsikúrar vin-
sælastir hjá honum en þá eru djús-
arnir drukknir allan daginn en á
kvöldin er léttur kvöldverður. Jón
leggur mikla áherslu á að mikil-
vægt sé að djúsarnir innihaldi mik-
ið magn af grænmeti en ekki ein-
ungis ávöxtum eins og sumir flaska
á.
„Þegar fólk drekkur góðan
grænmetisdjús eykur það orkuna
og blóðsykurinn helst stöðugur.
Grænmetisdjúsarnir er fullir af
vítamínum og við notum til að
mynda mikið af rauðrófum sem eru
bólgueyðandi og lækka blóðþrýst-
ing ásamt því að vera fullar af trefj-
um. Sellerí vinnur gegn bólgum og
er mjög vatnslosandi, fullt af magn-
esíum, A-vítamíni og járni. Síðan er
sítróna, engifer, gúrkur, gulrætur
og epli.
Þessir djúsar eru algjör orku-
sprengja sem hjálpar manni við að
losna við slenið eftir jólin.“
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Djúsa hátt í
tonn á dag
Jón Arnar
Guðbrandsson