Morgunblaðið - 19.01.2019, Side 1
Nýfallinn snjór á höfuðborgarsvæðinu hefur ef-
laust kætt marga. Þrátt fyrir hlýindi um tíma er
spáð frekari snjókomu eða slyddu á næstu dög-
um. Í dag verður víða rigning og síðar snjókoma.
Veðurstofa Íslands áætlar að hitinn verði við
frostmark en gæti náð allt að fimm stigum sunn-
an- og vestanlands. Frost gæti hins vegar náð
allt að 8 stigum um norðaustanvert landið á
sunnudaginn.
Bregða sér
í snjókast
Morgunblaðið/Eggert
L A U G A R D A G U R 1 9. J A N Ú A R 2 0 1 9
Stofnað 1913 16. tölublað 107. árgangur
LIST SEM HLUTI
AF DAGLEGU
UMHVERFI VAXANDI ÁHUGI Á ÍSLANDI
OFT Í LEITARVÉL 6SÝNING SIGURÐAR 42
Magnús Heimir Jónasson
Baldur Arnarson
Efling hafnaði í gær tillögum Sam-
taka atvinnulífsins (SA) um breyt-
ingar á vinnutíma og útreikningi
launa. Þær ganga út á að víkka
ramma dagvinnutímans og geta
stytt vinnutíma með því að taka
kaffitíma úr launuðum vinnutíma.
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA, segir grunn-
hugsunina þá að hafa sama mæli-
kvarða á dagvinnutíma í kjarasamn-
ingum og innan allra ríkja OECD,
m.a. í öðrum norrænum ríkjum.
Ísland er undantekning
„Ísland er eina landið sem hagar
þessu með öðrum hætti. Þetta felur í
sér að samið er um að kaffitímar séu
ekki hluti af dagvinnutímabilinu. Það
þýðir að draga má úr viðveru á
vinnustað, u.þ.b. 35 mínútur á dag.
Eftir sem áður verður starfsfólk að
sjálfsögðu að fá eðlileg hlé. Við erum
ekki að útrýma kaffidrykkju á vinnu-
stöðum heldur skipulögðum kaffi-
tímum þar sem allir fara í kaffi á
sama tíma,“ segir Halldór. Sem
dæmi gæti starfsmaður í dagvinnu
kosið að fara fyrr heim á föstudögum
eftir samkomulagi.
Stefán Ólafsson, prófessor í fé-
lagsfræði og starfsmaður Eflingar,
segir yfirvinnutekjur „hafa gegnt
stóru hlutverki í að gera láglauna-
fólki kleift að láta enda ná saman“.
Gjalda þurfi varhug við tillögum
um aukinn sveigjanleika í vinnutíma
sem aftur geti rýrt starfskjörin. Þá
t.d. með auknu og ógreiddu álagi.
Ágreiningur um vinnutíma
Efling hafnar tillögum SA um endurskilgreiningu á vinnutíma SA leggja til
að kaffihlé fari úr launuðum vinnutíma Fulltrúi Eflingar varar við breytingum
MMinni yfirvinna … »14
Morgunblaðið/Júlíus
Eftirlitsmyndavél Þær er víða að
finna og geta veitt upplýsingar.
Rafrænt eftirlit og gagnaöflun vegur
þungt í ítarlegri greinargerð lög-
reglumanna sem rannsökuðu bit-
coin-málið svonefnda. Þetta má lesa í
dómi Héraðsdóms Reykjaness þar
sem atburðarás málsins er rakin.
Stuðst var við myndir úr eftirlits-
myndavélum, staðsetningar farsíma
og ítarlegar upplýsingar um notkun
síma og símtækja sakborninganna.
Hægt var að sjá staðsetningu síma-
númera hverju sinni. Sérstaklega
var rannsakað hvort símar sakborn-
inga hefðu verið í nágrenni við vett-
vang innbrotanna um það leyti sem
brotist var inn. Einnig var kannað
hvernig símarnir ferðuðust í aðdrag-
anda og kjölfar hvers brots. Þá voru
úttektir úr hraðbönkum notaðar til
að skrásetja ferðir sakborninga í
tengslum við innbrotin.
„Í stórum málum eru þessar rann-
sóknaraðferðir orðnar gríðarlega
mikilvægar,“ sagði Ólafur Helgi
Kjartansson, lögreglustjóri á Suður-
nesjum. Hann minnti á Birnumálið
svonefnda árið 2017 þar sem upplýs-
ingar úr eftirlitsmyndavélum og far-
símakerfinu voru notaðar við rann-
sóknina. »4
Rafræn sönnunargögn
Gögn úr eftirlitsmyndavélum og símum í bitcoin-málinu
„Ég æfi mikið
íþróttir, crossfit
og handbolta, og
þar af leiðandi
skiptir svefn mig
miklu máli. Ég
var áður að fá of
lítinn svefn og
tengi það við að
ég var í símanum
á kvöldin,“ segir
Ísabella Lív Arn-
arsdóttir, 14 ára grunnskólanemi,
sem tók það nýlega upp hjá sjálfri
sér að takmarka skjánotkun þannig
að hún slekkur á símanum kl. 20 á
kvöldin á virkum dögum og finnur
hún mikinn mun á orku og úthaldi.
Viðtal við Ísabellu Lív og umfjöllun
um skjánotkun er í Sunnudagsblaði
Morgunblaðsins.
Ákvað að slökkva á
símanum á kvöldin
Ísabella Lív
Arnarsdóttir
Númerið sem bræðurnir Arnór
Þór og Aron Einar Gunnarssynir
bera á bakinu með landsliðum Ís-
lands í handbolta og fótbolta, 17,
vísar í heimili móðurömmu þeirra
og -afa, Huldu Jónsdóttur og Arn-
órs Sigurðssonar, en þau bjuggu
um langt árabil í Fjarðarstræti 17 á
Ísafirði.
„Við vorum alltaf dugleg að
heimsækja foreldra mína meðan
þau voru á lífi og þegar strákarnir
voru litlir bjuggum við einn vetur á
Ísafirði, í sömu götu. Þeir tengja
því báðir við húsið og það er ákaf-
lega skemmtilegt að þeir hafi valið
að vísa í það með þessum hætti.
Arnór byrjaði á þessu, enda eldri,
og Aron tók það síðan upp eftir
honum,“ segir móðirin, Jóna Emilía
Arnórsdóttir, í Sunnudagsblaðinu.
AFP
Sjóðheitur Arnór Þór Gunnarsson á HM.
Númerið til heiðurs
ömmu og afa
Þeim fjölgar sífellt sem kjósa bál-
för í stað hefðbundinnar útfarar. Í
fyrra voru í fyrsta sinn fleiri duft-
ker jarðsett hjá Kirkjugörðum
Reykjavíkurprófastsdæma en hefð-
bundnar kistur.
Alls létust 2.245 Íslendingar á
árinu 2018. Þar af voru 2.168 bú-
settir á Íslandi og 77 erlendis. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Kirkju-
garðasambandi Íslands voru
líkbrennslur hjá bálstofunni í Foss-
vogi í fyrra 813 talsins eða 37,5% af
tölu látinna á Íslandi.
Er því spáð að líkbrennsla aukist
hratt á næstu árum og verði komin
í 70% árið 2050. Þá eigum við samt
langt í land með að ná grann-
þjóðum okkar. Árið 2017 var hlut-
fallið í Svíþjóð 81,3%. »6
Fleiri duftker
jarðsett en kistur
Engin sérstök ástæða er til að bú-
ast við meiri veikingu íslensku
krónunnar, að mati Jóns Bjarka
Bentssonar, aðalhagfræðings Ís-
landsbanka. Hann segir að ef spil-
ast sæmilega úr óvissu til skamms
tíma í ferðaþjónustu og á vinnu-
markaði, og að teknu tilliti til þess
að gjaldeyrisvaraforðinn er stór,
viðvarandi afgangur sé af utanrík-
isviðskiptum, ríkissjóður sé skuld-
léttur og mörg stöndug fyrirtæki
séu í landinu, þá ætti ekki að vera
erfitt að fá erlenda fjárfesta inn í
landið til að jafna útflæði gjald-
eyris. Því sé engin sérstök ástæða
til að búast við meiri veikingu krón-
unnar. »22
Ekki ástæða fyrir
frekari veikingu